Írak
23 24 25 26 27 ›
Fá nokkurra klukkustunda frest Varnarmálaráðherra Íraks segir skæruliða harðlínuklerksins Muqtada al-Sadrs hafa nokkurra klukkustunda frest til þess að leggja niður vopn og gefast upp. Að öðrum kosti megi þeir eiga von á ærlegri ráðningu. Ráðherrann segir að hersveitir yfirvalda og Bandaríkjahers séu reiðubúnar að láta til skarar skríða gegn skæruliðasveitunum. Erlent 13.10.2005 14:32
Mikil spenna í Najaf Mikil spenna ríkir í Najaf í Írak eftir að harðlínuklerkurinn Muqtada al Sadr neitaði að eiga fund með sendinefnd írakskra stjórnmála- og trúarleiðtoga í gær. Erlent 13.10.2005 14:32
Árásir við upphaf þings Árásir og mannfall mörkuðu upphaf funda írakskra fulltrúa sem velja eiga nýtt þing. Þrátt fyrir friðarumleitanir halda bardagar áfram í Najaf og í Fallujah voru enn á ný gerðar loftárásir. Erlent 13.10.2005 14:31
Einn látinn og fimm særðir Einn fórst og fimm særðust í sprengjuárás í Írak fyrir stundu. Nokkrar sprengingar heyrðust skammt frá fundarstað þar sem val á þingi til að fylgjast með bráðabirgðastjórn Íraks fer fram en óvíst er hvort að sá fallni eða hinir særðu eru meðal fundarmanna. Erlent 13.10.2005 14:31
Bardagar byrjaðir í Najaf Einn fórst og fimm særðust í sprengjuárás í Írak í morgun. Harðir bardagar eru á ný hafnir í borginni Najaf eftir að friðarviðræður fóru út um þúfur. Erlent 13.10.2005 14:31
Níutíu féllu umhverfis Bagdad Bandarískir hermenn felldu um níutíu uppreisnarmenn í borgum umhverfis Bagdad í nótt en allt var með kyrrum kjörum í Najaf þar sem sjítaklerkurinn Muqtada al-Sadr er að reyna að semja vopnahlé. Erlent 13.10.2005 14:31
Vopnahlésviðræður út í sandinn Vopnahlésviðræður við múslimaklerkinn Muqtada al-Sadr eru runnar út í sandinn. Hann hvetur landa sína til harðari baráttu gegn hinu „ameríska nýlenduveldi“. Erlent 13.10.2005 14:31
Al-Sadr reynir að semja Bráðabirgðastjórnin í Írak segir að sjíta klerkurinn Moqtada al-Sadr sé að semja um að fá að yfirgefa bænahús í borginni Najaf, óáreittur. Klerkurinn hefur haldið sig þar síðan Bandaríkjamenn hófu stórsókn inn í borgina í gær. Erlent 13.10.2005 14:31
Hlé á morðum Tímabundið vopnahlé ríkir nú í borginni Najaf í Írak þar sem harðir bardagar höfðu geisað í yfir viku. Uppreisnarmenn, sem rændu breskum blaðamanni í morgun, féllust á að sleppa honum eftir beiðni frá sjítaklerknum Muqtada al-Sadr. Erlent 13.10.2005 14:31
Krafa al-Sadr í tíu liðum Sjíta klerkurinn Muqtada al-Sadr hefur lagt fram kröfur í tíu liðum fyrir að binda enda á átökin í borginni Najaf í Írak. Hann segist reiðubúinn að flytja hersveitir sínar þaðan, gegn því að Bandaríkjamenn geri slíkt hið sama. Erlent 13.10.2005 14:31
Al-Sadr heill á húfi Leiðtogi uppreisnarmanna sjíta-múslima í Írak, Moqtada al-Sadr, er ekki særður eftir árásir Bandaríkjamanna á borgina Nafaj í gær eins og talsmenn hans héldu fram í morgun, segir innanríkisráðherra bráðabirgðastjórnar Íraks. Erlent 13.10.2005 14:31
