Á Brunasandi austan Kirkjubæjarklausturs, með útsýni til Lómagnúps og Öræfajökuls, undirbýr Hreiðar Hermannsson tvöhundruð herbergja hótel og er þegar búinn að taka hótelíbúðir og starfsmannahús í notkun. Deila við nágranna veldur því að ekki hefur fengist leyfi fyrir varanlegri vegtengingu en áfram var fjallað um málið í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.

„Ég kaupi jörðina 2012, sko, og síðan er þetta búið að ganga í þessu, að fá skipulagið samþykkt og allt svoleiðis. Og öll skilyrði eru fyrir hendi. Það stórvantar hérna stórhótel,“ segir Hreiðar.
Sveitarstjórinn Einar Kristján Jónsson segir Skaftárhrepp hafa gert allt sem í hans valdi stendur til að tryggja að af rekstrinum geti orðið.

„Það er samþykkt deiliskipulag af þessum framkvæmdum og það er ekkert sem stoppar hjá sveitarfélaginu í því,“ segir sveitarstjórinn.
Hreiðar lítur svo á að sveitarfélaginu beri að tryggja bráðabirgðaveg.

„Þau eiga að laga veginn og byggja hann upp - það stendur í gögnunum – þannig að hann sé fær og þoli alla þungaumferð þar til verður byggður upp nýr vegur fimmhundruð metrum sunnar af hálfu Vegagerðarinnar,“ segir Hreiðar.
„Það er ekki sveitarfélagið. Það er ekki hlutverk þess að leggja veg,“ segir Einar Kristján.

Umdeildur vegslóði um land Hraunbóls er núna notaður, gegn vilja eigenda Hraunbóls, til að komast til Orustustaða. Mögulegar vegtengingar til austurs mættu einnig andstöðu landeigenda þar og var niðurstaða sveitarfélagsins sú að framtíðarvegtenging yrði um land Hraunbóls en þó mun fjær húsum á jörðinni.

En gætu eigendur Hraunbóls sætt sig við þetta nýja vegstæði?
„Jaa.. - það er betri sátt. En við eigum eftir að íhuga það hvernig það endar þegar verður farið fram á það. Því hann hefur aldrei rætt það við landeigendur hvort að hann megi hefja framkvæmdir á deiliskipulagða veginum.
En það er það sem Vegagerðin hefur beðið um, að hann hafi landeigendur á sínu bandi. En það hefur hann aldrei haft,“ segir Þuríður Helga Benediktsdóttir, eigandi Hraunbóls.

Sveitarstjórinn hvetur aðila til að nálgast málið með hagsmuni allra í huga og fara samningaleið.
„Ég reikna fastlega með því að það sé hægt að semja um þetta eins og hvað annað. En menn verða náttúrlega að byrja á því að setjast niður og semja um hlutina og láta á það reyna hvort það gangi eða ekki.
Ég vænti þess, ef menn setjast bara yfir þetta og skoða þetta með opnum huga, þá væri hægt að ná samkomulagi með einhverjum hætti,“ segir Einar Kristján Jónsson, sveitarstjóri Skaftárhrepps.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Hér má sjá myndband Stracta af fyrirhuguðu hóteli: