Utanríkismál
7 8 9 10 11 12 13 14 15 … 39 ›
Tómas H. Heiðar nýr forseti Alþjóðlega hafréttardómsins Tómas H. Heiðar var í dag kjörinn forseti Alþjóðlega hafréttardómsins í Hamborg til þriggja ára. Hann var tilnefndur sem frambjóðandi Norðurlandanna árið 2014 og hlaut í framhaldinu kjör sem dómari við dómstólinn til níu ára. Tómas var svo endurkjörinn fyrr á þessu ári til ársins 2032. Innlent 2.10.2023 18:47
Krónan, eða innganga í ESB og evran? Umræða um upptöku evrunnar hefur verið áberandi í fjölmiðlum undanfarið í kjölfar hækkunar stýrivaxta Seðlabanka Íslands. Seðlabankinn er að bregðast við verðbólgu sem nú mælist langt yfir verbólgumarkmiði sem er 2,5%, en verðbólgan nú mælist 8,0%. Stýrivextir Seðlabanka Íslands eru komnir í 9,25%. Skoðun 2.10.2023 14:30
Dýrustu sprengjuþoturnar í lágflugi með tilheyrandi látum Íbúar á höfuðborgarsvæðinu og víðar á suðvesturhorninu fengu að kynnast látunum sem fylgja B-2 sprengjuflugvélum eftir hádegið í dag. Innlent 22.8.2023 16:41
Greiða Slóvakíu til að Ísland standist loftslagsskuldbindingar sínar Íslensk stjórnvöld hafa handsalað samning við Slóvakíu um kaup á milljónum tonna losunarheimilda til þess að Ísland standist skuldbindingar sínar gagnvart Kýótó-bókuninni. Kostnaðurinn nemur 350 milljónum króna. Innlent 15.8.2023 08:23
Aukin umsvif á Keflavíkursvæðinu merki um nýjan veruleika Flugsveit bandaríska flughersins kom til landsins í gær til æfinga. Um er að ræða þrjár B-2 Spirit sprengjuflugvélar og 200 manna liðsafla. Utanríkisráðherra segir miklu máli skipta að sýna samstarfsgetu og vilja til að taka á móti slíkri heimsókn. Innlent 14.8.2023 12:46
Skæðustu sprengjuþotur heims mættar á Keflavíkurflugvöll Flugsveit bandaríska flughersins er væntanleg til landsins í dag þar sem hún verður við æfingar með bandalagsríkjum í Norður-Evrópu. Um er að ræða þrjár B-2 Spirit flugvélar með allt að 200 manna liðsafla sem mun hafa aðsetur á öryggissvæðinu í Keflavík næstu vikur á meðan æfingar standa yfir. Innlent 13.8.2023 14:39
Gögn þurfi að vera skiljanleg á erlendri grundu Samtök atvinnulífsins þakka Eiríki Rögnvaldssyni íslenskufræðiprófessor fyrir að minna samtökin á að láta íslenska frumútgáfu fylgja skjölum samtakanna á ensku. Innlent 12.8.2023 11:44
Botnar ekkert í bréfi íslenskra samtaka til ráðherra á ensku Eiríkur Rögnvaldsson íslenskufræðiprófessor emeritus furðar sig á bréfi sem íslensk samtök innan íslensks atvinnulífs skrifuðu utanríkisráðherra á ensku. Með því segir hann samtökin gefa skít í íslensku. Innlent 11.8.2023 19:21
Íslensk ungmenni geta ferðast og starfað í Kanada í allt að tvö ár Íslensk ungmenni á aldrinum 18 til 30 ára munu geta ferðast og starfað í Kanada í allt að tvö ár þökk sé nýundirrituðum samningi. Um er að ræða gagnkvæman samning sem tryggir ungu fólki frá Kanada sömu réttindi. Innlent 8.8.2023 11:34
Starfsemi sendiráðsins lögð niður í dag Starfsemi sendiráðs Íslands í Moskvu verður lögð niður í dag. Verkefni ráðuneytisins, sem hefur einnig verið með fyrirsvar gagnvart Armeníu, Belarús, Kasakstan, Kirgistan, Moldóvu, Tadsíkistan, Túrkmenistan og Úsbekistan færast yfir á utanríkisráðuneytið. Innlent 1.8.2023 11:32
