Skeiða- og Gnúpverjahreppur
1 2 3 4 5 6 7 … 7 ›
Talsmaður laxaverndar fagnar og vonar að virkjunin sé úr sögunni Virkjunaráform í neðri Þjórsá eru í algerri óvissu eftir að úrskurðarnefnd umhverfis og auðlindamála felldi virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar úr gildi í dag, aðeins sólarhring eftir að sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti framkvæmdaleyfi. Innlent 15.6.2023 20:20
Orkustofnun hafi átt að fara í mun nánari athugun Úskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi í dag úr gildi virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun. Í ítarlegum úrskurði nefndarinnar kemur meðal annars fram að Orkustofnun hafi, í ljósi umfangs framkvæmdanna, átt að fara í mun nánari athugun á leyfinu með hliðsjón af vatnaáætlun. Innlent 15.6.2023 19:35
Vonbrigði og slæmar fréttir fyrir íslenskt samfélag Landsvirkjun segir úrskurð úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, þar sem virkjunarleyfi Hvammsvikjunar er fellt úr gildi, vonbrigði. Ákvörðunin komi á óvart. Innlent 15.6.2023 17:49
Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar fellt úr gildi Úrskurðarefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt virkjunarleyfi Orkustofnunar vegna Hvammsvirkjunar úr gildi á grundvelli vatnatilskipunar. Innlent 15.6.2023 16:10
Er rammaáætlun hin nýja Grágás náttúrunnar? Dagurinn 14. júní verður lengi í minnum hafður í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, dagurinn þegar meirihluti sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti framkvæmdaleyfi Hvammsvirkjunar. Var náttúra og landslag þar að engu höfð. Skoðun 15.6.2023 07:31
Þrjátíu ára deilum um Hvammsvirkjun lokið Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti nú undir kvöld framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun. Sveitarstjórn Rangárþings-ytra ákvað í dag að fresta kosningu um málið og Landsvirkjun getur því ekki enn hafist handa við framkvæmdir við virkjunina. Innlent 14.6.2023 20:08
Sveitarstjórn, stattu með sjálfri þér í dag og segðu Nei! Umsókn Landsvirkjunar um framkvæmdaleyfi fyrir byggingu Hvammsvirkjunar verður afgreidd á fundi sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps kl. 17 í dag. Ef sveitarstjórnin ætlar ekki að ganga gegn eigin orðum og svíkja sjálfa sig þá á hún aðeins einn kost. Hún verður að hafna umsókninni. Skoðun 14.6.2023 12:30
Sveitarstjórn frestar afgreiðslu á framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Sveitarstjórn Rangárþings ytra hefur ákveðið að fresta afgreiðslu á umsókn Landsvirkjunar um framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun til næsta aukafundar sveitarstjórnar. Lagt er til að umhverfisnefnd sveitarfélagsins gefist kostur á að fjalla um málið í ljósi þess að nýjar upplýsingar um ákveðna umhverfisþætti hafi borist sveitarstjórn. Innlent 14.6.2023 10:35
Hvað kostar að sökkva framtíðinni? Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps ætlar að veita Landsvirkjun framkvæmdaleyfi fyrir gerð Hvammsvirkjunar í anddyri Þjórsárdals. Ákvörðunin um þessi óafturkræfu og víðtæku náttúruspjöll verður formgerð á fundi sveitarstjórnar í félagsheimilinu Árnesi miðvikudaginn 14. júní kl. 17.00. Skoðun 11.6.2023 14:30
