

fréttamaður
Kristján Már Unnarsson
Kristján Már er einn reynslumesti fréttamaður landsins og hefur verið á vettvangi í þrjátíu ár. Hann er einnig með þættina Um land allt og Landnemana á Stöð 2.
Nýjustu greinar eftir höfund

Sveitarstjórinn hvetur aðila til að semja um hótelveginn
Skaftárhreppur styður hóteluppbyggingu á jörðinni Orustustöðum og hefur skipulagt nýjan veg mun fjær þeim nágrönnum sem verða fyrir mestu ónæði. Sveitarstjórinn kveðst vænta þess að deiluaðilar leysi málið sjálfir með samningum.

Kanna hvort eldspúandi dreki geti brætt göt á íslensk fjöll
Tveir ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa undirritað viljayfirlýsingu við fulltrúa bandaríska fyrirtækisins EarthGrid um möguleika á notkun svokallaðrar kyndilborunar, eða plasma-borunar, við gerð jarðganga á Íslandi. Jarðgöng fyrir umferð og lagnagöng fyrir vatnsveitur og rafveitur eru meðal þeirra verkefna sem talin eru upp í viljayfirlýsingunni.

Hótelsmíði í uppnámi vegna nágrannadeilu um vegagerð
Tíu milljarða króna hóteluppbygging í landi Orustustaða austan Kirkjubæjarklausturs er í uppnámi vegna nágrannadeilna um lagningu vegar að hótelinu. Ítrekað hefur soðið upp úr og lögregla verið kölluð til.

Skoða perlur Íslands með því að hoppa út úr flugvél
Ferðamenn velja sér mismunandi ferðamáta til að skoða Ísland. Einn sá óvenjulegasti er að sjá landið svífandi í fallhlíf.

Grímseyingar þoka smíði kirkjunnar af stað að nýju
Grímseyingar vonast til að góður stuðningur velgjörðarmanna verði til þess að þeir geti haldið áfram smíði nýrrar kirkju í stað þeirrar sem brann en verkið hefur legið niðri vegna fjárskorts. Stefnt er að hjónavígslu í næsta mánuði.

Besti veiðitíminn framundan en súrt að stutt geti verið í stoppið
Strandveiðar í Grímsey eru fyrst núna að hefjast fyrir alvöru, sjö vikum eftir að strandveiðitímabilið hófst. Trillusjómaður segir þorskinn yfirleitt ekki ganga á Grímseyjarmið fyrr en um miðjan júnímánuð.

Búrfellslundur settur í bið og óvissa um Hvammsvirkjun
Uppbygging vindorkuvera hérlendis er í uppnámi eftir að Skeiða- og Gnúpverjahreppur setti Búrfellslund, sem Landsvirkjun áformar, í biðstöðu. Sveitarstjórnin hyggst með þessu knýja á um að sveitarfélög og nærsamfélög fái hærri tekjur af orkuverum.

Sigurður Ingi svarar fyrir ákvörðun um Skerjafjörð
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra er meðal ræðumanna á fundi sem Flugmálafélag Íslands efnir til nú síðdegis um stöðu Reykjavíkurflugvallar. Í fundarboði segir að farið verði yfir núverandi stöðu og hvert stefnan sé sett varðandi flugvöllinn. Fundinum verður streymt beint á Vísi.

Fjögur ný hótel rísa undir Eyjafjöllum og á Hvolsvelli
Fjögur ný hótel eru í undirbúningi í Rangárþingi eystra með gistirými fyrir samtals um tvöþúsund manns. Þrjú hótelanna yrðu undir Eyjafjöllum og eitt á Hvolsvelli.

Svandís með dóma á bakinu fyrir ólögmæta stjórnsýslu
Efasemdir hafa vaknað um lögmæti ákvörðunar Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um að stöðva hvalveiðar. Þannig hefur Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur efast um réttmæti hennar og sagt að hún standist mögulega ekki kröfur um meðalhófsreglu. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur lýst samskonar efasemdum.