Sigríður Á. Andersen varð Íslandsmeistari Sigríður Á. Andersen, lögmaður og fyrrverandi dómsmálaráðherra, hreppti í dag Íslandsmeistaratitil í í sínum þyngdarflokki frá fimmtíu til sextíu ára á Íslandsmóti Kraftlyftingasambandsins í dag. 5.5.2024 16:18
Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Halla Hrund Logadóttir forsetaframbjóðandi var enn og aftur innt eftir svari við því hvort ráðherrar hafi beitt hana þrýstingi í starfi hennar sem orkumálastjóri. Hún vék sér frá beinu svari og sagði að það væri ekki hlutverk forseta að útlista einstaka samræður. Þó sagði hún að ólíkir aðilar úr stjórnmálum, viðskiptalífinu og hagaðilasamtökum hafi eðlilega komið sínu á framfæri við sig. 5.5.2024 15:59
Gylfi og Alexandra eiga von á barni Knattspyrnumaðurinn Gylfi Sigurðsson og verslunareigandinn Alexandra Helga Ívarsdóttir eiga von á öðru barni. 5.5.2024 14:46
„Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóri, segir ekkert tortryggilegt við samninga borgarinnar við olíufélögin um að greiða ekki innviðagjald eða byggingargjald á reitum þar sem borgaryfirvöld vilja að rísi íbúabyggð. 5.5.2024 14:36
Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Landssamband Ungmennafélaga og JCI á Íslandi bjóða forsetaframbjóðendum að mæta ungu fólki í Iðnó kl. 14:00 þann 5. maí. Efstu fimm frambjóðendum var boðið til samtals við ungt fólk. Í pallborðinu mætast Baldur Þórhallsson, Halla Hrund Logadóttir, Halla Tómasdóttir og Jón Gnarr. 5.5.2024 14:15
Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir að, þó Ísraelsmenn séu tilbúnir til þess að gera hlé á átökunum til að Hamasliðar afhendi þá gísla sem enn eru í þeirra haldi, komi það ekki til greina að binda endanlegri enda á átökin. 5.5.2024 13:17
Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, segir að öflugt umbótastarf í vinnuanda á skrifstofunni hafa gengið vel og að félagið sé á réttri leið. Óánægju hefur gætt meðal stafsmanna félagsins, meðal annars með framgöngu Þórarins. 5.5.2024 12:21
Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Niðurstöður liggja fyrir í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum í Englandi og Wales í öllu nema einu kjördæmi og vann Verkamannaflokkurinn mikinn sigur. Flokkurinn bætti við sig 180 sveitarstjórnarsætum og vann meirihluta í átta stjórnum. 5.5.2024 10:11
Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Lögregla var kölluð út til verslunar Krónunnar í Skeifunni um klukkan fjögur síðdegis eftir að maður hafði slegið til starfsmanns verslunarinnar sem meinaði honum aðgang að búðinni, auk þess að hafa bitið annan viðskiptavin. 4.5.2024 17:04
„Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir forsetaframbjóðandi skrifaði harðorða færslu á síðu sína á Facebook í dag þar sem hún skaut föstum skotum á svokallaða „áróðursmaskínu Íslands“ og það sem hún kallar „skrímsladeildina.“ Hún fer einnig ófögrum orðum um umfjöllun Stefáns Einars Stefánssonar, blaðamanns Morgunblaðsins, í aðdraganda forsetakosninganna. 4.5.2024 16:44