Keflavíkurflugvöllur
22 23 24 25 26 27 28 29 30 … 44 ›
Kári vill fjölga sóttkvíardögum milli skimana á landamærum Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar vill fjölga sóttkvíardögum á milli fyrri og seinni sýnatöku á landamærunum. Þá ætti að afnema með öllu skyldu útlendinga á atvinnulaysisbótum til að koma reglulega til landsins til að staðfesta að þeir séu enn atvinnulausir. Innlent 25.3.2021 11:57
Öflugustu sprengjuþotur Bandaríkjahers æfðu undan ströndum Íslands í fyrrinótt Tvær B-2 Spirit-herþotur og tvær B-1B Lancers-herþotur voru látnar hittast undan ströndum Íslands í fyrrinótt í æfingaflugi, sem Bandaríkjaher segir að hafi verið til að undirstrika þá miklu áherslu sem flugherinn leggi á norðurslóðir. Önnur tegundin er hljóðfrá, hin torséð og getur borið kjarnorkuvopn, og eru þær taldar skæðustu sprengjuþotur NATO-herja. Innlent 18.3.2021 06:32
Nýjar landamærareglur á Íslandi einsdæmi í Evrópu Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins leggur til að gefið verði út samevrópskt rafrænt grænt vottorð fyrir alla íbúa evrópska efnahagssvæðisins sem staðfesti stöðu þeirra gagnvart COVID-19. Nýjar reglur varðandi vottorð ferðamanna utan Schengens sem taka gildi á morgun eru einsdæmi innan Evrópska efnahagssvæðisins. Innlent 17.3.2021 19:21
Eftirlit tekið upp á innri landamærum Íslands Eftirlit verður tekið upp á innri landamærum Íslands eftir að fólki utan Schengen svæðisins sem hefur verið bólusett gegn Covid 19 verður leyft að koma til landsins. Yfirlögregluþjónn segir þetta auðvelda eftirlit með þeim sem koma til Íslands og frávísun þeirra sem ekki megi koma hingað. Innlent 17.3.2021 11:48
Norðmenn og Danir þyrftu ekki að fara í sóttkví tæki litakóðakerfi gildi í dag Heilbrigðisráðherra staðfestir að litakóðakerfi verði tekið upp á landamærum 1. maí. Þá fá Evrópulönd grænan, gulan eða rauðan lit eftir fjölda smita í landinu. Innlent 16.3.2021 20:00
Vill heldur að fyrirkomulag á landamærum taki mið af þróun faraldurs Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segist aðspurður í samtali við fréttastofu að hann hefði heldur viljað taka mið af þróun faraldursins áður en nokkru væri slegið föstu um fyrirkomulag á landamærunum. Innlent 16.3.2021 18:09
Hrósar ríkisstjórninni og segir ferðaþjónustuna fagna „Það er fagnað mjög og mikil gleði er á meðal ferðaþjónustufyrirtækja og ferðaþjónustunnar almennt.“ Innlent 16.3.2021 14:36
Þeir sem eru bólusettir utan Schengen mega koma til landsins Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að taka gild bólusetningarvottorð farþega sem koma til landsins frá ríkjum utan Schengen. Þar með má hleypa þeim inn í landið sem bólusettir eru gegn kórónuveirunni í til dæmis Bretlandi og Bandaríkjunum. Innlent 16.3.2021 11:25
Burðardýrið játaði en meintir skipuleggjendur neita Aðalmeðferð fer fram í dag í máli tveggja Spánverja, karls og konu á fertugsaldri, sem ákærð eru fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Þeim er gefið að sök að hafa þann 19. desember síðastliðinn staðið að innflutningi á tæplega fimm kílóum af hassi, um 5100 E-töflum og eitt hundrað stykkjum af LSD. Innlent 16.3.2021 10:14