Fernando Torres hámaði í sig súpu í Friðheimum Knattspyrnugoðsögnin Fernando Torres er á ferð um landið. Liverpoolmaður sem dýrkar hann og dáir hitti kappann í dag en beið með að nálgast hann þangað til hann var búinn að borða. Fótbolti 9.6.2023 18:28
Gullrós kom með fimm lömb annað árið í röð Ærin Gullrós er líklega með frjósömustu kindum landsins því hún bar fimm lömbum í gær og hún átti líka fimm lömb síðasta vor. Níu ára stelpa, sem á Gullrós hefur gefið einu lambanna nafnið Ósk og svo eru hún að leita af nöfnum á hin fjögur lömbin. Innlent 19.5.2023 20:06
Heyrnarlaus kind með 270 þúsund fylgjendur Kindin Sunna er án nokkurs vafa frægasta kind Íslands því hún á sér tvö hundruð og sjötíu þúsund fylgjendur á Instagram. Ástæðan er sú að Sunna er heyrnarlaus og hagar sér alls ekki eins og kind heldur miklu frekar eins og gæludýr. Innlent 13.5.2023 21:05
Ný Þjórsárbrú við Árnes gæti farið í útboð í haust Ný brú yfir Þjórsá á móts við þorpið Árnes er núna á lokastigi hönnunar og gæti farið í útboð í haust. Brúin styttir vegalengdir um tugi kílómetra milli efstu byggða í Árnes- og Rangárvallasýslu en brúarsmíðin er hluti af vegagerð Landsvirkjunar vegna fyrirhugaðrar Hvammsvirkjunar. Innlent 1.5.2023 07:55
Allt fullt af fólki í sumarbústöðum yfir páskana Allir sumarbústaðir, sem skipta þúsundum í Uppsveitum Árnessýslu eru fullir af fólki nú um páskahelgina. Sundlaugarnar eru vinsælasti afþreyingastaður fólksins í fríinu sínu. Innlent 8.4.2023 13:05
Byrjað verði að byggja yfir rústirnar í Stöng í Þjórsárdal í sumar Framkvæmdasýslan Ríkiseignir hafa birt auglýsingu um útboð framkvæmda við bæjarrústir Stangar í Þjórsárdal og er vonast til að hægt verði að hefja framkvæmdir í sumar. Innlent 30.3.2023 07:31
Kúamessa í stærsta fjósinu á Suðurlandi Heldur óvenjuleg messa verður haldin á morgun, en það er Kúamessa í stærsta fjósinu á Suðurlandi. Tveir kórar munu syngja í messunni. Presturinn hefur mestar áhyggjur af því að verða baulaður niður af kúnum Innlent 18.3.2023 20:31
Sveitarfélögin færi Landsvirkjun milljarðahagnað á silfurfati Nær engar tekjur skila sér af fasteignagjöldum virkjana, til sveitarfélaga og nærsamfélagsins. Þetta segir sveitastjóri Skeiða og Gnúpverjarhrepps sem vill taka málið til gagngerrar endurskoðunar. Innlent 12.3.2023 13:46
Sprengisandur: Virkjanir, iðnaður, flóttafólk og breytingar á verslun Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og hér á Vísi frá klukkan tíu til tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni. Innlent 12.3.2023 09:31
Eignarnámsógn í samningaviðræðum við landeigendur við Þjórsá Í gær kom svar upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar við grein minni „Eru samningar Landsvirkjunar við landeigendur við Þjórsá löglegir?“. Ég verð eiginlega að þakka upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar fyrir þetta svar því það reitti landeigendur í Skeiða- og Gnúpverjahreppi það mikið til reiði að þeir fundu sig knúna, í fyrsta skipti, til að tjá sig opinberlega um samningagerðina. Skoðun 15.2.2023 10:00
Já, samningarnir eru löglegir Við samningagerð milli landeigenda við Þjórsá og Landsvirkjunar var ekki rætt um eignarnám og fullyrðingum um meinta þvingun í garð landeigenda er harðlega mótmælt. Landsvirkjun hefur gert fjölda samninga við landeigendur á svæðinu. Skoðun 14.2.2023 10:01
