
Keflavíkurflugvöllur

Styttist í Íslandsheimsókn Pence
Varaforseti Bandaríkjanna mun funda með forsætisráðherra þegar hann kemur til landsins. Hitti forseta Póllands í dag og ferðaðist til Írlands.

Katrín og Pence funda á Keflavíkurflugvelli
Fundurinn verður haldinn í húsi Landhelgisgæslunnar á Keflavíkurflugvelli að kvöldi 4. september þegar forsætisráðherra kemur til landsins af fundum í Svíþjóð og Danmörku.

Flugvél Icelandair snúið við til Keflavíkur vegna bilunar
Farþegaþotu Icelandair var snúið við á leið frá Keflavík til borgarinnar Zurich í Sviss í morgun.

Alþingi ráði uppbyggingu á varnarsvæði
Þingmaður Vinstri grænna, Kolbeinn Óttarsson Proppé, vill að Alþingi komi að ákvörðunum um umsvif herliðs hér á landi og hyggst leggja fram frumvarp til að breyta varnarmálalögum í þá átt.

Stálu snyrtivörum að andvirði tugþúsunda
Tvö þjófnaðarmál eru nú á borði lögreglunnar á Suðurnesjum. Málin komu bæði upp í komuverslun fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli fyrr í ágústmánuði.

Sjúkraþyrlur bandaríska hersins á Íslandi vegna heimsóknar Pence
Landhelgisgæslunni stendur til boða að kalla út þyrlurnar ef þörf þykir á meðan þær eru á landinu.

Sprengjuflugvél mátaði sig við Keflavíkurflugvöll
Bandarísk sprengjuflugvél af gerðinni B-2 Spirit staldraði við á Keflavíkurflugvelli í gær í tæpar tvær klukkustundir.

Mikil ókyrrð á Keflavíkurflugvelli vegna breytinga á vaktakerfi starfsmanna
Breytingarnar eru liður í hagræðingaraðgerðum Isavia vegna minni umsvifa á Keflavíkurflugvelli.

Loftslagshópur boðar alvöru aðgerðir
Loftslagshópur á vegum Landverndar boðar aktivisma og alvöru aðgerðir til að hvetja stjórnvöld til mun róttækari aðgerða í loftslagsmálum en nú liggur fyrir, eins og það er orðað í yfirlýsingu á vegum hópsins sem send var á fjölmiðla í nótt.

Þjónustuafgangur jókst þrátt fyrir fækkun ferðamanna
Þróunina má rekja til þess að Íslendingar ferðast minna.

Mjög óþægileg upplifun en hrósar flugmönnunum fyrir fumlaus viðbrögð
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, dagskrárgerðarkona á Stöð 2, var um borð í flugvél United Airlines sem snúið var við vegna bilunar í hreyfli skömmu eftir hádegi í dag. Hún segir tilfinninguna hafa verið óþægilega en að flugmennirnir hafi leyst vel úr stöðunni sem kom upp.

Tókst að lenda flugvélinni án vandkvæða
Búið er að virkja viðbúnaðarstig á Keflavíkurflugvelli eftir að flugmenn vélar Delta Airlines á leið frá Keflavík til New York óskuðu eftir því að koma inn til lendingar skömmu eftir flugtak.

Þrjú hundruð ný ársverk skapist á næstu þremur árum á Reykjanesi
Stjórnvöld hafa samþykkt að veita aukið fjármagn í verkefni á öryggissvæði Keflavíkurflugvallar vegna þeirrar stöðu sem skapaðist á vinnumarki í kjölfar gjaldþrots WOW air.

Mun minna hass haldlagt á Keflavíkurflugvelli í ár samanborið við síðasta ár
Haldlagt hass nemur 650 grömmum fyrstu sex mánuði þessa árs samanborið við tæplega fimm kíló á sama tímabili á síðasta ári.

Vél ráðherra bilaði í Keflavík
Airbus-flugvél þýska utanríkisráðherrans, Heiko Maas, bilaði tvisvar sinnum á leiðinni frá Þýskalandi til New York, í seinna skiptið á Keflavíkurflugvelli.