Börn verði skimuð á landamærunum Sóttvarnalæknir hyggst leggja til að öll börn þurfi að undirgangast skimun við Covid-19 við komu þeirra til landsins. Hann mun skila af sér tillögum um næstu sóttvarnaaðgerðir á næstu dögum. Innlent 12.3.2021 19:16
Flugvallarstæði í Hvassahrauni á hættusvæði Samgönguráðherra segir að ef umbrotin á Reykjanesi leiði til eldgoss kalli það á endurmat á Hvassahrauni sem flugvallarkosti. Sérfræðingar segja Hvassahraun á hættusvæði, fari að gjósa. Innlent 2.3.2021 19:21
Sjö sendir til baka án gildra vottorða Fimm erlendir ferðamenn sem ekki gátu sýnt viðeigandi PCR-vottorð á landamærunum voru sendir tilbaka í morgun. Tveir erlendir ferðamenn verða sendir til baka á morgun. Innlent 2.3.2021 15:04
Svona yrði brugðist við á Keflavíkurflugvelli í eldgosi Litlar líkur eru á að hraun loki Keflavíkurflugvelli komi til eldgoss. Öskufall er helsti áhrifaþáttur á völlinn. Innlent 2.3.2021 12:27
Flugrútan hefur akstur á nýjan leik Flugrútan, sem hefur ekki verið í rekstri frá miðjum janúarmánuði, mun hefja akstur á ný á morgun. Akstrinum var hætt í janúar vegna lítillar notkunar komufarþega en flugferðum til og frá landinu hefur fækkað mikið síðasta tæpa árið vegna faraldurs kórónuveirunnar. Viðskipti innlent 26.2.2021 13:36
Einn sektaður á Keflavíkurflugvelli og öðrum vísað frá landinu Einn var sektaður um hundrað þúsund krónur fyrir að framvísa ekki neikvæðu PCR vottorði á Keflavíkurflugvelli í dag og öðrum sem ekki hafði neina fullnægjandi pappíra varðandi stöðu sína gagnvart covid 19 var vísað frá landinu. Innlent 25.2.2021 19:21
Ferðamenn frá smitlausu Grænlandi sleppa við PCR-próf Ferðamenn frá Grænlandi verða frá og með 24. febrúar 2021 undanþegnir kröfum um framvísun á vottorði um neikvætt PCR-próf, skimun og sóttkví vegna COVID-19 við komuna til Íslands. Þetta kemur fram á vef Landlæknis. Innlent 24.2.2021 16:55
Hundrað þúsund króna sekt við broti á reglum um PCR-próf Á næstu dögum þurfa þeir ferðalangar sem ekki framvísa nýlegu PCR-prófi fyrir brottför til Íslands að borga 100 þúsund krónur í sekt. Innlent 23.2.2021 16:49
Í skoðun að styrkja samgöngur til og frá flugvellinum Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur nú til skoðunar hvort og þá með hvaða hætti styrkja eigi samgöngur á milli Keflavíkurflugvallar og höfuðborgarinnar í ljósi þess að enn eru brögð að því að komufarþegar virði að vettugi reglur um sóttkví með því að láta vini og ættingja sækja sig á völlinn. Innlent 23.2.2021 12:09
Sektirnar verði alltaf hærri en kostnaður við að útvega sér vottorð Frá og með deginum í dag þurfa farþegar sem koma hingað til lands að framvísa neikvæðri niðurstöðu úr PCR-prófi við komuna ásamt því að fara í tvöfalda skimun. Sigurgeir Sigmundsson, yfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli, segir vinnuna tímafreka en dagurinn í dag hafi gengið vel. Innlent 19.2.2021 19:23
130 liðsmenn norska flughersins á leið til landsins Alls munu um 130 liðsmenn norska flughersins annast loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins við Ísland sem hefst eftir helgi. Innlent 19.2.2021 10:53
