
Tálknafjörður

Tók langan tíma að finna uppruna ammoníaklekans
Slökkvilið Vesturbyggðar vann að því í allan dag að leita að ammoníakleka í gömlu frystihúsi á Tálknafirði, nú Vesturbyggð. Tilkynnt var um mikla ammoníaklykt um klukkan 2:23 í nótt. Lekinn var að enda fundinn en slökkvilið segir að það hafi „heldur betur bæst í reynslubankann“ í dag.

Sameinað sveitarfélag heitir Vesturbyggð
Ákveðið var á fundi bæjarstjórnar sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar í dag að sveitarfélagið eigi að heita Vesturbyggð. Ákvörðunin er í samræmi við niðurstöðu íbúakönnunar sem fór fram frá 11. til 17. júní.

Fyrsti rampurinn vígður á Vestfjörðum í Römpum upp Ísland
Fyrsti rampurinn á Vestfjörðum í átakinu Römpum Upp Ísland var vígður í síðustu viku. Rampurinn er sá tólfhundraðasti í röðinni en stefnt er að því að reisa alls 1.500 rampa í átakinu í þágu hreyfihamlaðra fyrir 11. mars 2025.

Úr sex nöfnum að velja á nýjasta sveitarfélag landsins
Á fyrsta fundi sameiginlegrar sveitarstjórnar Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar var lögð fram umsögn örnefnanefndar um þær tillögur sem bárust um nafn á þetta nýjasta sveitarfélag Íslands.

Eldislax slapp úr landi og út í sjó
Eldislax strauk úr fiskeldisstöð Arctic Smolt að Norður-Botni í Tálknafirði á föstudag. Matvælastofnun barst tilkynning frá stöðinni um strokið.

Nýtt sveitarfélag
Það er ekki á hverjum degi að nýtt sveitarfélaga lítur dagsins ljós. Nú um helgina verður því fagnað á Vestfjörðum þegar Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur sameinast. Þar sem Hrafna- Flóki settist að og gaf landinu nafnið Ísland og annar sagði að þar drypi smjör af hverju strái.

Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags
Listi Nýrrar sýnar hlaut meirihluta bæjarstjórnarsæta í kosningum í sameinuðu sveitarfélagi Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps í gær. Oddviti listans segir mörg stór verkefni bíða nýrrar sveitarstjórnar, mikil orkuþörf sé á svæðinu og byggja þurfi nýjan skóla á Bíldudal.

Ný sýn fékk meirihluta
Listi Nýrrar sýnar hlaut meirihluta bæjarstjórnarsæta í kosningum í sameinuðu sveitarfélagi Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps í gær.

Hættir sem bæjarstjóri Vesturbyggðar
Þórdís Sif Sigurðardóttir núverandi bæjarstjóri Vesturbyggðar segir í tilkynningu á Facebook að hún ætli ekki að gefa kost á sér í starf bæjarstjóra í kosningum sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar í sumar.

Óska eftir nafnatillögum á sameinað sveitarfélag
Sveitarfélögin Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð hafa óskað eftir tillögum frá íbúum að nafni nýs sameinaðs sveitarfélags.

Gleðjast yfir því að þurfa ekki í hálkuna á Hjallahálsi
Vegfarendur sem ekið hafa nýja veginn um Teigsskóg eru byrjaðir að lýsa reynslu sinni og birta myndir á samfélagsmiðlum. Vegurinn var opnaður umferð í gær, átján mánuðum eftir að Vegagerðin og Borgarverk undirrituðu samning um vegagerðina, sem sannarlega má telja einhverja þá umdeildustu hérlendis, en áður hafði verið deilt hart um vegstæðið í tvo áratugi.

Forviða yfir því að enginn hafi stöðvað útbreiðslu lúsarinnar
Fyrrverandi prófessor í velferð fiska segist aldrei hafa séð eins sára laxa eftir lús og þá sem eru í kvíum Arctic Fish og Arnarlax í Tálknafirði. Hann segist forviða yfir því að ekki hafi verið brugðist fyrr við.

Vill stjórnendur laxeldisfyrirtækja í fangelsi
Um milljón lúsugum löxum hefur verið slátrað eða þeir drepist í sjókvíum í Tálknafirði. Talsmaður náttúruverndarsamtaka segir útilokað annað en að fiskarnir þjáist miðað við núverandi rekstrarfyrirkomulag. Hann kallar stjórnendur fyrirtækjanna glæpamenn.

„Ég ætlaði varla að trúa þessu“
Um milljón eldislaxa hafa drepist eða verið fargað í kvíum Arctic Fish og Arnarlax í Tálknafirði. Náttúruverndarsinni sem skoðaði kvíarnar segir alla laxa ofan í kví félagsins í Tálknafirði hafa verið lúsétna. Hún hafi varla trúað eigin augum.

Um milljón laxar orðið fordæmalausum lúsafaraldri að bráð
Að minnsta kosti ein milljón laxa hefur drepist eða verið fargað í fordæmalausum laxalúsafaraldri í Tálknafirði.

Sameiningin samþykkt
Sameining sveitarfélaganna Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar hefur verið samþykkt í báðum sveitarfélögum. Talningu lauk í kvöld og úrslit voru kynnt á ellefta tímanum.

