Ólympíuleikar
Rosaleg rigning í Ríó í nótt | Myndir
Hlé var gert á úrslitahluta frjálsíþróttakeppni Ólympíuleikanna í Ríó í nótt vegna öfgafullra veðuraðstæðna.
Horfði á sigur Liverpool áður en hann setti heimsmetið
Suður-Afríkumaðurinn Wayde van Niekerk sló í gær eitt af þessum langlífu heimsmetum frjálsra íþrótta þegar hann tryggði sér Ólympíugull í 400 metra hlaupi karla.
Liðsfélagi Eyþóru vann Simone Biles og varð Ólympíumeistari
Sanne Wevers, liðsfélagi Eyþóru Elísabetar Þórsdóttur í hollenska landsliðinu í fimleikum, varð í dag nýr Ólympíumeistari á jafnvægisslá á Ólympíuleikunum í Ríó.
Aníta þeirra Pólverja setti heimsmet og tók gullið
Við Íslendingar eigum Anítu Hinriksdóttur á Ólympíuleikunum í Ríó en Pólverjar eiga líka sína Anítu og sú gerði eitthvað í dag á leikunum í Ríó sem aldrei hefur verið gert áður.
Freyr formaður sat með fjölskyldu og þjálfara heimsmetshafans
Freyr Ólafsson, formaður Frjálsíþróttasambands Íslands, er mættur til Ríó til að fylgjast með sínu fólki en bæði Ásdís Hjálmsdóttir og Aníta Hinriksdóttir keppa í þessari viku.
Sú kólumbíska breytti silfri í gull
Caterine Ibargüen frá Kólumbíu varð í nótt Ólympíumeistari í þristökki kvenna eftir flotta keppni á Ólympíuleikvanginum í Ríó.
Usain Bolt: Einhver sagði að ég gæti orðið ódauðlegur
Usain Bolt var í miklu stuði í nótt eftir sigur sinn í 100 metra hlaupi karla á Ólympíuleikunum í Ríó en hann var að vinna 100 metra hlaupið á þriðju Ólympíuleikunum í röð.
Bætti sautján ára heimsmet Michael Johnson
Suður-Afríkumaðurinn Wayde van Niekerk tryggði sér í nótt sigur í 400 metra hlaupi karla á Ólympíuleikunum í Ríó en hann vann úrslitahlaupið með sannfærandi hætti og á nýju heimsmeti.
Usain Bolt Ólympíumeistari í 100 metra hlaupi í þriðja sinn
Jamaíkamaðurinn Usain Bolt tryggði sér í nótt sigur í 100 metra hlaupi karla á þriðju Ólympíuleikunum í röð. Áhorfendur á Ólympíuleikvanginum í Ríó héldu mikið með Bolt og púuðu á Justin Gatlin. Það var því mikill fögnuður þegar Bolt kom fyrstur í mark.
Hrafnhildur fann alltaf mömmu og pabba í stúkunni
Hrafnhildur Lúthersdóttir náði á Ólympíuleikunum í Ríó besta árangri íslenskrar sundkonu í sögu Ólympíuleikanna þegar hún varð í sjötta sæti í 100 metra bringusundi.
Aðeins tvær af eistnesku þríburunum skiluðu sér í mark | Gull til Kenýu
Þrírburar tóku þátt í maraþonkeppni kvenna á Ólympíuleikunum í Ríó í Brasilíu en maraþoninu fór fram í dag og lauk með sigri Jemimu Sumgong frá Kenýu.
Eygló Ósk ætlar að fara á leik með bandaríska körfuboltaliðinu í kvöld
Sundkonan Eygló Ósk Gústafsdóttir hefur lokið keppni á Ólympíuleikunum í Ríó og er komin í verðskuldað frí eftir frábæra framgöngu sína á leikunum þar sem hún setti bæði Íslands- og Norðurlandamet og komst í úrslit í 200 metra baksundi.
Eygló Ósk horfir til framtíðar: Set markið ennþá hærra á næstu leikum
Eygló Ósk Gústafsdóttir náði í nótt næstbesta árangri íslenskrar sundkonu á Ólympíuleikum en eftir sundið var hún strax farin að tala um að ná lengra á Ólympíuleikunum í Tókýó 2020.
Eygló Ósk: Mjög erfitt en líka ótrúlega gaman
Eygló Ósk Gústafsdóttir varð áttunda í 200 metra baksundi kvenna á Ólympíuleikunum í Ríó í nótt en þetta er næstbesti árangur íslenskrar sundkonu á Ólympíuleikum.
