Íþróttir

Fréttamynd

Dirk Kuyt meiddur

Sóknarmaðurinn Dirk Kuyt hjá Liverpool verður hugsanlega ekki með hollenska landsliðinu í vináttuleiknum gegn Englendingum í Amsterdam annað kvöld, eftir að ökklameiðsli sem hafa hrjáð hann síðustu vikur tóku sig upp að nýju.

Fótbolti
Fréttamynd

Það voru mistök að ráða Dowie

Peter Varney, framkvæmdastjóri Charlton, segir að félagið hafi gert mistök þegar það réð Ian Dowie sem knattspyrnustjóra í sumar og viðurkennir fúslega að félagið sé að taka áhættu með því að láta Les Reed taka við af honum.

Enski boltinn
Fréttamynd

Richards í byrjunarliði Englendinga

Micah Richards verður á morgun yngsti varnarmaður til að spila í byrjunarliði enska landsliðsins þegar það mætir Hollendingum í vináttuleik. Richards kemur inn í liðið í stað Gary Neville sem er meiddur. Wayne Rooney og Andy Johnson leika saman í framlínu enska liðsins, en leikurinn verður sýndur beint á Sýn annað kvöld klukkan 18:50.

Fótbolti
Fréttamynd

Les Reed tekur við Charlton

Forráðamenn Charlton Athletic hafa falið Les Reed að taka við stjórn knattspyrnuliðsins í kjölfar þess að Ian Dowie var látinn fara í gær. Reed var áður aðstoðarmaður Dowie, en Reed til aðstoðar verður Mark Robson sem einnig er að fá stöðuhækkunhjá félaginu. Þá verður væntanlega ráðinn þriðji maður þeim til aðstoðar fljótlega.

Enski boltinn
Fréttamynd

Birgir Leifur áfram

Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson lauk fjórða hringnum á lokaúrtökumótinu fyrir evrópsku mótaröðina á einu höggi undir pari og er því í á meðal 30 efstu kylfinga á mótinu sem fram fer á Spáni. Tveir hringir eru óleiknir á mótinu og þar komast 30 af 70 efstu kylfingunum á Evrópumótaröðina á næsta tímabili og horfurnar því þokkalegar hjá Birgi.

Golf
Fréttamynd

Guardiola leggur skóna á hilluna

Fyrrum landsliðsmaður Spánar í knattspyrnu, Josep Guardiola, hefur lagt skóna á hilluna 35 ára gamall. Guardiola lék síðast sem atvinnumaður í Katar og Mexíkó, en hann spilaði lengst af með Barcelona þar sem hann vann spænsku deildina og Evrópukeppnina. Hann spilaði 47 landsleiki fyir Spánverja á árunum 1992-2000.

Fótbolti
Fréttamynd

Real kaupir Marcelo

Spænska knattspyrnufélagið Real Madrid hefur nú gengið frá samningi við brasilíska landsliðsbakvörðinn Marcelo og fréttir herma að hann hafi skrifað undir samning til ársins 2103. Marcelo verður ætlað að leysa landa sinn Roberto Carlos af hólmi í stöðu vinstri bakvarðar hjá Real í framtíðinni. Hann gengur formlega í raðir félagsins á morgun ef hann stenst læknisskoðun.

Fótbolti
Fréttamynd

De la Hoya og Mayweather berjast í maí

Oscar de la Hoya og Floyd Mayweather munu mætast í hringnum þann 5. maí. Þetta staðfesti De la Hoya í samtali við ESPN sjónvarpsstöðina í dag, en bardaga þeirra hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu í mörg ár. Bardaginn verður líklega síðasti bardagi þeirra beggja á ferlinum og líklegt er að báðir fái metupphæð fyrir bardagann, sem fram fer í Los Angeles eða Las Vegas.

Sport
Fréttamynd

Enn tapa New York og Boston

Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt og unnust þeir allir á útivöllum. Cleveland lagði New York í Madison Square Garden, Seattle vann óvæntan sigur á New Jersey og Orlando skellti Boston.

Körfubolti
Fréttamynd

Sigurður Jónsson tekur við Djurgården

Sigurður Jónsson, fyrrum þjálfari Víkings og Grindavíkur í Landsbankadeild karla, hefur verið ráðinn þjálfari sænska úrvalsdeildarfélagsins Djurgården og tekur formlega við starfi sínu 1. desember nk. Djurgården er sterkt lið og varð t.a.m. sænskur meistari á síðasta ári. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins, en Sigurður er nú kominn hingað til lands eftir að hafa skrifað undir þriggja ára samning við sænska félagið.

