Banaslys á buggybíl á Skógaheiði Eldri maður lést í dag eftir slys á Skógaheiði, norðan við Skógafoss á Suðurlandi. Lögreglunni barst tilkynning um slysið á fjórða tímanum í dag en það varð við notkun buggybíls. 12.10.2023 20:58
Byggja og rífa niður í Fortnite Strákarnir í Dælunni ætla að byggja í kvöld en þeir ætla einnig að rífa niður. Enginn leikur er betri til þess en leikurinn Fortnite. 12.10.2023 20:30
Segja 338 þúsund á vergangi og ástandið mjög alvarlegt Sameinuðu þjóðirnar segja fjölda þeirra sem eru á vergangi á Gasaströndinni hafa aukist um þriðjung á einum sólarhring. 338 þúsund manns hafa misst heimili sín í árásum Ísraelsmanna frá því á laugardaginn en ísraelski herinn hefur varpað rúmlega sex þúsund sprengjum á Gasaströndina á síðustu sex dögum. 12.10.2023 17:56
Vaktin: „Hver einasti Hamas-liði mun deyja“ Leiðtogar Ísraels heita því að drepa hvern og einn einasta Hamas-liða og að þurrka Hamas af yfirborði jarðarinnar. Ástandið á Gasaströndinni verður sífellt alvarlegra og þúsundir hafa fallið og særst á báða bóga. 11.10.2023 20:10
Tilnefna Steve Scalise Repúblikanar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings hafa tilnefnt Steve Scalise til embættis þingforseta. Þingmaðurinn Jim Jordan, sem einnig sóttist eftir embættinu, hefur lýst yfir stuðningi við Scalise. 11.10.2023 19:00
Vaktin: Ástandið og árásirnar verri en áður Tugir þúsunda hafa flúið heimili sín á Gasaströndinni og ekkert lát er á loftárásum Ísraelsmanna. 2,3 milljónir manna búa á Gasaströndinni, um helmingur er börn. Meira en þúsund Ísraelsmenn og um 900 Palestínumenn hafa verið drepnir. 10.10.2023 21:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Bjarni Benediktsson sagði af sér sem fjármálaráðherra í dag. Ákvörðunina tók hann í kjölfar álits Umboðsmanns Alþingis um að hann hafi verið vanhæfur þegar hann samþykkti söluna á Íslandsbanka þar sem faðir hans var á meðal kaupenda í útboðinu. Forsætisráðherra segir ríkisstjórnina standa styrkum fótum. 10.10.2023 18:00
Vaktin: Sagði Biden að innrás væri óhjákvæmileg Umfangsmiklar árásir á báða bóga standa nú yfir á Gasaströndinni og í Ísrael. Hundruð eru fallin á báða bóga og þúsundir eru særðar. Varnarmálaráðherra Ísraels hefur fyrirskipað algjört umsátur um Gasa og er búið eða stendur til að skera á flæði nauðsynja eins og vatns og matvæla á svæðið . 9.10.2023 22:00
GameTíví: Bankarán og nýr Call of Duty Strákarnir í GameTíví ætla að kíkja á allra nýjasta Call of Duty leikinn í kvöld, Modern Warfare 3. Þá munu þeir einnig reyna að vinna saman og fremja bankarán í Payday. 9.10.2023 19:30
Vaktin: Að minnsta kosti 260 manns voru skotnir á tónlistarhátíð Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísrael hefur lýst yfir herlögum í landinu vegna stríðsins sem hófst þar í gærmorgun. Minnst sex hundruð Ísraelar hafa fallið í árásum Hamas og þrjú hundruð Palestínumenn fallið í gagnárásum Ísraela. 8.10.2023 12:57