Rússland
14 15 16 17 18 19 20 21 22 … 98 ›
Þögull um Prigozhin en fagnar fyrirhugaðri stækkun BRICS Vladimir Pútín Rússlandsforseti hefur ekki tjáð sig um fregnir af dauða Yevgeny Prigozhin né hafa stjórnvöld í Moskvu viljað gefa út formlega yfirlýsingu um málið. Erlent 24.8.2023 11:15
Segir dauða Prigozhin ekki koma á óvart Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segir dauða Yevgeny Prigozhin, eiganda málaliðahópsins Wagner Group, ekki hafa komið sér á óvart. Hann segir lítið gerast í Rússlandi án aðkomu Vladimírs Pútín, forseta. Erlent 23.8.2023 23:31
Flugvél Prigozhin sögð hafa verið skotin niður Rússneski auðjöfurinn Yevgeny Prigozhin, eigandi málaliðahópsins Wagner Group, er lést er einkaflugvél hans féll til jarðar í Rússlandi í dag. Fregnir hafa borist af því að flugvélin hafi verið skotin niður en það er óstaðfest. Erlent 23.8.2023 17:18
Rússar sagðir hafa ráðist á korngeymslur við Dóná Rússar réðust á korngeymslur og aðra innviði við Dóná í Úkraínu í nótt. Samkvæmt þarlendum yfirvöldum kviknaði eldur í að minnsta kosti einni byggingu. Erlent 23.8.2023 07:01
Vilja að Úkraínumenn einbeiti sér að suðrinu Bandamenn Úkraínu telja forsvarsmenn úkraínska hersins hafa dreift of mikið úr hermönnum sínum. Úkraínumenn þurfi að einbeita sér frekar að því að sækja fram í suðurhluta Úkraínu heldur en í austri. Erlent 22.8.2023 22:30
Leita enn réttlætis áratug eftir efnavopnaárás Assads Íbúar í Ghouta, úthverfi Damaskusar, eru gramir yfir því að enginn hafi verið látinn sæta ábyrgð á efnavopnaárás sýrlenska stjórnarhersins sem varð á annað þúsund manns að bana árið 2013. Þvert á móti sé Bashar al-Assad, forseti, aftur boðinn velkominn í alþjóðasamfélagið. Erlent 22.8.2023 21:01
Segja klasasprengjurnar nýtast vel gegn Rússum Úkraínskir hermenn segja klasasprengjur hafa nýst vel gegn Rússum á undanförnum vikum. Þær nýtist sérstaklega vel til að stöðva árásir Rússa í austurhluta landsins, á meðan Úkraínumenn reyna að sækja fram í suðri. Erlent 21.8.2023 22:07
Húsleit gerð hjá stuðningsfólki Rússa vegna stríðsvopna Þýskir saksóknarar greindu frá því að þeir hefðu gert húsleit hjá pari sem hefur staðið fyrir mótmælum gegn stuðningi þýskra stjórnvalda við Úkraínu í dag. Rannsóknin á parinu er sögð snúast um brot á lögum um framleiðslu og flutnings á stríðsvopnum. Erlent 21.8.2023 14:55
Skrúfa fyrir flugumferð eftir drónaárásir Minnst tveir særðust þegar flak úkraínsks dróna, sem Rússar grönduðu, hrapaði á hús í úthverfi Moskvu í nótt. Þá segja Rússar minnst sjö hafa særst í drónaárás á lestarstöð í Kúrsk í gær. Erlent 21.8.2023 09:42
Rússneska geimfarið brotlenti á tunglinu Luna-25, hið rússneska tunglfar, brotlenti á tunglinu. Þetta var fyrsta tilraun Rússa til að komast til tunglsins í 47 ár. Erlent 20.8.2023 09:27
Telja að Úkraínumenn nái ekki markmiði gagnsóknar sinnar Úkraínuher tekst ekki að ná borginni Melitopol í suðuausturhluta landsins á sitt vald í ár, að mati bandarísku leyniþjónustunnar. Nái hann ekki að hrekja rússneska hermenn þaðan næst ekki eitt helsta markmið gagnsóknar Úkraínumanna. Erlent 18.8.2023 08:58
Báðust afsökunar á að hafa dregið rússneskan aðdáanda á svið Bandaríska hljómsveitin The Killers hefur beðið aðdáendur sína afsökunar eftir að sveitin dró rússneskan aðdáenda á svið á tónleikum sínum í Georgíu við Svartahaf síðastliðinn þriðjudag. Lífið 17.8.2023 16:41
Rússneska farið á braut um tunglið Luna-25, fyrsta rússneska tunglfarið í tæpa hálfa öld, komst á braut um tunglið í gær. Farið á að fara fimm brautir í kringum tunglið áður en reynt verður að lenda því á suðurpólnum á mánudag. Erlent 17.8.2023 15:26
Meintir njósnarar Rússa handteknir í Bretlandi Þrír búlgarskir ríkisborgarar hafa verið handteknir í Bretlandi vegna gruns um að vera njósnarar fyrir Rússa. Þau eru öll tengd íbúð sem er skammt frá herflugvelli í Lundúnum sem konungsfjölskyldan notar. Erlent 16.8.2023 07:47
Stórhækkuðu stýrivexti til að hægja á falli rúblunnar Seðlabanki Rússlands ákvað að hækka stýrivexti í landinu um þrjú og hálft prósentustig á neyðarfundi í dag. Með ákvörðuninni reynir bankinn að bregðast við vaxandi verðbólgu og styrkja rúbluna sem er nú veikari en hún hefur verið eftir að innrásin í Úkraínu hófst í fyrra. Viðskipti erlent 15.8.2023 15:37