Fótbolti
Fréttamynd

Gummersbach mætir Medvedi

Í dag var dregið í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í handbolta. Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í þýska liðinu Gummersbach mæta rússneska liðinu Medvedi og Ólafur Stefánsson og félagar í Ciudad Real mæta danska liðinu GOG. Leikið verður 2. og 10. desember.

Handbolti
Fréttamynd

Larsson fer ekki frá Helsingborg

Martin O´Neill, stjóri Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni og fyrrum þjálfari sænska framherjans Henrik Larsson, segir algjörlega útilokað að fyrrum landsliðsframherjinn gangi í raðir Aston Villa eða Barcelona í janúar eins og mikið hefur verið rætt undanfarið.

Enski boltinn
Fréttamynd

Leikstíll Bolton hentar Anelka illa

Franski framherjinn Nicolas Anelka segist eiga erfitt með að aðlagast leikstíl Bolton í ensku úrvalsdeildinni og segist ekki finna sig þegar hann þurfi að spila einn í framlínunni. Anelka gekk í raðir Bolton í sumar frá Fenerbahce í Tyrklandi og hefur áður leikið með liðum eins og Arsenal og Real Madrid.

Enski boltinn
Fréttamynd

Curbishley hefur ekki áhuga á Charlton

Alan Curbishley segist ekki hafa áhuga á að snúa aftur til síns gamla félags Charlton í stað Ian Dowie sem sagði starfi sínu lausu í kvöld. Curbishley hefur verið atvinnulaus síðan hann hætti hjá Charlton í sumar eftir 15 ára starf.

Enski boltinn
Fréttamynd

Grindavík lagði ÍS í framlengdum leik

Grindavíkurstúlkur lögðu Stúdínur 64-62 í rafmögnuðum spennuleik í Kennaraháskólanum í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í kvöld. Fyrri hálfleikur var gríðarlega sveiflukenndur, en ÍS skoraði síðustu 5 stigin í fjórða leikhlutanum og tryggði sér framlengingu.

Körfubolti
Fréttamynd

Eigum ekki möguleika á titlinum

Jose Reina segir að leikmenn Liverpool séu búnir að afskrifa möguleika sína á því að vinna enska meistaratitilinn, en hafi þess í stað sett stefnuna á að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni á næsta keppnistímabili.

Enski boltinn
Fréttamynd

Newell verður tekinn inn á teppi á morgun

Mike Newell, stjóri Luton í 1. deildinni á Englandi, hefur verið stanslaust í fréttum þar í landi í allan dag í kjölfar karlrembulegra ummæla sinna eftir tap Luton gegn QPR á dögunum. Kona sinnti þar hlutverki aðstoðardómara og sagði Newell að konur ættu ekkert erindi í að dæma "alvöru knattspyrnuleiki."

Enski boltinn
Fréttamynd

Dowie hættur hjá Charlton

Enska úrvalsdeildarfélagið Charlton hefur tilkynnt að Ian Dowie knattspyrnustjóri hafi sagt starfi sínu lausu. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í kvöld, en frekari yfirlýsingar er að vænta í fyrramálið.

Enski boltinn
Fréttamynd

Ætlar að spila þrátt fyrir meiðsli

Ísraelski landsliðsmaðurinn Yossi Benayoun hjá West Ham gætti átt á hættu að lenda í ónáð hjá Alan Pardew knattspyrnustjóra, eftir að hann lýsti því yfir í dag að hann ætlaði að spila með landsliði sínu á miðvikudaginn gegn ráðleggingum lækna enska liðsins.

Enski boltinn
Fréttamynd

Cahill frá í sex vikur

Ástralski miðjumaðurinn Tim Cahill hjá Everton verður frá keppni næstu sex vikurnar eftir að hafa meiðst á hné í leik Everton og Aston Villa um helgina. Cahill verður fyrir vikið ekki í liði Ástrala sem mætir Ghana í vináttuleik á Loftus Road á þriðjudaginn.