Bæði ríki græði á umdeildri Norðurljósarannsóknarmiðstöð Sendiherra Kína á Íslandi segir samstarf kína og Íslands á sviði jarðhita hafa borgað sig stórkostlega fyrir bæði lönd. Þá segir hann rannsóknarmiðstöð Norðurljósa sem reist var í Þingeyjarsýslu skila árangri til Íslendinga sem Kínverja. Innlent 31.7.2023 23:30
Bandarískur kjarnorkukafbátur við Ísland Bandaríski kjarnorkukafbáturinn USS Delaware kom í þjónustuheimsókn í íslenska landhelgi í dag. Varðskipið Þór fylgdi kafbátnum frá ytri mörkum landhelginnar í Stakksfjörð þar sem áhafnarmeðlimir voru teknir um borð í kafbátinn. Innlent 20.7.2023 15:51
Katrín situr á fundi með forseta Bandaríkjanna og leiðtogum Norðurlanda Joe Biden forseti Bandaríkjanna fundar þessa stundina með leiðtogum Norðurlandanna í Helsinki. Utanríkisráðherra segir niðurstöðu leiðtogafundarins í Vilnius í gær hafa verið sterka og endurspegla algera einingu og samstöðu með Úkraínu og framtíðar aðild landsins að NATO. Innlent 13.7.2023 12:04
Íslensk vegabréf Bobby Fischer fundust fyrir tilviljun Stefán Haukur Jóhannsson, sendiherra Íslands í Japan, afhenti Fischersetrinu á Selfossi tvö íslensk vegabréf skáksnillingsins Bobby Fischer sem gefin voru út árið 2005 þegar hann fékk ríkisborgararétt hér á landi. Vegabréfin voru týnd en fundust fyrir tilviljun, eitt í sendiráðinu í Japan og annað á skrifstofu utanríkisráðuneytisins. Lífið 11.7.2023 15:46
Hrókeringar í utanríkisþjónustunni Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra hefur tekið ákvörðun um flutning forstöðumanna sendiskrifstofa í utanríkisþjónustunni sem taka formlega gildi á næstunni. Innlent 7.7.2023 14:06
Sendiherrann sagður farinn úr landi Rússneski sendiherrann á Íslandi er sagður farinn úr landi. Íslensk stjórnvöld mæltust til þess að sendiherrann færi heim þegar þau ákváðu að loka íslenska sendiráðinu í Moskvu í síðasta mánuði. Innlent 3.7.2023 11:25
„Þetta eru ekki atvinnuhermenn eins og maður sér í bíómyndum“ Sérfræðingar slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu þjálfa úkraínska hermenn í bráðameðferð fyrir vígvellina. Deildarstjóri segir fyrstu mínúturnar skipta mestu máli svo fólki blæði ekki út. Innlent 1.7.2023 08:01
Sendiherrann pakkar saman og kveður Moskvu Árni Þór Sigurðsson, sem gegnt hefur embætti sendiherra Íslands í Moskvu síðustu misserin, hefur tekið saman föggur sínar og kvatt rússnesku höfuðborgina. Innlent 28.6.2023 13:58
Stjórnmálaskörungurinn Svandís á sviðið Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra var ótvírætt maður nýliðinnar viku. Hún átti stórleik á hinum pólitíska vettvangi og virðist standa uppi með pálmann í höndunum. Innlent 27.6.2023 07:58
Bein útsending: Blaðamannafundur forsætisráðherra Norðurlandanna og Trudeau Blaðamannafundur forsætisráðherra Norðurlandanna og Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, hefst í Vestmannaeyjum hefst um klukkan 13:20 í dag. Innlent 26.6.2023 13:20
