Kona drepin af birni Grábjörn virðist hafa banað konu í Yellowstone þjóðgarðinum í Bandaríkjunum um helgina. Lík konunnar fannst á laugardaginn, nærri vinsælli gönguleið en atvikið er enn til rannsóknar. 24.7.2023 10:25
Fuglinn Larry látinn flakka fyrir X Elon Musk, auðugasti maður heims, hefur opinberaði nýtt vörumerki Twitter, sem þegar er byrjað að birtast á internetinu. Twitter mun verða að X og vörumerkið er að breytast í samræmi við það. Fuglinn Larry, sem hefur fylgt Twitter um árabil, mun fljúga sína eigin leið. 24.7.2023 09:15
Saka Úkraínumenn enn um hryðjuverkaárásir Varnarmálaráðuneyti Rússlands hefur sakað Úkraínumenn um hryðjuverkaárás í Moskvu í morgun. Ráðuneytið segir að árás með tveimur drónum hafi verið stöðvuð og að þeir hafi brotlent í borginni en borgarstjóri Moskvu segir tvær byggingar hafi orðið fyrir skemmdum en engan hafi sakað. 24.7.2023 08:11
Ljónið sennilega svín Lögreglan í Berlín og Brandenburg er hætt að leita að ljóni í suðurhluta borgarinnar og úthverfum hennar. Líklegt þykir að ljón hafi ekki gengið laust heldur hafi hræddir íbúar séð stórt villisvín. 21.7.2023 11:44
Girkin handtekinn fyrir að gagnrýna Pútín Igor Girkin, fyrrverandi yfirmaður í Leyniþjónustu Rússlands (FSB) og fyrrverandi leiðtogi aðskilnaðarsinna í Dónetsk í Úkraínu, var handtekinn í Moskvu í morgun. Girkin var einnig í fyrra dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir aðkomu hans að því þegar MH17, flugvél Malasyia Airlines, var skotin niður yfir Úkraínu árið 2014. 21.7.2023 11:26
Hafa enn ekki fundið ljónið Lögreglan í Berlín og Brandenburg hefur enn ekki fundið ljónið sem talið er að gangi lausum hala í suðurhluta borgarinnar og úthverfum. Til stendur að auka viðbúnað og umfang leitarinnar í dag. 21.7.2023 07:44
Byrjaðir að nota klasasprengjur Úkraínumenn eru byrjaðir að skjóta klasasprengjum að varnarlínum Rússa í suður- og austurhluta Úkraínu. Þá leggja bakhjarlar Úkraínu áherslu á að laga hergögn Úkraínumanna sem skemmast í þeim hörðu átökum sem eiga sér stað í landinu. 20.7.2023 14:10
Sagði „Æi, fjandinn hafi það“ og skaut 95 ára konu með rafbyssu Saksóknarar í Ástralíu segja lögregluþjóna sem beittu rafbyssu gegn 95 ára gamalli konu með elliglöp hafa beitt óhóflega miklu valdi. Konan, sem hét Clare Nowland, féll í gólfið og höfuðkúpubrotnaði þegar hún var beitt rafbyssunni. Þá dó hún nokkrum dögum síðar. 20.7.2023 11:03
Sækir um skilnað frá grunuðum raðmorðingja Íslensk kona sem gift er grunuðum raðmorðingja hefur sótt um skilnað. Ása Guðbjörg Ellerup er gift Rex Heuermann en hann hefur verið ákærður fyrir að myrða þrjár konur og er grunaður um að hafa myrt þá fjórðu í „Gilgo Beach morðunum“ svokölluðu. 20.7.2023 10:11
Kveiktu í sendiráði Svía í Írak Nokkur hundruð menn ruddust inn í sendiráð Svíþjóðar í Bagdad í Írak í morgun og kveiktu í ráðuneytinu. Ráðist var á sendiráðið eftir vegna skipulagðra mótmæla í Svíþjóð þar sem til stendur að brenna eintak af Kóraninum fyrir utan sendiráð Íraks í Stokkhólmi í dag. 20.7.2023 09:05