Viðskipti

Fréttamynd

Morgan Stanley brotlegt

Ráðgjafa- og fjármálafyrirtækið Morgan Stanley, sem er ráðgjafi íslensku ríkisstjórnarinnar við sölu á Landssímanum, hefur gerst brotlegt við reglur norrænu raforkukauphallarinnar Nord Pool.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sýslumaður samþykkti beiðni Kers

Sýslumaðurinn í Reykjavík samþykkti í dag beiðni Kers og fleiri hluthafa í Festingu ehf. um að setja lögbann við því að Angus hagnýti sér þann rétt sem fylgir hlutafjáreign félagsins í Festingu. Jafnframt var lagt lögbann við því að Angus gæti framselt hluti sína til þriðja aðila. Lögbannið tekur gildi síðar í dag þegar lögð hefur verið fram 75 milljóna króna trygging af hálfu Kers.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Leitað eftir samstarfi um kaup

Þreifingar hafa verið um nokkurra vikna skeið um samstarf VÍS, Meiðs og Björgólfs Thors Björgólfssonar um kaup á meirihluta í Símanum. Sex hafa lýst yfir áhuga á að bjóða í Símann í samstarfi við Björgólf Thor og fyrirtæki tengd honum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vinnslustöðin umbunar starfsfólki

Stjórn Vinnslustöðvarinnar hf. hefur ákveðið að umbuna fastráðnum starfsmönnum sínum til sjós og lands fyrir vel unnin störf með því að afhenda þeim hlutabréf í félaginu að nafnvirði um 2 milljónir króna. Heildarverðmæti bréfanna er um 8 milljónir króna miðað við gengið 4, síðasta skráða gengi hlutabréfa í Vinnslustöðinni í Kauphöll Íslands.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Útlit fyrir fimm milljarða halla

Útlit er fyrir að vöruskiptahalli í mars verði rúmir fimm milljarðar, en innflutningur í mánuðinum var 16 prósentum meiri en á sama tímabili í fyrra. Þetta er meðal þess sem fram kemur í hálffimm-fréttum KB banka.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Síminn ekki á hendi eins aðila

Formaður einkavæðinganefndar segir grundvallarhugsunina við sölu Símans þá, að enginn einn aðili nái yfirráðum í félaginu. Árið 2008 verður búið að skrá Símann á markað og öll skilyrði um eignarhald falla niður. Þá verður að vera búið að selja 30 prósent til almennings og annara fjárfesta.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fjármálaþjónusta jöfn sjávarútvegi

Fjármálaþjónusta er orðin ein af undirstöðuatvinnugreinum Íslands og skilar jafn miklu til þjóðarbúsins og sjávarútvegur. Líkja má þróun undanfarins áratugar við það sem gerðist í Austur-Evrópu eftir fall kommúnistastjórna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Í skugga hákarlanna

Sparisjóðirnir hafa hver á fætur öðrum birt uppgjör fyrir árið 2004 og fara þeir ekki varhluta af góðærinu frekar en aðrar fjármálastofnanir. Samanlagður hagnaður stærstu sparisjóðanna varð meiri en nokkru sinni fyrr og efnahagur þeirra þandist út. </font />

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Varað við sænsku fyrirtæki

Samtök atvinnulífsins vara á heimasíðu sinni við sænska félaginu Nordisk Industri, sem hefur skrifað íslenskum fyrirtækjum og óskað eftir almennum upplýsingum um þau. Samtökin telja að þarna séu svikahrappar á ferð og segja að nokkuð hafi borið á því að að íslenskum fyrirtækjum hafi borist erindi frá sænska fyrirtækinu þar sem óskað er skriflegrar staðfestingar á faxi á upplýsingum, meðal annars um símanúmer og heimilisfang.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

80% hagnaðaraukning á árinu

Hagnaður helstu félaganna í Kauphöllinni á fyrstu þremur mánuðum ársins eykst um tæp 80 prósent milli ára ef afkomuspá greiningardeildar Íslandsbanka gengur eftir. Munar þar mestu um 11,3 milljarða króna hagnað KB banka en hagnaður KB banka á sama tíma í fyrra var 2,65 milljarðar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Úrvalsvísitala yfir 4000 stig

Úrvalsvísitalan náði nýju hámarki í dag þegar hún fór í fyrsta sinn yfir fjögur þúsund stig. Það sem af er ári hefur hún hækkað um nærri tuttugu prósent og enn er talið svigrúm til hækkunar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Rúmir 20 milljarðar í arð frá 1989

Landssíminn hefur greitt ríkissjóði rúmlega 20 milljarða króna í arðgreiðslur frá árinu 1989 að því er fram kemur í svari Geirs Haarde fjármálaráðherra við fyrirspurn Steingríms J. Sigfússonar, þingmanns Vinstri - grænna, um greiðslur Landssímans til ríkisins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Síminn: Annarlegir hagsmunir?

Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans, telur að fyrirkomulagið við sölu á hlut ríkisins í Landssímanum sé ógegnsætt og ekki líklegt til að skila ríkissjóði sem mestum hagnaði. Það ýti einnig undir sögusagnir um að annarlegir hagsmunir ráði ferðinni.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Esso dró hækkun til baka

Olíufélagið Esso ákvað í gærkvöld að draga til baka hækkun sína á eldsneyti frá því á miðnætti í fyrrakvöld. Í tilkynningu frá félagin segir að ástæðan fyrir þessari breytingu sé markaðsaðstæður á Íslandi en Olíufélagið vilji ætíð tryggja að viðskiptavinir þess njóti samkeppnisfærra verða á hverju markaðssvæði fyrir sig.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Actavis sendir lyf til Rússlands

Lyfjafyrirtækið Actavis hefur sent fyrstu lyfjasendinguna til Rússlands af lyfjum sem framleidd eru á Íslandi en fyrirtækið sendi um tvær milljónir taflna af hjartalyfinu lisinopril í byrjun apríl. Í tilkynningu frá Actavis segir að Rússland og nálæg lönd séu stór markaður fyrir Actavis og nemur salan þar um fimmtán prósentum af heildarsölu samstæðunnar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Segir söluferli Símans gagnsætt

Jón Sveinsson, formaður einkavæðingarnefndar, segir unnið að því að skilgreina vægi hvers þáttar sem horft verður til þegar tilboð fjárfesta í Símann verða metin. Það verði kynnt um leið og verklagsreglurnar liggi fyrir.

Innlent
Fréttamynd

Síminn: Tveir fjárfestar augljósir

Greiningardeild Íslandsbanka telur sölufyrirkomulagið á Símanum minnka líkur á að erlend símafyrirtæki geri tilboð. Tveir fjárfestahópar séu hins vegar augljósir: hópur í kringum Burðarás, Landsbankann og eigendur Samsonar annars vegar, og hópur í kringum Meið, VÍS og KB banka hins vegar - en fleiri muni væntanlega gera tilboð.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sölu Símans verði lokið í júlí

Allur eignarhlutur ríkisins í Símanum verður seldur í einu lagi til hóps fjárfesta í júlí í sumar. Enginn fjárfestir í hópnum má eiga meira en 45 prósent hlut í fyrirtækinu og verða því að minnsta kosti þrír aðilar að vera á bak við hvert tilboð. Fyrir árslok 2007 verður að bjóða almenningi og öðrum fjárfestum að kaupa 30 prósent af heildarhlutafé.

Innlent
Fréttamynd

Síminn: 30% boðið almenningi

Hlutur ríkisins í Símanum verður seldur kjölfestufjárfesti í einu lagi og er stefnt að því að ljúka sölunni í júlí á þessu ári. Þrjátíu prósent af heildarhlutafé Símans skal boðið almenningi og öðrum fjárfestum til kaups fyrir árslok 2007.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Afgreiðslu lögbannsbeiðni frestað

Fulltrúi sýslumannsins í Reykjavík frestaði í gær úrskurði um lögbannsbeiðni á hlutafjáraukningu í Festingu, sem á og rekur fasteignir Olíufélagsins Essó og Samskipa. Verður málið tekið fyrir næsta föstudag.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Síminn seldur í heilu lagi

Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur hafa náð samkomulagi um að selja hlut ríkisins í Símanum einum hópi kjölfestufjárfesta. Ríkisstjórnin hóf fund klukkan tólf sem er óvenjulegur fundartími og -dagur þar sem á að ræða málefni Símans.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sölunni á að ljúka í sumar

Síminn verður seldur í einu lagi, einum hópi fjárfesta, og má hver þeirra ekki eiga meira en 45% í fyrirtækinu. Ekki hefur verið ákveðið hvað verðið skiptir miklu máli en auglýst verður eftir áhugasömum kaupendum á morgun og á sölunni að ljúka í júlí.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sáttaumleitanir í kringum Ker

Boðað var til fundar í stjórn Festingar í gærkvöld vegna deilna sem hafa staðið um hlutafjáraukningu félagsins 22. mars sl. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins vilja hluthafar vinda ofan af þeirri stöðu sem upp er komin í kringum félagið.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Blaðamannafundur vegna Símans

Framkvæmdanefnd um einkavæðingu hefur boðað til blaðamannafundar klukkan 16 í dag í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu. Fundarefnið er fyrirkomulag sölu á hlut ríkisins í Landssímanum.

Innlent
Fréttamynd

Olíuverð hækkar áfram

Olíuverð heldur áfram að hækka og í morgun var verðið á olíufatinu orðið tæpir fimmtíu og átta dollarar. Forystumenn OPEC, Samtaka olíuútflutningsríkja, hafa boðað til fundar þar sem rætt verður um leiðir til þess að auka framboð á olíu til að sporna við hinu háa verði.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Kröfur þrettánfalt hærri en eignir

Lýstar kröfur í þrotabú Fróða, stærstu tímaritaútgáfu landsins, nema rúmlega hálfum milljarði króna. Eignir í búinu eru tæplega 40 milljónir. Skiptastjóri hafnaði einu forgangskröfunni í búið sem kom frá fyrrverandi eiganda Fróða.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Síminn seldur þremur fjárfestum

Síminn verður seldur í einu lagi en að lágmarki til þriggja fjárfesta. Um þetta hafa formenn stjórnarflokkanna náð samkomulagi samkvæmt heimildum <em>Morgunblaðsins</em>. Segir þar að samkomulagið feli það í sér að hver hópur tilboðsgjafa verði að vera samansettur af þremur viðskiptahópum eða einstaklingum og má enginn þeirra eiga meira en 40-45 prósenta hlut.

Innlent