Kindur og nýfædd lömb drápust í eldsvoða á Suðurlandi Að minnsta kosti sjö kindur, þar af fjögur nýfædd lömb, drápust í eldsvoða sem kom upp á sveitabæ í Mýrdalshreppi á Suðurlandi skömmu fyrir klukkan 21 í gærkvöldi. 7.5.2020 08:43
1700 farþegar flugu með Icelandair í apríl Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu þar sem segir að þessi fjöldi farþega endurspegli þá stöðu sem nú ríkir í alþjóðaflugi vegna kórónuveirufaraldursins og þeirra ferðatakmarkana sem eru í gildi núna um allan heim. 6.5.2020 16:52
„Ósiðlegt og ætti með réttu að vera ólöglegt“ Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) gagnrýnir fyrirtækið Össur harðlega fyrir að nýta sér hlutabótaleið stjórnvalda skömmu eftir að eigendur fyrirtækisins fengu greiddan 1,2 milljarða króna í arð vegna hagnaðar síðasta árs. 6.5.2020 16:19
Þórólfur baðst afsökunar og útskýrði tveggja metra regluna nánar Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðnasonar, sóttvarnalæknis, á upplýsingafundi almannavarna og landlæknis en þar sagði hann ljóst af umræðunni undanfarna daga að honum hefði ekki tekist að útskýra nægilega vel í hverju tveggja metra reglan fælist. 6.5.2020 14:55
Stefnt að því að létt verði frekar á samkomubanni þann 25. maí Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir að vegna þess hve vel hefur gengið að hemja kórónuveirufaraldurinn hér á landi verði næstu tilslakanir á samkomubanni fyrr en áætlað var í fyrstu, eða þann 25. maí næstkomandi. 6.5.2020 14:14
Ekkert nýtt smit þriðja daginn í röð Enginn greindist með kórónuveiruna hér á landi síðasta sólarhringinn samkvæmt nýjustu upplýsingum á síðunni covid.is. 6.5.2020 13:02
Persónuvernd fengið ábendingu um viðbrögð Bjössa í World Class Björn Leifsson, eigandi World Class, greip til þess ráðs að svara greiðanda áskriftar hjá World Class opinberlega í vikunni. Viðbrögð Björns vöktu athygli og spurningar um mögulegt brot á persónuverndarlögum. 6.5.2020 11:14
Starfslok Finns og Guðmundar kosta Haga vel yfir 300 milljónir Starfslok þeirra Finns Árnasonar, forstjóra Haga, og Guðmundar Marteinsson, framkvæmdastjóra Bónus, munu kosta Haga vel yfir 300 milljónir króna. 6.5.2020 08:59
Sinubruni á Kjalarnesi Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu vinnur nú að því að slökkva sinueld sem kviknaði á suðaustur við Saltvík á Kjalarnesi á þriðja tímanum í dag. 5.5.2020 15:45
Iðnó verður lokað Rekstraraðilar Iðnó, þeir Þórir Bergsson og René Boonekamp, hafa tekið þá ákvörðun að loka húsinu. 5.5.2020 15:12