Klippari

Máni Snær Þorláksson

Nýjustu greinar eftir höfund

Mannanafnanefnd samþykkir Bubba: „Ég er bara Bubbi“

Eiginnafnið Bubbi er á meðal þeirra nafna sem mannanafnanefnd samþykkti á dögunum. Einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar og um leið þekktasti Bubbi landsins segir þetta þó ekki breyta neinu fyrir sér.

Fjölgar mest í Siðmennt og Kaþólsku kirkjunni

Meðlimum þjóðkirkjunnar hefur fækkað um 706 síðan í síðastliðnum desember. Fjölgun meðlima í trú- og lífsskoðunarfélagi hefur verið mest í Siðmennt, næst mest í Kaþólsku kirkjunni og svo Ásatrúarfélaginu. 

Frjósemi aldrei verið minni á Íslandi

Frjósemi hefur aldrei verið minni á Íslandi síðan mælingar hófust árið 1853. Frjósemistölur eru langt undir viðmiðum um þá frjósemi sem þarf til að viðhalda mannfjölda til lengri tíma litið. Frjósemi hefur ekki náð því viðmiði í yfir tíu ár.

„Mér finnst þetta náttúrulega alveg rosalega mikið“

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir starfsmannafjölda ráðuneytanna vera mikinn. Hún gagnrýnir að hið opinbera keppi um starfsfólk við markað og bjóði betri kjör. Ekki sé hægt að horfa fram hjá því að báknið hafi blásið út á vakt Sjálfstæðisflokksins.

Leituðu að hring látinnar frænku í Reykja­víkur­­tjörn

Maður á þrítugsaldri tapaði hring sínum er hann var að gefa öndunum í Reykjavíkurtjörn brauð. Kallað var eftir aðstoð björgunarsveitar til að leita að hringnum. Kafarar sem áttu lausa stund mættu á vettvang en leitin bar ekki árangur.

Hringbraut lokað á morgun og hinn

Hringbraut verður lokað vegna framkvæmda á morgun og hinn. Farið verður í að fræsa hluta götunnar þessa tvo daga. Framkvæmdirnar munu standa yfir frá klukkan 18:30 til 23:00 báða dagana.

Ó­vissu­stigi vegna jarð­skjálfta í Mýr­dals­jökli af­lýst

Óvissustigi vegna jarðskjálfta í Mýrdalsjökli hefur verið aflýst. Síðastliðinn fimmtudag hófst kröftug jarðskjálftahrina á svæðinu og fór fólk þá að velta því fyrir sér hvort Katla væri byrjuð að rumska. Hrinan gekk þó hratt yfir og var að mestu yfirstaðin síðar sama dag.

Stálu tvö hundruð skóm en geta ólíklega notað þá

Óprúttnir þjófar hlupu á sig er þeir stálu rúmlega tvö hundruð skóm í borginni Huancayo í Perú á dögunum. Tjónið er sagt vera mikið en það er þó ólíklegt að þjófarnir græði mikið á skónum sem þeir stálu.

Sér­stakur skíða­vetur en þróunin upp á við

Framkvæmdastjóri skíðasvæðanna á höfuðborgarsvæðinu segir síðasta vetur hafa verið sérstakan fyrir skíðasvæðin. Lítill snjór hafi komið í Bláfjöll og ekki tókst að vígja formlega nýju lyfturnar á svæðinu.

Sjá meira