Fréttamaður

Margrét Björk Jónsdóttir

Margrét Björk er fréttamaður á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Breyti­leg vind­átt og allt að tíu stiga frost

Búast má við breytilegri átt vindátt á landinu í dag, yfirleitt fimm til þrettán metrum á sekúndu. Dálítið él verð norðvestantil og einnig suðaustanlands síðdegis, annars úrkomulítið. Frost 0 til 10 stig, en hiti kringum frostmark syðst.

„Nýr og breyttur veru­leiki sem við ætlum að lifa með“

Bláa lónið opnaði á ný í morgun eftir vikulokun. Framkvæmdastjóri sölu- rekstrar og þjónustu Bláa Lónsins.s segir enga ónotatilfinningu á meðal starfsfólks né gesta. Nýr veruleiki blasi við og ljóst að Bláa lónið muni koma til með að opna og loka á víxl næstu árin. 

Geldingar- og ó­frjó­semis­að­gerðir á kosta­kjörum

Vegna mikils fjölda heimilislausra katta í athvörfum landsins, hyggst Dýraspítalinn í Víðidal bjóða upp á „geldingar- og ófrjósemisaðgerðadaga“ í næstu viku. Markmiðið er að reyna að sporna við fjölgun katta.

„Tel ekki til­efni til að svara þessari Facebook færslu sér­stak­lega“

Einar Þorsteinsson, nýr borgarstjóri, segir örla á misskilningi hjá utanríkisráðherra ef hann telji borgina veita leyfi til mótmæla á Austurvelli. Það sé stjórnarskrárvarinn réttur fólks að mótmæla. Hins vegar sé enginn bragur á því að Austurvöllur sé gerður að tjaldbúðum vikum eða mánuðum saman. Aðrir hópar hafa óskað eftir því að fá að reisa samskonar tjaldbúðir og Palestínumenn.

„Bjarni hefur aldrei gengið svona langt í ras­isma“

Færsla Bjarna Benediktssonar, þar sem hann gagnrýnir tjaldbúðir mótmælenda við Austurvöll, hefur vakið mikil og hörð viðbrögð. Margir gagnrýna ummæli Bjarna sem þó hafa einnig hlotið nokkurn meðbyr. 

Breiðfylkingin og SA funda hjá ríkis­sátta­semjara

Samninganefnd breiðfylkingar stéttarfélaga kemur saman til fundar klukkan 11 til að ræða um næstu skref í harðnandi kjaradeilu við Samtök atvinnulífsins. Klukkan 13 fundar samninganefndin með SA hjá ríkissáttasemjara. Viðræðurnar eru komnar í uppnám, og líklegt þykir að deilunni verði formlega vísað til ríkissáttsemjara. 

Hlýrra í dag en kólnar á ný á morgun

Hlýrra verður á landinu í dag en undanfarna daga og hiti í kringum frostmark. Spáð er austan átt, 10-18 metrum á sekúndu sunn­an­til með slyddu eða rign­ingu, en mun hæg­ari norðan­lands og snjó­koma.

Könnun meðal Grind­víkinga vegna stöðu hús­næðis­mála

Bæjarstjórn Grindavíkur biðlar til þeirra Grindvíkinga sem búsettir voru í Grindavík 10. nóvember 2023 að svara rafrænni könnun. Tilgangurinn með könnuninni er að afla nákvæmra upplýsinga um aðstæður íbúa til lengri og skemmri tíma og undirbyggja þannig ákvarðanatöku um húsnæðismál Grindvíkinga.

Fjórir bílar skemmdust í á­rekstri á Granda

Harður árekstur varð á Grandagarði í Reykjavík í dag þegar bíl var keyrt í veg fyrir annan. Bíllinn kastaðist á tvo aðra bíla og fór utan í hús. Engin slys urðu á fólki. 

Sjá meira