Hættir tímabundið sem rektor og vinnur að heimildamynd í Úkraínu Börkur Gunnarsson, rektor Kvikmyndaskóla Íslands, hefur lagt leið sína til Úkraínu í þeim tilgangi að taka upp heimildamynd um þær menningarbreytingar sem nú eiga sér stað í landinu. 7.7.2023 09:53
Bein útsending: Skjálftasvæðið á Reykjanesi Vísir hefur sett af stað beint streymi af svæðinu í Meradölum þar sem talið er líklegt er að eldgos geti hafist. 6.7.2023 16:42
Akureyringar ósáttir við reykmengun: „Fólk er komið með nóg“ Grár reykur sem blæs út frá skemmtiferðaskipi sem staðsett er í höfn Akureyrar og myndar að sögn íbúa blágráa slikju yfir bæinn hefur vakið talsverða athygli meðal íbúa Akureyrar. Íbúi segir fólk hafa fengið nóg af ástandinu. 6.7.2023 14:54
Vaktin: Skjálfti að stærð 4,2 sá stærsti í dag Það dró heldur úr skjálftavirkni og skjálftastærð á Reykjanesskaga í nótt en alls mældust 750 skjálftar eftir miðnætti. Stærsti skjálfti dagsins var hins vegar 4,2 að stærð og reið yfir klukkan 11:03 í morgun. 6.7.2023 06:31
Mugison fer suður til þess að slaka á Tónlistarmaðurinn Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison, hefur keypt sér hús á höfuðborgarsvæðinu. Því má segja að stofnandi tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður fari í raun iðulega suður. 5.7.2023 16:56
Tíu mánuðir fyrir tvær líkamsárásir Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í gær karlmann á þrítugsaldri til tíu mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa framið tvær líkamsárásir, þar af eina á fimmtán ára dreng, og fyrir tvö umferðarlagabrot. 5.7.2023 13:46
Átján þúsund Íslendingar á vanskilaskrá Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo, segir fyrirtækið hafa veitt smálánafyrirtækinu eCommerce 2020 ApS of mikið traust. Þá segir hún átján þúsund Íslendinga skráða á vanskilaskrá og að líkur séu á því að sú tala hækki með hækkandi vöxtum og verðbólgu. 5.7.2023 12:04
Minnist föður síns sem lést af slysförum í Vestmannaeyjum Maðurinn sem lést í gær eftir að hafa fallið úr Ystakletti í Vestmannaeyjum hét Ólafur Friðrik Guðjónsson. Sonur hans, Guðjón Ólafsson, minnist hans í hjartnæmri færslu á Facebook í dag. 2.7.2023 17:08
Annasöm nótt á Írskum dögum og einn handtekinn með hníf Lögreglan á Vesturlandi handtók mann sem vopnaður var hníf og hamri á Akranesi í nótt. Töluvert var um mál á borði lögreglunnar í gærkvöldi og í nótt en bæjarhátíðin Írskir dagar fer fram um helgina. 2.7.2023 15:14
Ný stjórn kosin á hluthafafundi Stjórn Íslandsbanka hefur boðað til hluthafafundar í lok mánaðar þar sem kosið verður í stjórn, varastjórn og embætti formanns stjórnar auk þess sem fjallað verður um sátt bankans við Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands. 2.7.2023 14:01