Ræddu samruna Warner og Paramount David Zaslav og Bob Bakish, æðstu yfirmenn Warner Bros. Discovery og Paramount funduðu í þessari viku um mögulegan samruna fyrirtækjanna tveggja. Forsvarsmenn Paramount vilja selja og forsvarsmenn Warner Bros leita að nýjum samruna. 21.12.2023 12:03
„Feiti Leonard“ sendur til Bandaríkjanna Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa sleppt Alex Saab, fjármálamanni Nicolas Maduro, forseta Venesúela, úr fangelsi. Í skiptum var maður sem gengur undir nafninu „Feiti Leonard“ sendur til Bandaríkjanna en er verktaki sem sakfelldur var í fyrra vegna aðildar hans að einhverju stærsta mútuhneyksli sjóhers Bandaríkjanna. 21.12.2023 10:40
Brenndu kross og hótuðu nágrönnum sínum Starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) eru með par frá Suður-Karólínu til rannsóknar eftir að þau kveiktu í krossi á lóð þeirra í síðasta mánuði. Hinu megin við götuna býr eldra þeldökkt fólk og beindist brennan að þeim en hjónin birtu myndband af brennunni og segjast ítrekað yfir orðið fyrir hótunum frá parinu sem hefur verið handtekið. 21.12.2023 08:54
Bestu leikir ársins: Ævintýraleikir fyrirferðarmiklir á góðu ári Árið 2023 var nokkuð gott þegar kemur að tölvuleikjum. Ansi margir góðir leikir litu dagsins ljós og nokkrir leikir sem fengu áður misjafnar móttökur bættu stöðu sína töluvert. 21.12.2023 08:00
Grínaðist með gosið og nafn Þorvalds Þórðarsonar „Eins og alltaf, byrjum við á stóru fréttinni frá Íslandi.“ Þetta sagði Stephen Colbert, stjórnandi The Late Show, í upphafi þáttar síns á CBS í gærkvöldi. Þar ræddi hann á léttum nótum um eldgosið á Reykjanesi og nafn Þorvalds Þórðarsonar. 20.12.2023 13:42
Herða reglur ESB um farand- og flóttafólk Leiðtogar Evrópusambandsins hafa komist að samkomulagi um að herða reglur varðandi farand- og flóttafólk í Evrópu. Samkomulagið, sem er til komið eftir áralangar viðræður, mun hafa mikil á það hvernig unnið er úr komu farand- og flóttafólks til heimsálfunnar. 20.12.2023 13:01
Margir á vergangi í nístingskulda eftir jarðskjálfta Skjálftinn var 6,2 stig og skall á skömmu fyrir miðnætti á mánudagskvöld. Íbúar Gansu og Qinghai-héraða í norðvesturhluta Kína flúðu heimili sín út í kuldann sem herjar nú á fólk í svæðinu en skjálftinn olli skemmdum á húsum, vegum, orkuinnviðum og olli skriðum og aurskriðum. 20.12.2023 08:48
Svipuð kvika en mögulega þróaðri Helga Kristín Torfadóttir eldfjallafræðingur, er komin með sýni úr glænýju hrauninu á Reykjanesi. Hún er ein fræðinga frá Háskóla Íslands sem freistuðu þess að finna sýni úr kvikunni í dag, hvort sem það var fljótandi eða ekki. 19.12.2023 16:52
Halda að sér höndum vegna skotfæraleysis Úkraínskir hermenn standa frammi fyrir skorti á skotfærum fyrir stórskotalið og hafa þurft að hætta við árásir og aðrar hernaðaraðgerðir vegna þessa skorts. Úkraínskur herforingi segir að rekja megi skortinn til samdráttar í hernaðaraðstoð frá bakhjörlum Úkraínu og að hann eigi mest við skotfæri fyrir vestræn stórskotaliðsvopn. 19.12.2023 11:05
Geimárið 2023: Vísindastörf í geimnum ná nýjum hæðum Eins og undanfarin ár hefur margt átt sér stað í geimnum og í geimvísindum á jörðinni. Geimskotum hefur farið hratt fjölgandi á undanförnum árum og mun þeim fjölga áfram. 19.12.2023 08:00