Þúsundir flýja Najaf Þúsundir íbúa flýja nú íröksku borgina Najaf, þar sem Bandaríkjamenn og írakskar öryggissveitir berjast hatrammlega gegn skæruliðum, meðan aðrir íbúar þustu út á götur til að mótmæla. Bandaríkjamenn aka um borgina og kalla til íbúa í gegnum gjallarhorn að ætlunin sé að svæla út uppreisnarmenn úr röðum sjíta-múslima sem þeir hafa barist við nær linnualust í heila viku. Erlent 13.10.2005 14:30
360 fallnir og þúsundir flúnar Bandaríkjamenn segjast hafa fellt þrjú hundruð og sextíu uppreisnarmenn í stórsókn sinni í borginni Najaf. Þúsundir borgarbúa hafa flúið vegna bardaganna. Erlent 13.10.2005 14:31
Hvattir til uppgjafar Iyad Allawi, forsætisráðherra Íraks, hvatti andspyrnuhreyfingu sjíta-múslima til að leggja niður vopn fyrr í dag en þeir hafa barist hatrammlega við hernámsliðið í nokkrum borgum Íraks í dag. Hann hvatti þá jafnframt til að ganga til liðs við „pólitíska framþróun“ landsins eins og það er orðað í erlendum fréttamiðlum. Erlent 13.10.2005 14:31
Najaf hertekin Bandarískar og írakskar hersveitir hafa hertekið miðborg Najaf í stórfelldri árás þar sem beitt hefur verið bæði þyrlum og skriðdrekum. Skilaboð árásarsveitanna til uppreisnarmannanna eru einföld: farið eða þið deyið. Erlent 13.10.2005 14:31
Al-Sadr fer hvergi Átök brutust út í íröksku borginni Najaf í morgun, sjötta daginn í röð. Viðlíka átök hafa verið í sjítahverfum í fleiri borgum Íraks, þar á meðal í höfuðborginni Bagdad, þar sem sprengja sprakk í vegkanti í morgun. Erlent 13.10.2005 14:30
Skemmdarverk á olíuleiðslum Skemmdarverk voru unnin á annarri af tveimur olíuleiðslum á Faw-skaganum í Írak í morgun. Leiðslan er hundrað og tuttugu metrar í þvermál og vegna skemmdanna hefur framleiðslugeta Íraka minnkað úr 1,9 milljónum tunna á dag í 1,1 milljón. Erlent 13.10.2005 14:30
900 Bandaríkjamenn hafa fallið Rúmlega níu hundruð bandarískir hermenn hafa látið lífið í Írak en flestir þeirra, eða rúmlega átta hundruð, létust eftir að George Bush Bandaríkjaforseti lýsti því yfir að stríðinu í Írak væri lokið í maí á síðasta ári. Af níu hundruð hafa yfir tvö hundruð látist af slysförum. Erlent 13.10.2005 14:30
Danir styðja Bandaríkjamenn Forsætisráðherra Danmerkur segir að Danir standi þétt við bakið á Bandaríkjamönnum í Íraksstríðinu, þrátt fyrir neikvæðar skýrslur og harða gagnrýni á gang mála. Hann tekur undir áhyggjur danskra fjölmiðla sem óttast hefndaraðgerðir vegna fregna af pyntingum danskra hermanna á írökskum föngum. Erlent 13.10.2005 14:30
6 látnir og 17 særðir Bílsprengja varð sex manns að bana og særði sautján í borginni Baquba, norður af Bagdad, í Írak í morgun. Sprengjan sprakk fyrir utan hús ríkisstjóra á svæðinu sem var fluttur á spítala en ekki er vitað um afdrif hans. Erlent 13.10.2005 14:30
Bardagar í hverfum sjíta-múslima Harðir bardagar geisa í hverfum sjíta-múslima í nokkrum borgum Íraks, þar á meðal í Najaf þar sem átök hafa staðið yfir nær linnulaust í fimm daga. Klerkur sjíta, Moqtada al-Sadir, segir fylgismenn sína ekki ætla að leggja niður vopn. Erlent 13.10.2005 14:30
