Auglýsendur áhyggjufullir vegna ummæla Musks og gyðingahaturs Forsvarsmenn IBM, sem er einn af stærri auglýsendum á samfélagsmiðlinum X (áður Twitter), hættu öllum auglýsingum þar. Það var eftir að auðjöfurinn Elon Musk, sem keypti Twitter í fyrra, lýsti á miðvikudaginn yfir stuðningi við færslu um að gyðingar ýttu undir hatur á hvítu fólki. Þar var einnig gefið í skyn að gyðingar væru að ýta undir flutninga flótta- og farandfólks. 17.11.2023 14:37
Sagður nota hvert tækifæri til að auðgast persónulega Bandaríski þingmaðurinn George Santos, sem gjarnan er kallaður „lygni þingmaðurinn“ vegna ítrekaðra og umfangsmikilla lyga hans, tilkynnti í gær að hann ætlaði ekki að sækjast eftir endurkjöri í forsetakosningunum á næsta ári. Það gerði hann í kjölfar þess að siðferðisnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings birti harðorða skýrslu um hann. 17.11.2023 13:01
Hermenn sagðir gefast upp í massavís Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, lýsti í dag yfir miklum áhyggjum af sífellt umfangsmeiri átökum í Búrma, eða Mjanmar. Að minnsta kosti tvær milljónir hafa þurft að flýja átökin í landinu þar sem uppreisnarhópum hefur vegnað vel gegn sveitum herforingjastjórnar Búrma. 16.11.2023 23:43
Þrívíddarprentuð Hallgrímskirkja úr málmi á Degi verkfræðinnar Dagur verkfræðinnar verður haldinn í áttunda sinn á morgun. Þar verða haldnir fyrirlestrar um hin ýmsu verkfræðiverkefni og verður Teningurinn veittur. Hann er viðurkenning Verkfræðingafélags Íslands fyrir framúrskarandi verkefni. 16.11.2023 16:05
Dæmd í sjö ára fangelsi vegna límmiða Rússnesk kona hefur verið dæmd í sjö ára fangelsi fyrir að mótmæla innrás Rússa í Úkraínu. Sasha Skochilenko var handtekinn í Pétursborg í apríl 2022, eftir að hún setti límmiða með slagorðum gegn innrásinni yfir verðmerkingar í verslun. 16.11.2023 15:31
Segja íbúum á suðurhluta Gasa nú að flýja Ísraelar hafa varpað dreifimiðum á Gasaströndina þar sem íbúar eru beðnir um að flýja frá hlutum svæðisins. Þykir það til marks um að forsvarsmenn ísraelska hersins ætli að útvíkka hernaðinn á jörðu niðri en hundruð þúsunda Palestínumanna hafa flúið frá norðurhluta Gasastrandarinnar til suðurhlutans. 16.11.2023 13:03
Grænt ljós á aðra tilraun með stærstu eldflaug heims Flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum hafa gefið starfsmönnum SpaceX grænt ljós á nýtt tilraunaskot geimfarsins Starship þar sem nota á stærstu eldflaug heims til að koma geimfarinu næstum því út í geim. Fyrsta tilraunaskotið sem framkvæmd var í apríl misheppnaðist, þegar bæði eldflaugin og geimfarið sprungu í loft upp. 16.11.2023 10:45
Hafa náð fótfestu á austurbakka Dnipro Úkraínskir landgönguliðar vinna nú hörðum höndum að því að stækka fótfestu þeirra á austurbakka Dnipro-ár í Kherson-héraði. Harðir bardagar hafa geisað á svæðinu en Úkraínumenn vilja koma bryndrekum yfir ánna. 15.11.2023 22:42
Föruneyti Pingsins: Heimurinn bjargar sér ekki sjálfur Föruneyti Pingsins heldur ferð sinni um Sverðsströndina áfram í kvöld. Um er að ræða nýjan þátt hjá GameTíví þar sem þau Marín, Aðalsteinn, Arnar og Melína spila sig í gegnum Baldur's Gate 3. 15.11.2023 19:31
Vilja gelda afkomendur flóðhesta Escobars Yfirvöld í Kólumbíu eru byrjuð að gelda flóðhesta, sem eru afkomendur dýra sem fíkniefnabarónninn Pablo Escobar flutti til landsins á árum áður. Vonast er til þess að hægt verði að gelda um fjörutíu flóðhesta á ári. 15.11.2023 13:16