Grindavík
10 11 12 13 14 15 16 17 18 … 74 ›
Nýrunnið hraun notað til að hækka varnargarðana Verktakar vinna nú allan sólarhringinn að varnargörðum umhverfis Grindavík áður en haldið er í kærkomið páskafrí. Nýrunnið hraun er notað til að hækka garðana. Innlent 26.3.2024 19:20
Ekki forsvaranlegt að opna Bláa lónið að mati lögreglu Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir óbreytt ástand í Grindavík og í kring og því ekki forsvaranlegt að halda úti starfsemi í Bláa lóninu á meðan eldgos er enn í gangi. Það eigi einnig við um aðra starfsemi á svæðinu. Innlent 26.3.2024 15:42
Sprungufylling á borði bæjarstjórnar en eðlilegt að hún óski hjálpar Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir ljóst að bæjarstjórn Grindavíkur þurfi að fara með umsjón sprungufyllinga í bænum. Það sé þó ekki óeðlilegt að sveitarfélagið óski eftir stuðningi til þess. Ótímabært sé þó að lofa einhverjum peningafjárhæðum í verkið. Innlent 26.3.2024 14:05
Vilja að ríkið fjármagni sprungufyllingar fyrir hundruð milljóna Bæjaryfirvöld í Grindavík kalla eftir því að ríkið komi að fjármögnun sprungufyllinga og viðgerða í bænum. Verkefnið hleypur á hundruðum milljóna. Níu svæði hafa verið girt af í bænum eftir að niðurstöður úr jarðvegsrannsókn sýndu fram á holrými og hættur sem leynast neðanjarðar. Innlent 25.3.2024 20:30
Jörðin í Grindavík gaf sig undan vinnuvél Vinnutæki af gerð sem kölluð er búkolla í daglegu máli hrundi að hluta til ofan í sprungu í Grindavík í dag. Verið var að álagsprófa nokkrar götur sem lokaðar voru almenningi. Vitað var af nokkrum sprungum og holrýmum og þungum ökutækjum var ekið um svæðið til að kanna burðargetu og öryggi gatnanna. Innlent 25.3.2024 15:53
Dregið úr gosinu en land rís enn Svo virðist sem dregið hafi úr eldgosinu við Sundhnúksgíga síðasta sólarhringinn. Virkni í gígunum er minni og mögulega slökknað í minnstu gígunum. GPS-mælingar síðustu daga benda þó til þess að landris sé í gangi í Svartsengi, en mun hægara en áður. Það bendir til þess að enn safnist kvika í söfnunarsvæðið undir Svartsengi þótt eldgos sé í gangi. Innlent 25.3.2024 15:42
Níu svæði í Grindavík girt af Búið er að girða af níu svæði í Grindavík sem talin eru hættuleg og vísbendingar eru um holrými. Það var gert um helgina í kjölfar niðurstaðna jarðkönnunnarverkefnis almannavarna. Verkefnastjóri segir vísbendingar um að fleiri svæði í bænum séu verr farin. Innlent 25.3.2024 12:13
Fylgdist með ókunnugum karlmanni fara inn í bílinn hans Íbúi í Grindavík er orðinn langþreyttur á því að ókunnugir geti valsað um í Grindavík. Ókunnugur karlmaður fór inn í bílinn hans í innkeyrslunni við yfirgefið hús hans í bænum. Hann kallar eftir aðgangspössum til Grindvíkinga og betra eftirlits til að standa vörð um eigur Grindvíkinga. Innlent 25.3.2024 10:45
„Gasið hefur ekkert risið“ Hætta er á gasmengun við Hafnir og í Grindavík í dag að sögn veðurfræðings hjá veðurstofunni, en há gildi brennisteinsdíoxíðs mældust þar í nótt og í morgun. Hraun lekur ennþá ofan í Melholsnámu og áfram er unnið að hækkun varnargarðanna. Innlent 24.3.2024 14:35