Barist í nokkrum borgum Tveir bandarískir hermenn létu lífið í hörðum átökum í Najaf í Írak í dag. Írakskir og bandarískir hermenn berjast við árásarmenn í nokkrum borgum í landinu og ekkert lát er á árásum. Erlent 13.10.2005 14:29
Al-Sadr neitar miklu mannfalli Talsmaður sjítaklerksins Moqtada al-Sadr neitar þeim fréttum Bandaríkjamanna að þrjú hundruð írakskir uppreisnarmenn hafi fallið í tveggja daga bardögum í borginni Najaf. Hann segir þrjátíu og sex af þeirra mönnum látna. Erlent 13.10.2005 14:29
Blóðbað í Najaf Harðir bardagar milli íraskra uppreisnarmanna og bandarískra hermanna í hinni helgu borg Najaf síðustu tvo daga hafa kostað 300 uppreisnarmenn lífið að sögn bandarísku herstjórnarinnar í Írak. Tugir til viðbótar hafa látist í bardögum annars staðar á svæðum sjíamúslima að sögn íraskra stjórnvalda. Erlent 13.10.2005 14:29
Bandarísk þyrla skotin niður Bandarísk þyrla var skotin niður af uppreisnarmönnum í borginni Najaf í Írak í morgun. Þrír hermenn í þyrlunni særðust og voru þeir fluttir í burtu. Erlent 13.10.2005 14:29
Enn barist í Najaf Enn er barist að hluta til á götum borgarinnar Najaf í Írak en að sögn talsmanna bandaríska hersins hefur þeim tekist að einangra uppreisnarmennina og halda þeim í skefjum. Vígamenn gerðu árás á lögreglustöð í borginni í gærkvöldi og í kjölfarið brutust út átök milli lögreglunnar og uppreisnarmanna. Erlent 13.10.2005 14:29
Sprenging fyrir utan lögreglustöð Að minnsta kosti fimm létust og tuttugu og einn særðist þegar bílsprengja sprakk fyrir utan lögreglustöð suður af Bagdad í Írak í morgun. Uppreisnarmenn skutu einnig eldflaugasprengju að brú í Bagdad. Þá börðust bandarískir hermenn og írakskar öryggissveitir við skæruliða úr röðum írakska klerksins Moqtada al-Sadr í borginni Najaf í nótt. Erlent 13.10.2005 14:29
Harðir bardagar í Mósúl Í það minnsta 20 létust í hörðum bardaga í borginni Mósúl í Norður-Írak í morgun. Þetta eru mannskæðustu átök í Írak frá því að Írakar tóku aftur við völdum í landinu. Barist var á nokkrum stöðum í borginni, þar á meðal í miðbænum. Erlent 13.10.2005 14:29
Gíslar látnir lausir Uppreisnarmenn hafa látið nokkra gísla lausa í Írak í morgun en þeir eru flestir bílstjórar eða vinna fyrir erlend fyrirtæki sem starfa fyrir Bandaríkjaher. Fyrirtækin hafa í flestum tilfellum lofað að draga starfsemi sína út úr Írak til að fá gíslana lausa. Á meðal þeirra sem látnir hafa verið lausir eru tveir Tyrkir. Erlent 13.10.2005 14:29
Átök í Mósúl í morgun Til harðra átaka kom í borginni Mósúl í Norður-Írak á milli uppreisnarmanna og íröksku lögreglunnar í morgun og hafa átökin nú staðið yfir í nokkra klukkutíma. Samkvæmt upplýsingum frá Reuters-fréttastofunni brutust út átök á fleiri en einum stað í borginni og mátti heyra í það minnsta sex háværar sprengingar. Erlent 13.10.2005 14:29