Enski boltinn
Fréttamynd

Enn meiðast Börsungar

Evrópumeistarar Barcelona hafa orðið fyrir enn einu áfallinu eftir að læknar liðsins tilkynntu í dag að argentínski framherjinn Javier Saviola væri meiddur á læri og gæti ekki leikið næstu 4-6 vikurnar. Það er því ljóst að það verður nóg að gera hjá þeim Eiði Smára Guðjohnsen og Santiago Ezquerro á næstunni, en þeir eru einu tiltæku framherjarnir í leikmannahópi Barcelona í dag.

Fótbolti
Fréttamynd

Dregur úr ummælum Berlusconi

Andriy Shevchenko, leikmaður Chelsea, hefur dregið úr ummælum Silvio Berlusconi forseta AC Milan um helgina þar sem forsetinn sagði Shevchenko hafa lýst því yfir í samtali við sig að hann langaði að snúa aftur til Ítalíu og spila með Milan.

Enski boltinn
Fréttamynd

Ívar og Brynjar framlengja við Reading

Íslensku landsliðsmennirnir Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson hafa framlengt samninga sína við enska úrvalsdeildarfélagið Reading. Ívar framlengdi samning sinn við félagið til ársins 2009 og Brynjar Björn til ársins 2008.

Enski boltinn
Fréttamynd

New York - Cleveland í beinni í nótt

Leikur New York Knicks og Cleveland Cavaliers verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu í kvöld klukkan hálf eitt eftir miðnætti. Mikil ólga er í herbúðum New York líkt og í fyrra og pressan mikil á Isiah Thomas þjálfara, en Cleveland hefur verið í vandræðum með lakari lið deildarinnar það sem af er leiktíðinni. Hægt er að nálgast dagskránna á NBA TV á heimasíðu Sýnar.

Körfubolti
Fréttamynd

Boro óskar eftir undanþágu fyrir Southgate

Forráðamenn Middlesbrough eru nú að vinna í því að fá undanþágu frá ráðamönnum ensku úrvalsdeildarinnar sem gefur knattspyrnustjóranum Gareth Southgate tímabundið leyfi til að stýra liðinu út leiktíðina. Southgate er enn ekki búinn að verða sér út um B-réttindi til þjálfunar, en þarf raunar að sækja fleiri námskeið en það til að teljast fullgildur knattspyrnustjóri.

Enski boltinn
Fréttamynd

Leik Hamars og Snæfells frestað

Leik Hamars/Selfoss og Snæfells sem fara átti fram á Selfossi í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld hefur verið frestað vegna veðurs. Leikurinn fer þess í stað fram í Hveragerði annað kvöld klukkan 19:15. Einn leikur er á dagskrá hjá konunum í kvöld, þegar Stúdínur taka á móti Grindavík í íþróttahúsi Kennaraháskólans klukkan 19:15.

Körfubolti
Fréttamynd

Smith hafnar lánssamningum

Alan Smith hefur hafnað tilboðum sem honum bárust um að fara sem lánsmaður frá Manchester United til að koma sér í leikform. Leeds og Cardiff höfðu farið fram á að fá hann að láni í nokkra mánuði, en Smith segist sjálfur ætla að bæta við æfingar sínar til að koma sér aftur í gott form eftir erfið meiðsli.

Enski boltinn
Fréttamynd

Ronaldo ætlar að spila

Cristiano Ronaldo hjá Manchester United virðist ekki ætla að taka undir áhyggjur stjóra síns Alex Ferguson því hann virðist líklegur til að spila með landsliði Portúgal. Ronaldo meiddist á ökkla í deildarleik um helgina og var Alex Ferguson búin að fara þess á leit við landsliðsþjálfara Portúgala að Ronaldo yrði hvíldur fyrir leik gegn Kazakstan á miðvikudag.

Enski boltinn
Fréttamynd

Van Persie spilar ekki gegn Englendingum

Framherjinn efnilegi Robin Van Persie hjá Arsenal verður ekki með landsliði Hollendinga þegar það spilar vináttuleik við Englendinga á miðvikudag, en hann og kona hans eiga von á sínu fyrsta barni. Clarence Seedorf hefur verið valinn í landsliðið í fyrsta sinni í rúm tvö ár, en ekkert pláss er í hópnum fyrir Ruud Van Nistelrooy hjá Real Madrid sem skoraði fjögur mörk í deildarleik í gærkvöldi.

Fótbolti