Krefjast þess að Thomas komi ekki að máli Trumps Sífellt fleiri þingmenn Demókrataflokksins krefjast þess að hæstaréttardómarinn Clarence Thomas komi ekki að úrskurði Hæstaréttar varðandi mögulega friðhelgi Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Er það vegna þess að eiginkona Thomas tók þátt í tilraunum Trumps til að snúa úrslitum forsetakosninganna 2020. 18.12.2023 16:50
Sisi vinnur þriðja kjörtímabilið með miklum yfirburðum Abdel Fattah el-Sisi, forseti Egyptalands, vann yfirburðasigur í forsetakosningum og tryggði sér þriðja kjörtímabilið. Hann fékk 89,6 prósent atkvæða en mótframbjóðendur Sisi eru lítið sem ekkert þekktir í Egyptalandi. 18.12.2023 15:20
Hafa ítrekað framleitt umframorku með kjarnasamruna Ári eftir að bandarískir vísindamenn náðu að framleiða umframorku með kjarnasamruna á tilraunastofu í fyrsta sinn, hefur þeim ítrekað tekist að gera það aftur. Til stendur að fjölga rannsóknarstöðvum í Bandaríkjunum þar sem unnið er að orkuframleiðslu með kjarnasamruna. 18.12.2023 14:06
Kvarta yfir „forsýningu“ á kjarnorkustyrjöld Langdrægri eldflaug, sem gæti drifið til allra Bandaríkjanna, var skotið á loft frá Norður-Kóreu í morgun. Var þetta annað tilraunaskotið frá einræðisríkinu á nokkrum klukkustundum. 18.12.2023 11:59
Flúði eftir fjársvik og nú talinn njósnari Rússa Jan Marsalek, fyrrverandi rekstrarstjóri þýska greiðslumiðlunarfyrirtækisins Wirecard, er grunaður um að hafa stolið tveimur milljörðum dala úr reikningum fyrirtækisins. Skömmu eftir að ljóst var að peningarnir voru horfnir, í júní 2020, steig Marsalek upp í einkaflugvél í Austurríki og var honum flogið til Belarús. 16.12.2023 14:41
Leynileg Rússamappa hvarf á síðustu dögum Trumps í Hvíta húsinu Mappa sem innihélt leynileg skjöl og gögn um afskipti Rússa af forsetakosningunum í Bandaríkjunum 2016, hvarf á síðustu dögum forsetatíðar Donalds Trump, og hefur ekki fundist enn það dag í dag. Forsvarsmenn leyniþjónusta Bandaríkjanna óttast að sum af best varðveittu leyndarmálum Bandaríkjanna og bandamanna þeirra geti verið opinberuð. 15.12.2023 17:05
Kastaði handsprengjum inn á fjölmennan fund Bæjarfulltrúi sprengdi að virðist þrjár handsprengjur á fjölmennum fundi í ráðhúsi Keretsk-bæjar í vesturhluta Úkraínu í dag. Árásarmaðurinn var sagður hafa dáið og 26 aðrir eru særðir, en lögreglan dró síðar til baka að maðurinn hefði dáið og er hann sagður í alvarlegu ástandi. 15.12.2023 13:39
Verðlaunaplötur úr ýmsum áttum Kraumsverðlaunin voru afhent á Kex í gærkvöldi og í sextánda sinn. Að þessu sinni voru það þau Apex Anima, Elín Hall, Eva808, Neonme, Spacestation og ex.girls sem hlutu verðlaunin, sem veit eru fyrir þær hljómplötur sem þykja skara fram úr á Íslandi. 15.12.2023 11:29
Enn eitt skipið fyrir eldflaug á Rauðahafi Enn eitt flutningaskipið varð fyrir eldflaug á Rauðahafi í gærkvöldi. Eldflauginni mun hafa verið skotið frá yfirráðasvæði Húta í Jemen, eins og öðrum eldflaugum, en eldur kom upp í skipinu þegar eldflaugin hæfði það. 15.12.2023 11:00
Viðhorf Íra til innflytjenda að breytast hratt Írland hefur lengi þótt nokkuð merkilegt fyrir þar sakir að þar hafa fjar-hægri stjórnmálaflokkar aldrei náð fótfestu. Þá hefur írska þjóðin verið stolt af því hvernig tekið er á móti farand- og flóttafólki þar. 14.12.2023 16:40