Myndir af eldstöðvunum úr lofti Enn gýs í Sundhnúkagígum og hraunið er orðið hærra en varnargarðarnir sums staðar við Grindavík. Eldstrókarnir sem teygja sig upp í næturhimininn eru sannarlega sjón að sjá. Innlent 23.3.2024 22:47
Starfsemi í lóninu vart forsvaranleg að mati lögreglu Lögreglustjórinn á Suðurnesjum telur vart forsvaranlegt að halda úti starfsemi í Bláa lóninu við núverandi aðstæður en hætta er talin á loftmengun vegna eldgossins á Sundhnúksgígaröðinni. Innlent 22.3.2024 22:12
Meta hvort hægt sé að nota hluta námunnar aftur Undirbúningur fyrir hækkun varnargarðanna norðan við Grindavík hefur staðið yfir í dag. Þá ætla sérfræðingar einnig að leggja mat á hvort hægt verði að sækja til þess efni í Melhólsnámu, eftir að hraun flæddi inn í hana í gær. Innlent 22.3.2024 21:26
Aukin hætta vegna gasmengunar Aukin hætta er vegna gasmengunar á öllum svæðum við eldstöðvarnar við Sundhnúk. Hætt er við því að gasmengun muni berast yfir Grindavík og önnur nærliggjandi svæði um helgina. Innlent 22.3.2024 16:27
Hyggjast opna námuna og sækja efni Verktakar sem vinna að vegagerð og varnargörðum á Reykjanesi hyggjast freista þess að opna Melhólsnámu, þar sem hraun flæddi inn í gærkvöldi. Til stendur að reyna að útvíkka námuna svo hægt sé að ná í efni sem notað yrði til að hækka varnargarða við Grindavík. Innlent 22.3.2024 11:04
Ekki útilokað að gosið endist í marga mánuði Kvikan sem safnaðist fyrir í Svartsengi flæðir nú beint upp og landri stöðvast. Jarðeðlisfræðingur segir yfirstandandi eldgos sambærilegt atburðum í Fagradalsfjalli. Engin merki séu um að gosið sé að minnka og það geti varað í margar vikur, jafnvel mánuði. Innlent 21.3.2024 23:45
Hraun fossar ofan í Melhólsnámu: „Bagalegt“ að missa námuna Hraunið sem kemur upp úr eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni fossar nú ofan í Melhólsnámu, sem hefur verið nýtt við gerð varnargarðanna. Innlent 21.3.2024 19:38
Hækkun varnargarða hafin: „Þetta er ekki snjór sem bráðnar“ Vinna við hækkun varnargarða norðaustan við Grindavík er þegar hafin að sögn jarðverkfræðings. Innlent 21.3.2024 17:48
Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Stjórn Fasteignafélagsins Þórkötlu ehf. hefur ráðið Örn Viðar Skúlason sem framkvæmdastjóra. Örn Viðar var á meðal 27 umsækjenda um starfið. Félaginu er ætlað að annast uppkaup ríkisins á fasteignum í Grindavíkurbæ vegna náttúruhamfara á Reykjanesi. Viðskipti innlent 21.3.2024 16:19
Starfsmaður Bláa lónsins á sjúkrahús vegna gaseitrunar Starfsmaður Bláa lónsins leitaði á sjúkrahúsí gær í kjölfar eitrunareinkenna vegna gasmengunnar. Alvarleiki veikindanna liggur ekki fyrir en öryggisstjóri aðgerða í Grindavík fundar með forsvarsmönnum Bláa lónsins. Innlent 21.3.2024 15:45
Hraunið að færast upp á varnargarðana Hraunrásin í eldgosinu á Reykjanesskaga hefur skriðið kröftuglega fram í dag og þrýstir nú á varnargarðana fyrir framan Grindavík. Mögulegt er að hraunið komist yfir garðana á næstu klukkustundum. Innlent 21.3.2024 14:48
