Umdeild starfsemi hafi ekki áhrif á neysluvatn íbúa 69 umsagnir bárust Skipulagsstofnun vegna fyrirhugaða framkvæmda Coda Terminal, dótturfyrirtækis Carbfix, en frestur til að skila inn umsögnum rann út í gær. Langflestar umsagnirnar gagnrýna og mótmæla verkefninu. 6.7.2024 14:04
Laufey í banastuði í Reykjavík Tónlistarkonan Laufey Lín er stödd á Íslandi í kærkomnu fríi eftir að hafa verið á löngu tónleikaferðalagi. Laufey hefur komið víða við og látið sjá sig meðal annars í Melabúðinni og skemmtistaðnum Röntgen. 6.7.2024 12:46
30 tilvik skráð: „Alltaf einhverjir sem fara út af sporinu“ Mjög erilsamt var hjá lögreglunni á Vesturlandi í nótt en um þessar mundir fara fram Írskir dagar á Akranesi. Um 30 tilvik voru skráð hjá lögreglu í gærkvöldi og í nótt. 6.7.2024 11:19
Meðalhiti lægri í júní en í maí í fyrsta sinn Meðalhiti í Bretlandi og Danmörku var lægri í júní heldur en var í maí. Þetta er í fyrsta sinn sem júní er kaldari en maí síðan að mælingar hófust í Danmörku fyrir rúmlega 150 árum samkvæmt fréttastofu DR. 6.7.2024 09:26
Beryl lék Mexíkó grátt Fellibylurinn Beryl gekk yfir Júkatanskagan í Mexíkó í gær og í nótt eftir að hafa valdið umfangsmikilli eyðileggingu víðs vegar um Karabíahafið og að minnsta kosti tíu dauðsföllum. 6.7.2024 08:21
Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Umbótasinninn Massoud Pezeshkian hefur verið kjörinn nýr forseti Írans og bar þar með sigur úr býtum gegn íhaldssömum keppinaut sínum, Saeed Jalili, í annarri umferð forsetakosninga þar í landi. 6.7.2024 07:45
Maður handtekinn tvisvar í nótt fyrir sama brot Ökumaður bifreiðar var handtekinn í nótt grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna en hann reyndist sviptur ökuréttindum. Hann var færður til sýnatöku á lögreglustöðinni á Hverfisgötu og var laus úr haldi að því loknu. 6.7.2024 07:19
Maðurinn fundinn en ekki hægt að segja til um ástand hans Göngumaðurinn sem björgunarsveitir og Landhelgisgæslan hafa leitað síðan klukkan sjö í morgun fannst á fjórða tímanum í dag í Suðursveitum. 5.7.2024 16:52
Viðrar vel til hátíða víðs vegar um helgina Stór ferðahelgi er í vændum á Íslandi og eru margir að undirbúa sig fyrir ferðalag um þessar mundir. Mikið er um að vera víðs vegar á landinu en þar má helst nefna Írska daga á Akranesi, fjölskylduhátíðina Allt í blóma á Hveragerði og Goslokahátíð í Vestmannaeyjum. 5.7.2024 15:40
Ekki spurst til mannsins síðan snemma í gær Leit stendur enn yfir að manni við Skálafellsjökul á Suð-Austurlandi en mannsins hefur verið leitað síðan klukkan sjö í morgun. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út ásamt björgunarfólki Hornafjarðar en talið er að maðurinn sé búinn að vera einn á gangi á svæðinu síðan í gærmorgun. 5.7.2024 14:39
Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent