„Væri ekki að fara ef ekki væri fyrir góðvild fólks“ Tinna Rúnarsdóttir, sem ættleidd var frá Sri Lanka fyrir fjörutíu árum, er á leið út á vit ættingja sinna. Hún hóf leit að blóðforeldrum sínum fyrr á árinu en við hana kom í ljós að móðir hennar hefði verið myrt fyrir meira en tuttugu árum. Tinna er atvinnulaus fjögurra barna móðir og hefur því sett af stað söfnun vegna ferðarinnar. Hún þakkar allan stuðninginn sem hún hefur þegar fengið. 16.7.2024 23:46
Grátlegt að veiðarnar séu kallaðar af meðan sjórinn er fullur af fiski Síðasti dagur strandveiða er í dag og öll strandveiðileyfi falla niður frá og með morgundeginum. Formaður Landssambands smábátaeigenda segir sjóinn fullan af fiski og grátlegt sé að tímabilinu sé lokið. 16.7.2024 20:00
Þyrlan flutti slasaða göngukonu Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti slasaða göngukonu skammt frá Álftavatni, sem liggur við Laugaveginn, síðdegis í dag. Aðstandendur hennar voru í kjölfarið fluttir til byggða. 16.7.2024 19:01
Falska söngkonan á leið í meðferð Ingrid Andress, kántrísöngkonan sem flutti Bandaríska þjóðsönginn fyrir stjörnuleik bandarísku hafnaboltadeildarinnar í Texas í gær og hlaut vægast sagt dræmar undirtektir, hefur gefið út yfirlýsingu þar sem hún segist ætla í meðferð eftir atburði gærdagsins. 16.7.2024 18:24
Slæm hegðun fanga, veiran skæða og sundballett Forstöðumaður Litla Hrauns og Hólmsheiðarfangelsis segir slæma hegðun fanga færast í aukana. Fangelsin séu vel í stakk búin til að takast á við vandann eins og sakir standa en haldi sama þróun áfram geti skapast vandamál. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 16.7.2024 18:10
Faðir Kobe Bryant er látinn Joe Bryant, faðir körfuboltagoðsagnarinnar Kobe Bryan heitins, er látinn 69 að aldri. Líkt og sonur hans lék Bryant í NBA-deildinni á sínum yngri árum. 16.7.2024 17:38
Sex um borð þegar bátur strandaði í Viðey Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út af Landhelgisgæslunni í dag vegna vélavana báts rétt norðan við Viðey. 16.7.2024 17:07
„Búið að leggja upp dauðafæri fyrir Donald Trump“ Stjórnmálafræðiprófessor segir fátt hafa getað verið Donald Trump hagfelldara en atburðarásin á kosningafundi hans á laugardag. Hann sé kominn í dauðafæri í baráttunni um forsetaembættið og hann þurfi að geiga verulega til að klúðra því. 15.7.2024 23:58
Kallaði Trump „Hitler Ameríku“ og studdi Never Trump-hreyfinguna James David Vance, tilvonandi varaforsetaefni Donalds Trump, hefur ekki verið í fylkingu forsetans fyrrverandi um langt skeið, en virðist í dag einn af hans dyggustu stuðningsmönnum. Stjórnmálamenn velta því upp hvort Vance, sem sagði meðframbjóðanda sinn asna og vítaverðan opinberlega fyrir átta árum, sé drifinn af tækifærismennsku. 15.7.2024 22:57
„Litu bara á þetta eins og hefði verið keyrt á kind“ Hópur bifhjólamanna safnaðist saman á Korputorgi til að mótmæla slæmum skilyrðum fyrir akstur þeirra á vegum landsins. Hann krefst þess jafnframt að einhver axli ábyrgð á mistökum við vegagerð sem leiddu til banaslyss tveggja bifhjólamanna á Kjalarnesi árið 2020. 15.7.2024 22:01