Lönduðu eldsnemma í morgun þrátt fyrir eldgosið Áhöfn á Sturlu GK og landverkafólk útgerðafélagsins Þorbjarnar láta eldgosið sem er í námunda við Grindavík ekki á sig fá og lönduðu í Grindavíkurhöfn eldsnemma í morgun. Framkvæmdastjóri Þorbjarnar segir baráttuvilja í sínu fólki en það sé óskandi að náttúruöflin drægju sig í hlé. Innlent 21.3.2024 12:24
Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Svo virðist sem fasteignamarkaðurinn hafi hitnað í febrúar, en vísitala íbúðaverðs og gögn um fasteignaauglýsingar gefa vísbendingu um aukna virkni og hærra íbúðaverð. Breytingin er mest í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Viðskipti innlent 21.3.2024 07:48
Vinna hafin við nýjan Grindavíkurveg Vinna hófst í dag við að leggja veg yfir hraunið sem rann yfir Grindavíkurveg í eldgosinu sem nú stendur yfir. Jón Haukur Steingrímsson jarðverkfræðingur hjá Eflu telur að vegkaflinn verði um 300 til 400 metrar á lengd. Verkið mun taka nokkra daga. Innlent 20.3.2024 21:30
Grindvíkingar þrýsta á húsnæðismarkað Ný vísitala íbúðaverðs bendir til skarprar verðhækkunar á íbúðum í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Talið er að íbúðakaup Grindvíkinga séu helstu áhrifavaldurinn, og að áhrifin gætu orðið meiri á næstu mánuðum. Innlent 20.3.2024 18:49
Gosið stöðugt en dregur mögulega úr landrisi við Svartsengi Veðurstofa Íslands hefur uppfært hættumat á Reykjanesi vegna eldgossins. Eldgosið er enn stöðugt en mögulega dregur úr landrisi við Svartsengi. Innlent 20.3.2024 14:10
Vísbendingar um að gosið geti varað lengi Virkni eldgossins við Sundhnúk er enn stöðug nú þegar hátt í fjórir sólarhringar eru frá því það hófst. Jarðeðlisfræðingur segir vísbendingar um að þetta eldgos gæti orðið svipað þeim sem urðu í Fagradalsfjalli og því varað lengur. Innlent 20.3.2024 11:16
Töluverð kvikustrókavirkni enn í gangi Lítið virðist hafa dregið úr gosinu á Reykjanesi í nótt en sprungan sem gýs á virðist vera að þéttast í sjö til átta gíga. Innlent 20.3.2024 07:18
Ólíklegt að spilað verði í Grindavík í sumar Haukur Guðberg Einarsson formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur heimsótti bæinn í dag og sótti æfingabúnað fyrir fótboltafélagið. Hann verður fluttur yfir í Safamýri þar sem Grindavík hefur fótboltaaðstöðu í sumar. Hann telur ólíklegt að hægt verði að spila á Grindavíkurvelli í sumar. Innlent 19.3.2024 23:56
Nýr Grindavíkurvegur vonandi lagður til frambúðar Jarðverkfræðingur hjá Eflu segir óvissu ríkja um hraunrennsli í átt að Suðurstrandavegi þrátt fyrir að útlitið sé ágætt sem stendur. Unnið er að lagningu nýs Grindavíkurvegar sem hann vonar að verði til frambúðar. Innlent 19.3.2024 19:05
Segir ástandsskoðanir NTÍ í Grindavík fúsk Grindvíkingurinn Hilmar Freyr Gunnarsson vill að Alþingi fari yfir framkvæmd ástandsskoðana Náttúruhamfaratryggingu Íslands (NTÍ) á húsum í Grindavík. Hann segir framkvæmdina forkastanlega og fúsk. Forstjóri NTÍ segir aðeins um fyrstu matsgerð að ræða og hvetur fólk til að skila inn athugasemdum sé það ósátt. Innlent 19.3.2024 15:56