Tveggja saknað eftir elda í Colorado Tveggja er saknað eftir gróðurelda sem skekið hafa úthverfi bandarísku borgarinnar Denver í Colorado-ríki í Bandaríkjunum. Hundruð heimila hafa orðið eldinum að bráð og þúsundir hafa þurft að flýja heimili sín vegna þeirra. 1.1.2022 20:31
Yfirtaka: GunniTheGoon í Escape from Tarkov GameTíví byrjar nýja árið með leikjastreymi af af yfirtöku í leiknum Escape from Tarkov. 1.1.2022 20:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 förum við yfir stöðuna í kórónuveirufaraldrinum en metfjöldi greindist smitaður á landamærunum í gær og kona á níræðisaldri lést vegna covid veikinda. 1.1.2022 18:17
Hildur gekk í það heilaga um jólin Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, giftist Jóni Skaftasyni nú um jólin. Frá þessu greinir Hildur á Facebook. 1.1.2022 18:07
Aðstoðuðu fasta ökumenn á lokaðri heiðinni Björgunarsveitir víða um land hafa verið kallaðar út í dag vegna veðurs. Meðal annars hefur þurft að tryggja lausa muni og þakplötur og aðstoða ökumenn bíla sem sátu fastir á Öxnadalsheiði. 1.1.2022 17:48
„Ég held að við séum á leiðinni út úr þessu helvítis Covid“ Fulltrúar flokkanna á þingi voru gestir Kryddsíldarinnar á Stöð 2. Í lok þáttar voru þeir beðnir að fara stuttlega yfir árið sem er að líða og vonir sínar fyrir árið 2022, bæði í einkalífinu og stjórnmálunum. Allir voru sammála um að árið 2022 yrði vonandi árið þar sem kórónuveirufaraldurinn yrði kvaddur fyrir fullt og allt. 31.12.2021 16:37
Unnsteinn Manuel og Hermigervill frumfluttu nýtt lag Tónlistarmennirnir Unnsteinn Manuel og Hermigervill komu með stemninguna með sér í Kryddsíldina, áramótaþátt Stöðvar 2. Þar frumfluttu þeir nýtt lag, sem ber heitið Eitur. 31.12.2021 15:05
Ragnheiður Ósk valin maður ársins 2021 Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu, er maður ársins að mati fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Margir voru um hituna á viðburðaríku ári en tilkynnt var um valið í þættinum Kryddsíld í dag, þar sem árið 2021 er gert upp. 31.12.2021 14:50
Inga ekki í Kryddsíldinni með nýútskrifaðri Þórdísi Kolbrúnu Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, tilkynnti í dag að hún yrði ekki með í Kryddsíldinni, árlegum áramótaþætti Stöðvar 2, í ljósi mikillar útbreiðslu Covid-19 í samfélaginu. Yfir 1.500 manns greindust með Covid hér á landi í gær. 31.12.2021 14:08
Reglur um vinnusóttkví rýmkaðar á morgun Nýjar reglur um vinnusóttkví taka gildi á hádegi á morgun, gamlársdag. Sóttvarnalæknir og almannavarnir hafa gefið út uppfærðar leiðbeiningar um hvenær er heimilt að beita vinnusóttkví. 30.12.2021 22:34