Stjörnulífið: Afmæli í sitthvoru lagi, 17. júní og brúðkaupsveislur Liðin vika var með eindæmum hátíðleg. Þjóðhátíðardagur okkar Íslendinga, brúðkaup og útskriftir í blíðskaparveðri báru þar hæst. Myndir frá ferðalögum eru einnig áberandi þar sem Íslendingar virðast æstir í sleikja sólina hér á landi sem og erlendis. 18.6.2024 11:08
„Þetta lag minnir mig alltaf á að hafa tapað Idolinu“ „Þegar maður greinist með lífshættulegan sjúkdóm þá lærir maður að líta á heiminn öðrum augum og það var einmitt á spítalanum sem ég öðlaðist nýja sýn á lífinu og tók ákvörðun að einblína á það jákvæða og fallega í lífinu,“ segir hinn sjarmerandi Vestmannaeyingur Guðjón Smári Smárason sem greindist með sjálfsofnæmissjúkdóm sextán ára gamall. 17.6.2024 13:07
Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Heiður Ósk Eggertsdóttir, förðunarfræðingur og eigandi Reykjavík Makeup School, og Davíð Rúnar Bjarnason, landsliðsþjálfari í hnefaleikum og skipuleggjandi IceBox, eru nýtt par. 14.6.2024 15:23
Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Atvinnuhúsnæði við Bankastræti 5 í miðborg Reykjavíkur hefur verið auglýst til leigu eina ferðina enn. Undanfarin ár hefur skemmtistaðurinn B5 verið þar til húsa, allt þar til í lok apríl. Húsnæðið er í eigu Fasteignafélagsins Eik. 14.6.2024 13:55
Tignarleg miðbæjaríbúð Helgu Ólafs til sölu Helga Ólafsdóttir fatahönnuður og stjórnandi HönnunarMars hefur sett bjarta og tignarlega íbúð við Njálsgötu í Reykjavík á sölu. Húsið var byggt árið 1927. Ásett verð er 79,9 milljónir. 14.6.2024 11:52
Aníta Briem og Hafþór eiga von á barni Leikkonan Aníta Briem og Hafþór Waldorff eiga von á sínu fyrsta barni saman. Samkvæmt heimildum fréttastofu á hún von á sér í nóvember. 13.6.2024 16:32
Selur húsið í Garðabæ eftir kaupin á glæsihúsi Ingu Lindar Hannes Hilmarsson einn af eigendum flugfélagsins Atlanta og eiginkona hans, Guðrún Þráinsdóttir, hafa sett einbýli sitt við Stórakur í Garðabæ á sölu. Nýverið festu hjónin kaup á glæsivillu við Mávanes sem áður var í eigu Ingu Lindar Karlsdóttur sjónvarpskonu og eiganda Skot Productions. Ásett verð fyrir húsið er 450 milljónir. 13.6.2024 16:01
Sjö daga afmælissæla í Reykjanesbæ Sveitarfélagið Reykjanesbær fagnaði þrjátíu ára afmæli sínu með stórtónleikum fyrir utan Hljómahöllina síðastliðinn þriðjudag þann 11. júní. Tímamótin marka sameiningu Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna sem verða fagnað með hátíðardagskrá fram til 17. júní. 13.6.2024 15:00
Daði keypti hús Jóns Jónssonar með mömmu sinni á yfirverði Daði Laxdal Gautason, fyrrverandi handboltamaður og framkvæmdarstjóri viðskiptaþróunar hjá Sisu Group, festi kaup á húsi tónlistarmannsins Jóns Jónssonar og eiginkonu hans Hafdísar Bjarkar Jónsdóttur tannlæknis. Móðir Daða, Hildigunnur Hilmarsdóttir, á rúmlega tuttugu prósent í húsinu með honum. Uppsett verð var 182 milljónir en mæðginin borguðu 185 millónir fyrir húsið. 13.6.2024 09:43
Friðrik Ómar setur Reykhúsið aftur á sölu og lækkar verðið Tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar Hjörleifsson hefur sett einbýlishús sitt á Akureyri á sölu. Hann setti húsið einnig á sölu í júlí í fyrra. Þá var ásett verð fyrir eignina rúmar 68 milljónir en er nú 64,5 milljónir. 12.6.2024 16:00