Þrjátíu látnir eftir sprengingu í Rússlandi Þrjátíu létust og rúmlega sjötíu særðust í gríðarmikilli sprengingu sem átti sér stað á bensínstöð í Dagestan í suðurhluta Rússlands í nótt. Erlent 15.8.2023 07:59
Rússar á leið til tunglsins Rússar skutu tunglfarinu Luna-25 á loft í morgun í fyrstu tunglferð landsins í 47 ár. Geimfarið á að lenda 23. ágúst á tunglinu, sama dag og indverska tunglfarið sem fór á loft í júlí. Erlent 11.8.2023 07:10
Tugir slasaðir í sprengingu í rússneskri verksmiðju Mikil sprenging varð á athafnasvæði verksmiðju sem framleiðir sjóntæki fyrir rússneska herinn nærri Moskvu í dag. Á fimmta tug manna eru slasaðir, þar af sex alvarlega. Orsakir sprengingarinnar liggja ekki fyrir að svo stöddu. Erlent 9.8.2023 12:20
Saka Rússa um að ráðast á viðbragðsaðila Úkraínsk stjórnvöld sökuðu rússneska herinn um að beina spjótum sínum sérstaklega að björgunarfólki í flugskeytaárásum sem voru gerðar á borgina Pokrovsk í austanverðri Úkraínu í gærkvöldi. Fimm féllu í árásinni. Erlent 8.8.2023 15:59
Sakar Wagner-hópinn um að notfæra sér ástandið í Níger Utanríkisráðherra Bandaríkjanna telur að rússneski málaliðahópurinn Wagner notfæri sér nú óstöðugleikann í Níger í kjölfar valdaráns herforingja þar í síðasta mánuði. Vangaveltur eru uppi um að valdaræningjarnir hafi falast eftir aðstoð málaliðahersins. Erlent 8.8.2023 12:09
Úkraínuforseti segir árás á blóðgjafarstöð vera stríðsglæp Tveir fórust og fjórir særðust þegar rússnesk stýrisprengja hæfði blóðgjafarmiðstöð í norðausturhluta Úkraínu, að sögn þarlendra embættismanna. Volodomír Selenskí Úkraínuforseti birti ljósmynd af alelda heilbrigðisstofnuninni sem er nærri borginni Kupiansk í Kharkív-héraði. Erlent 6.8.2023 16:59
Úkraínumenn halda áfram árásum sínum utan landamæranna Árás sem gerð var með úkraínskum dróna á eitt stærsta olíutankskip Rússa er sú nýjasta í röð árása þar sem úkraínski herinn hefur notast við ómönnuð tæki til að hæfa rússnesk skotmörk bæði af sjó og úr lofti. Erlent 5.8.2023 15:08
Refsing Navalnís þyngd um nítján ár Refsing Alexei Navalní, pólitísks andstæðings Vladimírs Pútín, hefur verið þyngd um nítján ár. Dómurinn var kveðinn upp innan veggja hámarksöryggisfangelsisins þar sem Navalní var byrjaður að afplána níu ára dóm. Erlent 4.8.2023 16:36
Gerðu árás á flotastöð og skemmdu herskip Úkraínumenn réðust á rússneska flotastöð nærri Novorossiysk við á Svartahafi í nótt og virðast hafa valdið skemmdum á herskipi. Litlir fjarstýrðir sjálfsprengibátar voru notaðir til árásarinnar en Rússar segjast hafa grandað þeim öllum. Erlent 4.8.2023 07:50
Starfsemi sendiráðsins lögð niður í dag Starfsemi sendiráðs Íslands í Moskvu verður lögð niður í dag. Verkefni ráðuneytisins, sem hefur einnig verið með fyrirsvar gagnvart Armeníu, Belarús, Kasakstan, Kirgistan, Moldóvu, Tadsíkistan, Túrkmenistan og Úsbekistan færast yfir á utanríkisráðuneytið. Innlent 1.8.2023 11:32
Enn gerðar drónaárásir í Moskvu Yfirvöld í Rússlandi segja dróna hafa hæft byggingu í Moskvu, tveimur dögum eftir að annar dróni hæfði sömu byggingu. Úkraínumenn virðast vera að auka framleiðslu á eigin drónum sem hægt er að nota til árása í Rússlandi. Erlent 1.8.2023 09:18
Hafa flutt fleiri en sjö hundruð þúsund börn til Rússlands Yfirvöld í Rússlandi hafa flutt fleiri en sjö hundruð þúsund börn frá Úkraínu til Rússlands. Í nýrri skýrslu frá Maríu Lvova-Belova, nokkurs konar umboðskonu barna í Rússlandi, segir að mikill meirihluti þeirra hafi komið til Rússlands með foreldrum sínum. Erlent 31.7.2023 10:13
„Stríðið færist til Rússlands“ Volodomír Selenskí forseti Úkraínu segir stríðið sem geisar nú í landi hans á leið „aftur til Rússlands“. Þetta sagði hann í kjölfar drónaárása sem gerðar voru í Moskvu höfuðborg Rússlands. Erlent 30.7.2023 23:24
„Við munum hvorki gleyma né fyrirgefa neitt af þessu“ Rússar segjast hafa eyðilagt hernaðarlega mikilvæga stjórnstöð í úkraínsku borginni Dnipro í gær. Níu særðust í eldflaugaárásum á borgina, þar af tvö börn. Forseti Úkraínu gerir allt hvað hann getur til að hvetja þjóð sína til dáða í stríðinu. Erlent 29.7.2023 22:00
Rússar segjast hafa skotið niður dróna í Moskvu Rússnesk stjórnvöld fullyrða að þau hafi skotið niður dróna í höfuðborginni Moskvu í nótt. Þau segja drónann hafa verið úkraínskan en enginn særðist í árásinni. Erlent 28.7.2023 08:01