Drápu 93 við að bjarga gíslunum fjórum Ísraelski herinn frelsaði í dag fjóra gísla úr haldi Hamas í Nuseirat-borg á miðlægu Gasasvæðinu. Samhliða fótgönguliðsáhlaupinu voru gerðar umfangsmiklar loftárásir sem leiddu til dauða 93 Palestínumanna að sögn yfirvalda á svæðinu. 8.6.2024 16:58
Áhlaupinu lokið en annað ekki útilokað Í nótt, aðfaranótt laugardags, tók að auka á hraunstreymið norður fyrir Sýlingarfell og klukkan hálf ellefu í morgun náði hrauntungan veginum rétt norðan við varnargarðinn. Álykta má að áhlaupinu sé lokið en búast má við að það mjatlist eitthvað áfram. 8.6.2024 15:54
Árásarmaðurinn segist ekkert hafa á móti Mette Maðurinn sem sló Mette Frederiksen í Kaupmannahöfn í gærkvöldi segist ekkert hafa á móti henni og segir að hún sé „mjög góður forsætisráðherra.“ Það hafi jafnramt komið honum „skemmtilega á óvart“ að sjá hana á götunni. 8.6.2024 15:32
Flæmskur aðskilnaðarflokkur sækir í sig veðrið Í dag ganga Belgar til þingkosninga ásamt því að kjósa til Evrópuþingsins. Skoðanakannanir benda til þess að flokkur sem berst fyrir því að leysa landið upp muni bæta talsverðu við sig. 8.6.2024 15:12
Færeyskir atvinnurekendur segjast hafðir að spotti Atvinnurekendur í Færeyjum segjast hafðir að háði og spotti af verkalýðsfélögum þar í landi. Freistað var að binda enda á margra vikna verkfall á fundi með sáttasemjara í gær en án árangurs. Verkalýðsfélögin segjast tilbúin að auka þrýstingin en ástandið versnar með hverjum deginum sem líður. 8.6.2024 11:57
Fjórir gíslar frelsaðir á Gasa Fjórum gíslum hefur verið bjargað lifandi á Gasasvæðinu. Um ræðir þrjá karlmenn og eina konu sem voru tekin í gíslingu á tónlistarhátíðinni Nova þegar Hamasliðar réðust inn í Ísrael sjöunda október á síðasta ári. 8.6.2024 11:28
Vendingar í leit að sjónvarpslækni Upptaka öryggismyndavélar virðast sýna hinn 67 ára Michael Mosley, frægan sjónvarpslækni, spóka sig í bænum Pedi á grísku eyjunni Symi en hans hefur verið leitað frá því á miðvikudaginn. 8.6.2024 10:45
Land er hætt að síga í Svartsengi Aflögunarmælingar undanfarna daga sýna að landsig hafi stöðvast í Svartsengi og því líklegt að flæði kviku frá dýpi inn í kvikusöfnunarsvæðið sé nú sambærilegt því sem er á yfirborði í Sundhnúksgígaröðinni. 7.6.2024 16:45
Mótmælendur höfða mál á hendur ríkinu Daníel Þór Bjarnason er í hópi átta mótmælenda tók þátt í mótmælum á vegum samtakanna Ísland-Palestínu þann 31. maí síðastliðinn sem hafa ákveðið að leita réttar síns vegna þess sem þau kalla ólögmætrar og óhóflegrar valdbeitingar lögreglunnar. Undirbúningur er hafinn á höfðun dómsmáls á hendur embættis lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 7.6.2024 16:19
Koma upp viðbragðshóp vegna áhrifa kuldakastsins Settur hefur verið á laggirnar sérstakur viðbragðshópur á vegum stjórnvalda vegna erfiðleika sem skapast hafa í landbúnaði vegna kuldatíðar undanfarið. Í honum sitja fulltrúar matvæla- og innviðaráðuneyta, Bændasamtakanna, Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins, Almannavarna og lögregluembættana á Norðurlandi vestra og eystra. 7.6.2024 14:21