Norrænir ráðherrar og Trudeau mættir til Eyja Forsætisráðherrar allra Norðurlandannan auk Kanada komu til Vestmannaeyja í gærkvöldi en árlegur sumarfundur norrænu forsætisráðherranna fer þar fram í dag. Innlent 26.6.2023 07:05
„Augljóst að eitthvað er að gerast og virðist vera nokkuð alvarlegt“ Utanríkisráðherra fylgist grannt með framvindu mála í Rússlandi og metur stöðuna klukkustund frá klukkustund. Hún segir stöðuna ekki koma á óvart þar sem þetta hafi verið ein af þeim sviðsmyndum sem hafi verið teiknaðar upp. Þó sé enn óljóst að leggja mat á hvað raunverulega sé að gerast. Innlent 24.6.2023 16:13
Hannes afhenti Selenskí trúnaðarbréf sitt Hannes Heimisson, sendiherra Íslands í Varsjá, afhenti í gær Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands gagnvart Úkraínu. Innlent 22.6.2023 17:41
„Íslenska leyniþjónustan“ hafi kynt undir mótmælaölduna Mohammed Kazemi, herforingi og yfirmaður leyniþjónustu íranska hersins, sakar leyniþjónustur tuttugu ríkja um að kynda undir mótmælaölduna sem geisað hefur í landinu í tæpt ár. Ísland er þar á meðal. Innlent 21.6.2023 08:01
Hafa áhyggjur af kortlagningu Rússa á sæstrengjum Fulltrúar JEF ríkjanna, þar á meðal Íslands, funduðu á þriðjudag í Amsterdam. Eitt stærsta umræðuefnið á fundinum voru neðansjávarinnviðir sem ógnað er af Rússum. Innlent 15.6.2023 10:36
Utanríkisráðherrar Norðurlanda funduðu á Ísafirði Utanríkisráðherrar Norðurlanda funduðu í Edinborgarhúsinu á Ísafirði í morgun. Innrás Rússa var til umræðu og ræddi Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra þá ákvörðun sína að leggja niður starfsemina í sendiráði Íslands í Moskvu sem tilkynnt var um í liðinni viku. Innlent 13.6.2023 15:33
Staðarráðnum starfsmönnum og leigunni sagt upp Fimm staðarráðnum starfsmönnum íslenska sendiráðsins í Moskvu verður sagt upp í samræmi við gildandi ráðningarsamninga. Þá er gert ráð að leigusamningum fyrir húsnæði sendiráðsins og sendiherrabústað verði sagt upp. Innlent 13.6.2023 07:54
Segja ákvörðunina eiga eftir að eyðileggja allt samstarf Rússlands og Íslands And-rússneskum ákvörðunum íslenskra ráðamanna verður óhjákvæmilega svarað. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem rússneska utanríkisráðuneytið birti í dag í kjölfar ákvörðunar Þórdísar Kolbrúnar Gylfadóttur, utanríkisráðherra, um að leggja niður starfsemi sendiráðs Íslands í Moskvu, senda sendiherra Rússlands á Íslandi heim og draga þar með úr diplómatískum samskiptum ríkjanna. Innlent 10.6.2023 15:17
Fagna brottför rússneska sendiherrans Í kvöld fögnuðu mótmælendur ákvörðun utanríkisráðherra Íslands um að loka sendiráðinu í Moskvu og skipa Rússum að fækka starfsmönnum í sendiráðinu hér og að sendiherrann færi heim. Innlent 9.6.2023 22:02
Rússneski sendiherrann verði farinn fyrir mánaðamót Utanríkisráðherra segir enga ástæðu til að halda úti starfsemi sendiráðs í Moskvu þegar samskipti og viðskipti Íslands og Rússlands væru nánast engin og ætlar því að loka sendiráðinu. Það væri einnig hugsað í samhengi við alþjóðlegar aðgerðir til að einangra Rússa vegna innrásar þeirra í Úkraínu. Innlent 9.6.2023 19:21