Fleiri flugvélar lentu á Akureyri en á Keflavíkurflugvelli Það hefur sjaldan verið eins tómlegt á Keflavíkurflugvelli þar sem farþegum hefur fækkað enn frekar undanfarnar vikur. Nú ráfa nokkrir tugir og kannski í mestu örfá hundruð farþega um flugstöðina á meðan það voru þúsundir og jafnvel upp í tugþúsundir manna á ferð á hverjum degi. Innlent 18.2.2021 21:01
„Erfitt að bregðast við því þegar fólk er með svo einbeittan brotavilja“ Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn segir að aukið eftirlit með komufarþegum á Keflavíkurflugvelli hafi meðal leitt til þess að fjölmargir panti leigubíl niður í bæ í Keflavík þangað sem ættingjar sækja þá. Innlent 18.2.2021 12:17
Fékk ekki að millilenda þrátt fyrir „gulltryggingu með tveimur mótefnamælingum“ Ísold Guðlaugsdóttir er búsett í Svíþjóð. Hún var búin að vera á Íslandi í um tvo mánuði en var snemma í gærmorgun mætt á Keflavíkurflugvöll þar sem hún átti flugmiða heim til Stokkhólms með millilendingu í Kaupmannahöfn. Hún fékk aftur á móti ekki að fara um borð í vélina til Kaupmannahafnar þar sem hvorugt skjalið sem hún var með í höndunum um að hún væri með mótefni gegn covid-19 var tekið gilt. Annað reyndist of gamalt og hitt of nýtt. Innlent 17.2.2021 23:23
Íslendingar komist heim án PCR-prófs en líkast til beittir sektum Engum íslenskum ríkisborgara verður meinað að koma til landsins samkvæmt reglugerð um kröfu á farþega um að framvísa neikvæðu PCR-prófi áður en þeir koma til Íslands. Framkvæmdin hefur enn ekki verið fullmótuð en grípa þyrfti til viðurlaga ef Íslendingur kemur ekki með neikvætt próf til landsins. Innlent 17.2.2021 14:41
Enginn til Íslands frá og með föstudegi án neikvæðs prófs Ný reglugerð varðandi aðgerðir á landamærunum tekur gildi á föstudag. Helsta breytingin er sú að komufarþegar verða nú krafðir um svokallað PCR-próf á brottfararstað og þarf prófið að sýna neikvæða niðurstöðu varðandi kórónuveirusmit. Innlent 16.2.2021 11:25
Ríkisstjórnin fjallar um nýjar tillögur Þórólfs varðandi landamærin Ríkisstjórnin mun á fundi sínum nú fyrir hádegi ræða nýtt minnisblað Þórólfs Guðnasonar, sóttvarnalæknis, þar sem hann leggur til hertar aðgerðir á landamærunum vegna kórónuveirufaraldursins. Innlent 16.2.2021 09:25
Sextán teknir fyrir brot á sóttkví Á einungis nokkrum vikum, eða frá 1. janúar til 5. febrúar, voru sextán einstaklingar sektaðir vegna brota á sóttkví eftir komuna til landsins. Innlent 15.2.2021 19:14
Lent á Íslandi eftir nærri tveggja ára kyrrsetningu Icelandair endurheimti í dag tvær fyrstu Boeing 737 Max-þotur sínar eftir nærri tveggja ára kyrrsetningu og lentu þær í Keflavík með stuttu millibili upp úr hádegi. Flugstjóri fyrri vélarinnar segir endurkomu þeirra gefa von um nýja og betri tíma fyrir félagið. Innlent 14.2.2021 21:36
Fyrstu MAX-vélarnar komnar til landsins Fyrstu tvær Boeing 737 MAX-þotur Icelandair lentu á Keflavíkurflugvelli á öðrum tímanum í dag. Alls á Icelandair sex slíkar vélar. Innlent 14.2.2021 14:27
Kanna heimildir til að sekta þá sem sækja farþega Lögreglan telur vert að kanna heimildir til að beita sektum gagnvart þeim sem sækja komufarþega á Keflavíkurflugvöll. 90 sóttu farþega á flugvöllinn um liðna helgi. Innlent 9.2.2021 11:57