Framkvæmdir Bandaríkjahers skapa yfir 300 ársstörf
Fyrirhugaðar framkvæmdir Bandaríkjahers og Atlantshafsbandalagsins, sem áætla að verja samtals um fjórtán milljörðum króna til uppbyggingar og viðhalds á varnarmannvirkjum hér á landi á næstu árum, munu skapa rúmlega þrjú hundruð ársstörf á svæðinu á meðan á framkvæmdum stendur og meira þegar horft er til afleiddra starfa.

Icelandair fær harða samkeppni frá American Airlines í Fíladelfíu
Icelandair hafði hörfað frá Dallas vegna American Airlines.

Air Iceland Connect aftur hætt að fljúga milli Akureyrar og Keflavíkur
Markmið flugsins var að auka hlutdeild erlendra ferðamanna í innanlandsflugi.

Segir fjölgun gistirýma ekki þýða varanlega veru herafla
Á öryggissvæði Keflavíkurflugvallar er gert ráð fyrir umtalsverðri fjölgun gistirýma fyrir erlendan liðsafla. Hávær orðrómur hefur verið um endurkomu bandaríska hersins en upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins segir framkvæmdirnar ekki til marks um varanlega viðveru Bandaríkjahers hér á landi.

Farbann yfir grunuðum Oxycontin-smyglara framlengt
Rannsókn ekki lokið.

Áætlað er að framkvæmdir við varnartengd mannvirki á Keflavíkurflugvelli hefjist á næsta ári
Ögmundur segir það ömurlegra og alvarlegra en orð fá lýst ef Bandaríkjaher snýr aftur til Keflavíkur í boði hans gamla flokks, VG

22 ára íslensk kona grunuð um smygl á hátt í kílói af MDMA-dufti
22 ára íslensk kona var úrskurðuð í gæsluvarðhald um miðjan júlí grunuð um að hafa reynt að smygla hátt í kílói af MDMA í duftformi til landsins. Það sem af er ári hefur lögreglan á Suðurnesjum lagt hald á mun meira magn fíkniefna en allt árið í fyrra.


„Ömurlegra og alvarlegra en orð fá lýst“ snúi Bandaríkjaher aftur til landsins í boði VG
Fyrrverandi ráðherra VG er ekki ánægður með aðgerðarleysi flokksins og vill að þingmenn VG taki afdráttarlausari afstöðu.

Kröfuhafar í þrotabú WOW Air gagnrýna harðlega greiðslufrestinn
Heimildamaður fréttastofu segir vinnubrögð skiptastjóra þrotabúsins forkastanleg.

British Airways fækkar ferðum til Íslands í vetur
Á komandi vetri verða ferðirnar sjö á viku yfir alla vetrarmánuðina.

Lögmaður Ballarin segir að víst sé unnið að samningum við Dulles-flugvöll
Fulltrúar flugvallarinar séu spenntir fyrir því að hýsa heimahöfn WOW-air.

Bandaríski herinn og NATO áætla að setja 14 milljarða í framkvæmdir hér á landi
Þar á meðal er viðhald á vegum NATO fyrir 4,5 milljarða króna. Einnig er gert ráð fyrir töluverðum framkvæmdum á Keflavíkurflugvelli.

Bandaríkin auglýsa útboð til framkvæmda á Keflavíkurflugvelli
Bandarísk yfirvöld hafa birt auglýsingu um útboð á hönnun- og framkvæmdum á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Forstjórinn segir hald sem Isavia hafði vegna skuldar WOW air flogið í burtu
Forstjóri Isavia segir að það hald sem félagið hafði vegna tveggja milljarða króna skuldar WOW air hafi flogið í burtu í morgun þegar flugvél ALC leigusalans yfirgaf Ísland. Mikilvægt sé að Landsréttur taki til meðferðar kæru Isavia vegna úrskurðar héraðsdóms í vikunni um að eigandinn fengi vélina sína afhenta á ný.