Björgunarsveitir
26 27 28 29 30 31 32 33 34 … 46 ›
Tóku höndum saman og komu sjúkrabíl í gegnum mikla ófærð Björgunarsveitarmenn frá Þórshöfn, Raufarhöfn, Húsavík auk snjómokstursmanna allt frá Þórshöfn til Akureyrar tóku á honum stóra sínum í gær þegar þeir komu sjúklingi frá Þórshöfn til Akureyri í mjög vondu veðri og mikilli ófærð. Innlent 24.1.2021 07:34
Ríkið styrkir Landsbjörgu til kaupa á björgunarskipum Ríkið styrkir Landsbjörgu um allt að 450 milljónir króna til kaupa á þremur björgunarskipum á árunum 2021-2023 samkvæmt samkomulagi sem var undirritað í dag. Auk þess var undirrituð viljayfirlýsing um kaup á sjö skipum til viðbótar á næstu tíu árum. Innlent 19.1.2021 16:45
Fjölskylda flutt með þyrlu til Reykjavíkur eftir slysið Þau þrjú sem voru í bílnum sem fór í sjóinn í Skötufirði voru flutt á sjúkrahús í Reykjavík með þyrlum Landhelgisgæslunnar nú eftir hádegi. Komið var með fólkið á Borgarspítalann á öðrum tímanum. Innlent 16.1.2021 13:05
Vegfarendur náðu fólki úr bíl sem fór í sjóinn í Skötufirði Viðbragðsaðilar voru kallaðir út vegna slyss í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi á Vestfjörðum vegna tilkynningar um bíl sem fór í sjóinn á ellefta tímanum í morgun. Þrír voru í bílnum. Innlent 16.1.2021 11:06
Gjafmildi landsmanna bjargaði starfi björgunarsveitarinnar á Flateyri Einu ári eftir að snjóflóð féllu á Flateyri er björgunarsveitin þar á bæ komin í nýtt húsnæði sem sveitin gat keypt með fé sem almenningur og fyrirtæki í landinu gáfu eftir hamfararnir. Í nýja húsnæðinu verður starfrækt heilsugæsla sem var ekki í boði fyrir ári. Innlent 14.1.2021 18:01
Beið eftir aðstoð í allt að tuttugu gráðu frosti Gönguskíðamaðurinn sem slasaðist á fæti á Langjökli síðdegis í dag var fluttur niður af jöklinum og komið um borð í sjúkrabíl í Húsafelli eftir að hafa beðið eftir aðstoð ásamt félögum sínum. Innlent 11.1.2021 23:01
Sækja slasaðan gönguskíðamann á Langjökul Björgunarsveitir á Vesturlandi voru kallaðar út um þrjúleytið í dag vegna gönguskíðamanns sem slasaðist á Langjökli. Ekki er talin hætta á ferðum að því er segir í tilkynningu frá Landsbjörg. Innlent 11.1.2021 15:53
Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út að Kerhólakambi vegna slasaðrar göngukonu Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út vegna göngukonu sem slasaðist á fæti við Kerhólakamb. Björgunarstarf fer nú fram úr lofti þar sem erfitt er að komast landleiðina vegna mikillar hálku. Innlent 10.1.2021 17:18
Tveir fluttir með þyrlu á Landspítalann Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur flutt tvo göngumenn, sem slösuðust á Móskarðshnúkum á þriðja tímanum í dag, á Landspítalann í Fossvoginn og lenti þar fyrir skömmu. Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar í samtali við fréttastofu. Innlent 10.1.2021 15:46
Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna slyss í Móskarðshnúkum Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út nú á þriðja tímanum eftir að tilkynning barst um að slys hefði orðið í Móskarðshnúkum. Innlent 10.1.2021 14:56
Farið í yfir 60 verkefni í aftakaveðri á Austurlandi Nær allar björgunarsveitir á svæðinu milli Þórshafnar og Djúpavogs hafa verið kallaðar út á einhverjum tímapunkti í dag vegna óveðurs. Voru verkefnin orðin ríflega 60 talsins á Austurlandi um klukkan 16 í dag. Aftakaveður hefur verið í landshlutanum og appelsínugular veðurviðvaranir í gildi á öllum austurhelmingi landsins. Innlent 9.1.2021 18:33
Greinanleg aukning í sölu á flugeldum Greinanleg aukning er í sölu á flugeldum í kringum nýliðin áramót að sögn formanns Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Innlent 2.1.2021 15:35
Slys á Sólheimajökli Viðbragðsaðilar á Suðurlandi voru kallaðir til í dag vegna slyss við Sólheimajökul. Innlent 2.1.2021 14:47
Nóg að gera hjá björgunarsveitum á síðasta degi 2020 Björgunarsveitir voru kallaðar þrisvar út á síðasta degi ársins 2020, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörg. Innlent 1.1.2021 09:02
„Þetta ár má eiga sig“ Flugeldasala hefur verið með besta móti í ár en í dag er stærsti dagur ársins á sölustöðum björgunarsveitanna. Innlent 31.12.2020 12:15
Sér ekki fyrir sér að fólk vilji kveðja þetta ár með mínútu þögn Samdráttur hefur verið í sölu á flugeldum hjá björgunarsveitum en sala rótarskota hefur „aðeins mildað höggið“ að sögn formanns Landsbjargar. Undanfarin ár hefur umræða um neikvæð umhverfisáhrif flugelda farið vaxandi en flugeldasalan hefur jafnan verið mikilvægasti liðurinn í fjáröflun björgunarsveitanna. Innlent 28.12.2020 21:14