Undirsláttur nýju brúarinnar farinn að skemmast Undirsláttur nýrrar brúar yfir Stóru-Laxá er þegar farinn að skemmast vegna mikilla vatnavaxta. Rjúfa þarf veginn við ána svo stórt tjón verði ekki á brúnni. Innlent 13.2.2023 19:42
Eru samningar Landsvirkjunar við landeigendur við Þjórsá löglegir? Þann 17. janúar síðastliðinn birti ég greinina Samfélagsleg áhrif af sambúð með Landsvirkjun á visir.is. Í henni skoðaði ég samfélagsleg áhrif af ríflega hálfrar aldar sambýli Landsvirkjunar og Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Ég bar saman bæði mannfjöldaþróun og rekstrarniðurstöðu sveitarfélagsins við nágrannasveitarfélögin. Í þeim samanburði kom Skeiða- og Gnúpverjahreppur verst út og vil ég meina að sambúð við Landsvirkjun hafi þar áhrif. Skoðun 13.2.2023 10:30
Kýrin Fata mjólkar mest allra kúa á Íslandi Afurðahæsta kýr landsins á nýliðnu ári er Fata á bænum Gunnbjarnarholti í Skeiða og Gnúpverjahreppi. Fata, sem er að verða átta ára og hefur eignast fimm kálfa, þar af tvær kvígur mjólkaði tæplega fimmtán þúsund lítra af mjólk á 11 mánaða tímabili. Innlent 28.1.2023 10:23
Stóra-Laxá ruddist fram: „Þetta var mjög tæpt“ Stóra-Laxá rauf stíflu við Laxárdal um klukkan 13 í dag. Ákvörðun um að rjúfa Skeiða- og Hrunamannaveg í sundur við brúna yfir Stóru-Laxá, sem er enn í smíðum, virðist hafa bjargað brúnni. Innlent 21.1.2023 15:59
Búið að rjúfa veginn við Stóru Laxá Nú er búið að rjúfa Skeiða- og Hrunamannaveg til að verja nýja tvíbreiða brú, sem er verið að smíða yfir Stóru Laxá í ljósi asahlákunnar framundan. Innlent 19.1.2023 21:00
Smíða áttæring forfeðranna úr sunnlenskum skógarvið Meira en öld eftir að Íslendingar hættu almennt að róa til fiskjar á áttæringum eru menn aftur teknir til við að smíða slíkt skip, og það úr íslenskum skógarvið. Tilgangurinn er að halda upp á menningararfinn. Innlent 19.1.2023 11:05
Samfélagsleg áhrif af sambúð með Landsvirkjun Í viðtali sem birtist í Morgunblaðinu 6. janúar síðastliðinn við sveitastjóra Skeiða- og Gnúpverjahrepp, Harald Þór Jónsson, kemur fram að skoða þurfi áhrif fyrirhugaðrar Hvammsvirkjunar á samfélagið. Samfélagsleg áhrif Landsvirkjunar á þetta litla samfélag í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, þaðan sem ég er ættuð og ber sterkar taugar til, hafa lengi verið mér hugleikin. Ég tek undir þetta hjá Haraldi. Skoðun 17.1.2023 07:00
Landsvirkjun hefur sótt um framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Landsvirkjun hefur sótt um framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun, sem yrði fyrsta virkjunin í neðri Þjórsá, 95 megavött að stærð. Innlent 24.12.2022 14:29
Rafmagnslaust víða í uppsveitum Árnessýslu Rafmagnslaust er víða í uppsveitum Árnessýslu eftir að bilun varð í aðveitustöðinni á Flúðum. Bilunin hefur áhrif í Hrunamannahreppi og Skeið- og Gnúpverjahreppi og er unnið að viðgerð. Innlent 8.12.2022 09:55
Landsvirkjun áformar meiri orkuöflun á fjórum stöðum Ný orkuöflun Landsvirkjunar stefnir í að verða mjög umfangsmikil á næstu árum, að sögn forstjórans. Auk Hvammsvirkjunar áformar fyrirtækið stækkun virkjana á Þeistareykjum og við Sigöldu sem og vindorkulund við Búrfell. Viðskipti innlent 6.12.2022 11:12