Rautt í Kauphöllinni Dagurinn var að mestu rauður í Kauphöllinni í dag, þar sem virði flestra hlutafélaga lækkaði. Icelandair tók mesta dýfu en OMXI10 úrvalsvísitalan lækkaði um 0,85 prósent. 14.9.2023 17:49
Eiginkona El Chapo laus úr steininum Emma Coronel Aispuro, eiginkona mexíkóska fíkniefnabarónsins víðfræga, Joaquín Guzmán, eða El Chapo, er laus úr fangelsi í Bandaríkjunum. Hún lauk afplánun þriggja ára fangelsisdóms eftir að hún játaði þrjú brot árið 2021 sem sneru að því að hún hefði hjálpað eiginmanni sínum að reka glæpaveldi hans. 14.9.2023 00:02
Færa niður afkomuspá Uppfærð afkomuspá Icelandair gerir ráð fyrir minni hagnaði á árinu en áður var búið að gera. Farþega- og leiguflugsstarfsemi félagsins skilar betri rekstarniðurstöðu en í fyrra en fraktstarfsemin hefur verið erfið. 13.9.2023 22:29
Skemmdu herskip og kafbát með stýriflaugum Úkraínski herinn skemmdi í nótt rússneskt herskip og kafbát sem voru í slipp í Sevastopol á Krímskaga. Það gerðu Úkraínumenn með Storm Shadow stýriflaugum en árásin beindist að höfuðstöðvum Svartahafsflota Rússa. 13.9.2023 22:00
Ríkisstjórnin sé upptekin við innbyrðis rifrildi Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, telur ríkisstjórnina ekki hafa notað kjörtímabilið til góðs fyrir fólkið í landinu. Mikil orka fari í innbyrðis rifrildi og stjórnmálin snúist um eitthvað annað en það sem brennur á fólki. 13.9.2023 20:29
Babe Patrol: Spila Warzone með áhorfendum Stelpurnar í Babe Patrol snúa aftur í kvöld og nú fá áhorfendur að spila með þeim. Í kvöld ætla stelpurnar að spila Warzone með áhorfendum, halda spurningakeppni og gefa heppnum áhorfendum vinninga. 13.9.2023 19:31
Kim heitir Pútín fullum stuðningi Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, heitir Vladimír Pútín, forseta Rússlands, „fullum og skilyrðislausum“ stuðningi. Leiðtogarnir einangruðu funduðu í rúma fjóra tíma í dag og eru þeir sagðir hafa rætt samvinnu á sviði hernaðar og efnahags. 13.9.2023 18:18
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Búist er við miklum átökum á Alþingi í vetur þegar ríkisstjórnin leggur fram mörg umdeild frumvörp. Þingmenn stjórnarandstöðunnar spá því að efnahagsmálin verði umfangsmikil og treysta ekki fjármálaráðherra til að selja Íslandsbanka. Ríkisstjórnin er sögð rúin trausti. 13.9.2023 18:14
Á flótta í tæpar tvær vikur og nú vopnaður Dæmdur morðingi sem gengið hefur laus í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum í tæpar tvær vikur er vopnaður. Hann er sagður hafa fundið riffil í skúr sem hann fór inn í. 13.9.2023 00:00
Nýir símar, úr og heyrnartól Forsvarsmenn Apple kynntu í dag nýja kynslóð snjallsíma, heyrnartóla og snjallúra á kynningu í Cupertino í Bandaríkjunum. Nýr iPhone, sem er nú búinn USB-C hleðslutengi, leit dagsins ljós, í fjórum mismunandi útgáfum. 12.9.2023 23:16