Fleiri útköll vegna veðurs Fleiri björgunarsveitir hafa verið kallaðar út eftir hádegi vegna veðurs. Um foktjón er að ræða í öllum tilfellum en nokkrar beiðnir um aðstoð hafa meðal annars borist í Reykjavík. Innlent 27.12.2020 14:50
Um tuttugu tilkynningar um foktjón Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út í morgun vegna veðurs í Vestmannaeyjum og Suðurnesjabæ. Gul veðurviðvörun er í gildi og hefur vindur mælst hátt í fjörutíu metrar á sekúndu. Innlent 27.12.2020 10:28
Flugeldum fyrir þrjár milljónir stolið Brotist var inn í flugeldagám fyrir utan Kiwanishúsið í Þorlákshöfn um hátíðirnar og flugeldum að andvirði þriggja milljóna króna var stolið. Frá þessu greinir björgunarsveitin Mannbjörg á Facebook. Innlent 26.12.2020 21:11
Leituðu að kajakræðara en fundu bara hvali Lögregla, slökkvilið og björgunarsveitir á Akureyri leituðu í meira en tvær klukkustundir að kajakræðara sem talið var að hefði lent í vandræðum í sjónum milli Akureyrar og Svalbarðsstrandar í dag. Talið er að um missýn hafi verið að ræða, þar sem mikið var um hvali á svæðinu. Innlent 26.12.2020 18:39
Perla fyrir Seyðfirðinga og gefa peninginn til Ísólfs Þrjár vinkonur í Hveragerði, tvær sjö ár og ein fimm ára hafa setið við alla síðustu daga og perlað fyrir Seyðfirðinga en jólamyndirnar hafa þær selt og rennur allur ágóðinn til Björgunarsveitarinnar Ísólfs. Nú þegar hafa þær safnað hundrað og þrjátíu þúsund krónum. Innlent 23.12.2020 11:56
Sigldu í jólatré og sendu Gæslunni kveðju Þegar varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar skoðuðu feril björgunarskipsins Gísla Jóns frá Ísafirði blasti við þeim heldur jólaleg sjón. Ferillinn myndaði jólatré úti á Ísafjarðardjúpi, enda stutt í hátíðirnar. Lífið 22.12.2020 20:55
Sannir vinir í skriðuhættu á Seyðisfirði Vinir í raun. Það má svo sannarlega segja um þá Marek Bäumer og Brimir Christophsson Büchel á Seyðisfirði sem voru í miðri atburðarásinni þegar stóra skriðan féll síðdegis á föstudag. Innlent 22.12.2020 16:13
Seyðfirðingar sneru heim í dag: „Mann langar bara að vera heima hjá sér“ Íbúar utan hættusvæða á Seyðisfirði hafa fengið að snúa aftur til síns heima, tveimur sólarhringum eftir að bærinn var rýmdur. Þó er áfram hætta á frekari skriðuföllum. Íbúar segjast hlakka til að komast heim en kvíða því að sjá eyðilegginguna í bænum. Innlent 20.12.2020 19:20
Synti út úr skriðunni eftir að hafa bjargað manni úr björgunarsveitarbíl „Ég sé skriðuna fara af stað. Hún byrjar að renna niður. Ég horfi niður og þar sé ég björgunarsveitarbíl sem var við lokunarpóst, sem ég veit að mun lenda í skriðunni. Eftir það sé ég bara björgunarsveitarbílinn. Þó svo að hús hafi farið fram hjá á sama tíma þá sá ég aldrei húsið, ég sá bara björgunarsveitarbílinn því ég vissi að hann væri mannaður.“ Innlent 20.12.2020 16:25
Hafa oft þurft að rekja tveggja til þriggja daga gamla slóð Björgunarsveit Hafnarfjarðar berst brátt liðsauki þegar sporhundurinn Píla kemur til landsins. Sporhundarnir gegna afar mikilvægu hlutverki í starfi björgunarsveitanna. Innlent 8.12.2020 07:00
Sporhundurinn Píla þarf að finna leiðina heim til Íslands Björgunarsveit Hafnarfjarðar auglýsir nú eftir ferðafélaga fyrir blóðhundinn Pílu, sem verður næsti sporhundur sveitarinnar. Píla er nú stödd í Alicante á Spáni, en sveitin auglýsir eftir einhverjum sem gæti skráð hana á sig sem farangur í flugi til Íslands þann 10. janúar næstkomandi. Innlent 6.12.2020 14:40
Göngumaður fluttur af Esjunni á slysadeild Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur flutt göngumann, sem rann og slasaðist á Esjunni fyrir um klukkutíma síðan, á slysadeild. Þetta staðfestir varðstjóri slökkviliðs og upplýsingafulltrúi Landsbjargar í samtali við fréttastofu. Innlent 5.12.2020 13:24
Lést af slysförum í Árnessýslu Maður sem féll ofan í vök í Árnessýslu á sjöunda tímanum var úrskurðaður látinn á Heilbrigðisstofnun Suðurlands í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu á Suðurlandi. Innlent 3.12.2020 22:14
Fór niður um vök í grennd við Selfoss Lögregla og björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út á sjöunda tímanum í kvöld vegna slyss sem varð fyrir utan Selfoss. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu féll manneskja niður um vök. Innlent 3.12.2020 18:51