Rússar segja sig úr Barentsráðinu Yfirvöld í Rússlandi hafa ákveðið að segja sig úr Barentsráðinu og saka nágranna sína um að hafa gert ráðið óstarfhæft. Rússar segja Finna ekki hafa viljað afhenda þeim forsæti ráðsins. 18.9.2023 16:57
Russell Brand kærður til lögreglu Lögreglunni í Lundúnum hefur borist kæra gegn Russel Brand, breskum grínista. Kona kærði hann fyrir kynferðisbrot sem á að hafa átt sér stað í borginni árið 2003. Breskir fjölmiðlar birtu um helgina sögu fjögurra kvenna sem sökuðu hann um nauðgun, kynferðislega áreitni og andlegt ofbeldi yfir sjö ára tímabil, eða frá 2006 til 2013. 18.9.2023 16:14
Umdeildum fangaskiptum lokið Umdeild fangaskipti milli Bandaríkjamanna og Írana hafa átt sér stað. Fimm manns sem voru í fangelsi í Íran hefur verið sleppt í Katar. Yfirvöld í Íran hafa ítrekað verið sökuð um að handsama fólk af Vesturlöndum og nota það sem vogarafl í samskiptum við erlenda ráðamenn. 18.9.2023 15:27
Kreml tekur yfir stjórn Wagner í Mið-Afríkulýðveldinu Ráðamenn í Mið-Afríkulýðveldinu segja ríkisstjórn Rússlands hafa tekið yfir stjórn rúmlega þúsund málaliða Wagner group þar í landi. Málaliðarnir hafa haft viðveru í Mið-Afríkulýðveldinu í um fimm ár en lengst af voru þeir undir stjórn rússneska auðjöfursins Jevgení Prígósjín. 18.9.2023 14:43
Repúblikanar herða tökin í mikilvægum ríkjum Repúblikanar í Wisconsin og Norður-Karólínu í Bandaríkjunum vilja breyta því hvernig kosningum er stjórnað í ríkjunum. Bæði ríkin eru svokölluð sveifluríki og þykja því gífurlega mikilvæg þegar kemur að forsetakosningunum á næsta ári. 18.9.2023 11:54
Leitin að sökudólgum hafin í Líbíu Fimm dögum eftir að flóð léku íbúa norðausturhluta Líbíu grátt eru lík enn að finnast á víð og dreif. Leitin að sökudólgum er hafin og Sameinuðu þjóðirnar segja að hægt hefði verið að koma í veg fyrir hamfarirnar. 14.9.2023 23:54
Borgar ekki fjölskyldunum sem hann hrellti en spreðar peningum Alex Jones, samsæringur, hefur ekki greitt fjölskyldum barna sem myrt voru í Sandy Hook árásinni árið 2012 krónu. Hann spreðar þó peningum sínum og eyddi til að mynda 93 þúsund dölum í júlí en það samsvarar um 12,8 milljónum króna. Jones var í fyrra dæmdur til að greiða fjölskyldunum tæplega einn og hálfan milljarð dala í skaðabætur. 14.9.2023 22:28
Óttast að allt logi í verkföllum eftir áramót Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, óttast að verkföll verði tíð á næsta ári og að stjórnvöld þurfi að koma að gerð kjarasamninga. Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífisins, segir að semja þurfi af skynsemi. 14.9.2023 20:43
Bjarni Fel er látinn Bjarni Felixson, fyrrverandi landsliðsmaður í fótbolta og íþróttafréttamaður, er látinn. Bjarni, sem var þekktur sem Rauða ljónið, var 86 ára gamall og lést í Danmörku, þar sem hann var að sækja jarðarför vinar síns. 14.9.2023 18:24
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Matvælastofnun hefur stöðvað tímabundið veiðar á hvalveiðiskipinu Hvalur 8 vegna alvarlegra brota á velferð dýra. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við forstjóra MAST um málið í beinni. 14.9.2023 18:00