Þormóður Árni svekktur: Ég hefði þurft að sparka meira í hann
Þormóður Árni Jónsson var vonsvikinn eftir að hafa dottið úr júdókeppni Ólympíuleikanna í Ríó eftir aðeins eina glímu. Þriðji Ólympíuleikar hans eru því á enda.
Michael Phelps vann 200 metra fjórsundið á fjórðu leikunum í röð
Bandaíkjamaðurinn Michael Phelps bætti við enn einu gullinu á Ólympíuleikunum í Ríó í nótt þegar hann vann 200 metra fjórsundið.
Eygló Ósk beindi orðum sínum sérstaklega til íslenskra krakka eftir sundið magnaða í nótt
Ísland á tvær sundkonur í úrslitum á Ólympíuleikunum í Ríó en þetta varð ljóst eftir að Eygló Ósk Gústafsdóttir synti sig inn í úrslit í 200 metra baksundi í nótt.
Eygló Ósk í úrslit: Ég er næstum því að fara gráta
Eygló Ósk Gústafsdóttir átti erfitt með sig eftir undanúrslitasundið í 200 metra baksundi á Ólympíuleikunum í Ríó í nótt. Hún náði sjöunda besta tímanum, setti nýtt glæsilegt Íslandsmet og komst í úrslit. Stórkostleg frammistaða.
Aðeins fimm með betri einkunn en Eyþóra á gólfinu
Eyþóra Elísabet Þórsdóttir er níunda besta fimleikakona Ólympíuleikana í Ríó en þessi íslensk ættaða fimleikastjarna sem keppir fyrir Holland náði níunda sæti í úrslitum í fjölþraut kvenna.
Eygló Ósk hás og hóstandi eftir sundið
Eygló Ósk Gústafsdóttir þurfti að hrista af sér smá veikindi þegar hún tryggði sér sæti í undanúrslitum í annað skiptið á Ólympíuleikunum í Ríó.
Eygló Ósk: Bjóst ekki alveg við því að þetta væri svona hratt
Eygló Ósk Gústafsdóttir synti örugglega inn í undanúrslit í 200 metra baksundi á Ólympíuleikunum í Ríó þegar hún varð með tólfta besta tímann í undanrásunum.
Hrafnhildur er ekki hætt: Mér finnst ég eiga meira inni
Hrafnhildur Lúthersdóttir gaf það út eftir síðasta sundið sitt á ÓL í Ríó að hún ætlaði að halda áfram að synda.
Hrafnhildur: Ég veit að mamma og pabbi elska mig ennþá
Hrafnhildur Lúthersdóttir komst ekki í úrslit í 200 metra bringusundi kvenna en náði engu að síður næstbesta árangri íslenskrar konu á í sundkeppni Ólympíuleikanna með því að taka ellefta sætið.
Hrafnhildur: Ég er mjög hissa á öllu á þessum Ólympíuleikum
Hrafnhildur Lúthersdóttir varð í dag fyrsta konan til að komast í undanúrslit í tveimur greinum á Ólympíuleikum þegar hún synti sig inn í undanúrslitin í 200 metra bringusundi.
Einlæg viðbrögð kínverskrar sundkonu slá í gegn
Fu Yuanhui hafði ekki hugmynd um að hún hefði unnið bronsverðlaun í 100m baksundi.
Anton Sveinn: Fann ekki kraftinn til að keyra á þetta í lokin
Anton Sveinn McKee var aðeins tveimur sætum og fjórtán sekúndubrotum frá því að komast í undanúrslit á Ólympíuleikunum í Ríó í kvöld.
Starfsmaður á ÓL í Ríó bað leikmanns strax eftir keppni
Keppni sjö manna rugby kvenna lauk í gær með sigri Ástralíu en þetta er í fyrsta sinn sem keppt er í þessari grein á Ólympíuleikum.
Jacky Pellerin um Hrafnhildi: Sjáðu, hún er þreytt en brosandi
Jacky Pellerin, landsliðsþjálfari Íslands í sundi var ánægður með Hrafnhildur Lúthersdóttir sem náði sjötta sæti í úrslitasundinu í 100 metra bringusundi.
Átti Hrafnhildur í raun að vera fimmta en ekki sjötta?
Hrafnhildur Lúthersdóttir varð í sjötta sæti í 100 metra bringusundi á ÓL í Ríó í nótt en á undan henni var sundkona sem engin skilur af hverju fékk að keppa á Ólympíuleikunum í ár.
Hrafnhildur: Frábært að vera á undan Ólympíumeistara og heimsmetshafa
Hrafnhildur Lúthersdóttir varð í sjötta sæti í 100 metra bringusundi á Ólympíuleikunum í Ríó og er þetta besti árangur íslenskrar sundkonu á Ólympíuleikum.