Segja sjókvíaeldi hafa verið stundað leyfislaust í tvo mánuði
Náttúruverndarsamtökin „Laxinn lifi“ segja Artic Sea Farm hafa stundað sjókvíaeldi í Patreksfirði og Tálknafirði leyfislaust í tvo mánuði. Samtökin segja að leyfið virðist hafa runnið út og krefjast þess að starfseminni verði þá þegar hætt.

Slátra lúsahrjáðum laxi fyrir veturinn
Þúsund tonnum af sjókvíaeldislaxi hefur verið slátrað í Tálknafirði. Fyrirtækin Arctic Sea Farm og Arnarlax hafa undanfarna mánuði glímt við mikla laxalús sem er ástæða förguninnar.

Kjörbíllinn þræðir sunnanverða Vestfirði í sameiningarkosningum
Íbúakosningar um sameiningu Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar standa nú yfir og hefur þar meðal annars verið notast við færanlegan kjörstað, svokallaða „Kjörbíl“.

Óvenju mikið af lús á Vestfjörðum
Óvenjuslæm staða er hvað varðar laxalús á í eldiskvíum á Vestfjörðum. Matvælastofnun (MAST) hefur heimilað lyfjameðhöndlanir á átta eldissvæðum vegna þessa.

Að brenna bláa akurinn
Í dag og alla þessa viku eru starfsmenn Arnarlax að hella skordýraeitri í sjókvíar fyrirtækisins í Tálknafirði fyrir vestan sökum þess hversu illa haldnir eldislaxarnir í sjókvíunum eru af völdum gríðarlegs lúsasmits. Þessar eitranir hófust í síðustu viku.

Munaði um hvern mann í björgunaraðgerðum gærkvöldsins
Það gekk hratt og örugglega að koma rannsóknarskipinu Bjarna Sæmundssyni á flot eftir að það strandaði á Sveinseyri í gærkvöldi. Flytja þurfti átta skipverja af tuttugu frá borði og í fjöldahjálparstöð á Tálknafirði.

Bjarni kominn á flot
Rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson er laust af strandstað. Skipið strandaði á Sveinseyri í Tálknafirði á tíunda tímanum í kvöld.

Rannsóknarskip Hafró strand í Tálknafirði
Rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson strandaði á Sveinseyri í Tálknafirði á tíunda tímanum í kvöld. Björgunarbátar Slysavarnarfélagsins Landsbjargar hafa verið kallaðir út og þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið vestur. Fleiri bátar hafa verið kallaðir út til aðstoðar.

Vilja samgöngubætur með sameiningu á Vestfjörðum
Íbúar Vesturbyggðar og Tálknafjarðar kjósa um sameiningu í næsta mánuði og reynir þá í fyrsta sinn á ný ákvæði um íbúakosningar, þess efnis að þær séu bindandi og standi í tvær vikur hið minnsta. Sveitarfélögin nýta tilefnið til að þrýsta á tvenn jarðgöng.

Suðurfjarðagöng
Í október næstkomandi munu íbúar í Tálknafjarðarhreppi og Vesturbyggð kjósa um það hvort að þessi tvö sveitarfélög sameinist í eitt. Verði tillagan samþykkt verður til nýtt sveitarfélag á sunnanverðum Vestfjörðum með þrjá aðskilda byggðakjarna við þrjá aðskilda firði sem tengjast með fjallvegum.

Djúpadalsbóndi segir Teigsskóg snjóakistu
Bóndinn sem býr næst Teigsskógi varar við miklum snjóþyngslum þar og mælist til að Hjallahálsi verði haldið sem vetrarvegi. Í Vesturbyggð óttast menn að þurfa að aka um Ódrjúgsháls í nokkur ár enn og krefst bæjarstjórinn þess að framkvæmdum verði ekki seinkað.

Óupplýsti drengurinn sem bað guð um að láta sig ekki vera homma
„Í ljósi mikillar upplýsingaóreiðu og heiftar sem ríkir núna gagnvart Samtökunum 78' og hinseginfræðslu í skólakerfinu langar mig að kynna ykkur fyrir sex ára barni.“ Svona hefst pistill leikarans Bjarna Snæbjörnssonar vegna umræðu um hinsegin fræðslu í skólakerfinu.

Vonbrigði á Vestfjörðum og áfall í Árneshreppi vegna niðurskurðar
Niðurskurður samgönguáætlunar seinkar uppbyggingu Vestfjarðahringsins um þrjú ár sem veldur Fjórðungssambandi Vestfirðinga miklum vonbrigðum. Í Árneshreppi eru íbúar í áfalli vegna áforma um að slá af marglofaðar vegarbætur, sem áttu að hefjast á næsta ári.

Samkomulag um áframhaldandi uppbyggingu Arctic Fish á Vestfjörðum
Arctic Fish ehf. hefur undirritað samkomulag um 25 milljarða króna endurfjármögnun á félaginu með sambankaláni DNB, Danske Bank, Nordea og Rabobank. Um er að ræða lánasamning til þriggja ára með möguleika á framlengingu. Fjármagnið verður notað til uppgreiðslu núverandi lána og fjármögnunar áframhaldandi vexti félagsins.