Loftefni hrundi í húsi sem fæst ekki uppkeypt Halla Kristín Sveinsdóttir Grindvíkingur rak upp stór augu þegar hún uppgötvaði að loftefni hefði hrunið til jarðar í aðalrými húss í hennar eigu við Borgarhraun í dag. Vegna þess að húsið er í eigu félags hennar fæst það ekki uppkeypt af Þórkötlu og Halla situr uppi með skuldirnar. 24.7.2024 17:46
Halla heimsótti Guðna Rúm vika er til stefnu þar til Halla Tómasdóttir verður formlega sett inn í embætti forseta Íslands. Fjölskyldur Höllu og Guðna Th. Jóhannessonar hittust á Bessastöðum í dag. 24.7.2024 14:13
Féllu ofan í jökullón Sólheimajökuls Þyrla landhelgisgæslunnar auk björgunarsveita á Norður- og Suðurlandi var kölluð út nú fyrir skömmu. Fyrst vegna reiðhjólaslyss í Ásbyrgi og síðan vegna tveggja ferðalanga sem féllu af sporði Sólheimajökuls og ofan í jökullónið. 24.7.2024 13:43
Söngskólinn í Reykjavík leitar nýs húsnæðis Stjórnendur Söngskólans í Reykjavík leita nýs húsnæðis undir starfsemi skólans. Núverandi húsnæði skólans við Laufásveg í Reykjavík, sem gjarnan er kallað Sturluhallir, hefur þegar verið selt. 24.7.2024 12:34
Sjónskert Barbie lítur dagsins ljós Leikfangaframleiðandinn Mattel, sem á vörumerkið Barbie, hefur gefið út fyrstu blindu Barbie-dúkkuna. Útgáfan er ein af mörgum í vegferð framleiðandans til að láta Barbie-dúkkuna endurspegla sem flesta hópa samfélagsins. 24.7.2024 11:28
Kæra vararíkissaksóknara vegna ummæla um innflytjendur Stjórn Solaris, hjálparsamtaka fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi hefur lagt fram kæru á hendur Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara vegna ummæla sem hann lét falla um innflytjendur frá Mið-Austurlöndum og um Solaris-samtökin í síðustu viku. 24.7.2024 11:21
Forstjóri lífvarðasveitarinnar segir af sér vegna banatilræðisins Kimberly Cheatle forstjóri bandarísku öryggisþjónustunnar Secret service segist ætla að láta af embætti í kjölfar banatilræðisins á hendur Donald Trump fyrr í mánuðinum. Hún viðurkennir mistök við öryggisgæslu á fundinum. 23.7.2024 15:14
Bráðabirgðamælingar sýna heitasta dag jarðar frá upphafi mælinga Sunnudagurinn 21. júlí var samkvæmt bráðabirgðatölum Copernicus-loftslagsþjónustu Evrópusambandsins heitasti dagur jarðar frá upphafi mælinga. 23.7.2024 13:45
Áskorun fyrir konu úti á landi að tjá sig um menntamál Kennari og verkefnastjóri læsisverkefnisins Kveikjum neistann segir þöggun ríkja innan menntakerfisins og áskorun sé að tjá sig um menntamál sem kona á landsbyggðinni. Hún segir ákveðna einstaklinga virðast hafa skotleyfi en tölurnar sýni fram á mælanlegan árangur verkefnisins. 23.7.2024 12:21
Kæruleysiskonan slær í gegn á samfélagsmiðlum „Mikið rosalega verður maður kærulaus í þessum hita,“ segir Aðalheiður móðir Þórdísar Bjarkar Þorfinnsdóttur leikkonu gjarnan í myndbandi sem nýtur mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum hinnar síðarnefndu. 23.7.2024 10:23