Íþróttir

Fréttamynd

Liverpool og Haifa leika í Kænugarði

Síðari leikur Liverpool og Maccabi Haifa í forkeppni Meistaradeildar Evrópu verður leikinn í Kænugarði í Úkraínu vegna þeirrar ólgu sem ríkir í Ísrael um þessar mundir. Knattspyrnusamband Evrópu tilkynnti í síðustu viku að leikurinn yrði spilaður á hlutlausum velli og hafa forráðamenn Dynamo Kiev nú boðist til að hýsa leikinn.

Fótbolti
Fréttamynd

Lehmann íhugar að fara frá Arsenal

Þýski landsliðsmarkvörðurinn Jens Lehmann hefur látið í það skína að hann muni fara frá Arsenal að lokinni komandi leiktíð á Englandi, en hann hefur þegar gefið það út að hann ætli að leggja hanskana á hilluna að loknu Evrópumóti landsliða í Sviss og Austurríki sumarið 2008.

Sport
Fréttamynd

Molde vill Ármann Smára

Nú fyrir helgi bárust þær fregnir að norska úrvalsdeildarliðið Molde hefði gert Breiðabliki tilboð í framherjann Marel Baldvinsson. Í gær var sagt frá því í norskum fjölmiðlum að Molde hefði einnig augastað á Ármanni Smára Björnssyni, leikmanninum fjölhæfa hjá FH en báðir voru þeir valdir í íslenska landsliðið sem mætir Spáni á morgun.

Sport
Fréttamynd

Flensborg og Viggó unnu

Viggó Sigurðsson byrjar vel sem þjálfari þýska úrvalsdeildarliðsins Flensburg en liðið vann um helgina sigur á æfingamóti í Þýskalandi. Liðið vann fremur óvænt tíu marka sigur á Lemgo í úrslitum og greinilegt að liðið er að standa sig vonum framar undir stjórn Viggós.

Sport
Fréttamynd

Ekki öll nótt úti enn

Steve McClaren, þjálfari enska landsliðsins, sagðist í viðtali við breska ríkisútvarpið í gær ekki útiloka það að kalla David Beckham aftur í liðið í framtíðinni. „Það er ekki í verkahring þjálfarans að binda enda á landsliðsferil leikmanna. David segist enn hafa löngun til að spila fyrir England og ég virði það. Aldrei að segja aldrei,“ sagði McClaren.

Sport
Fréttamynd

Randy Lerner kaupir Aston Villa

Ameriskí auðkýfingurinn Randy Lerner festi í dag kaup á enska úrvalsdeildarfélaginu Aston Villa eftir að stjórn félagsins samþykkti yfirtökutilboð hans upp á 62,6 milljónir punda eða um 8,5 milljarða króna. Lerner tekur því við af Doug Ellis sem hefur verið stjórnarformaður félagsins síðan árið 1982.

Sport
Fréttamynd

Eiður Smári ekki með gegn Spánverjum

Landsliðsfyrirliðanum Eiði Smára Guðjohnsen hefur verið gefið frí í vináttuleiknum gegn Spánverjum annað kvöld, en þessi ákvörðun var tekin í samráði við lækna og þjálfara landsliðsins. Eiður Smári er nú á fullu með liði sínu Barcelona sem leggur lokahönd á undirbúining sinn fyrir komandi leiktíð.

Sport
Fréttamynd

Ekki hvort heldur hvenær

Hólmar Örn Rúnarsson, knattspyrnumaður frá Keflavík, sagði við Fréttablaðið í gær að ekki væri spurning um hvort hann gengi til liðs við danska úrvalsdeildarliðið Silkeborg heldur hvenær. Hólmar Örn hefur samið um kaup og kjör við danska félagið en félögin tvö eiga eftir að ná saman um kaupverð.

Sport
Fréttamynd

Eiður lagði upp mark Messi

Evrópumeistarar Barcelona léku sinn síðasta æfingaleik í keppnisferðinni um Amaeríku þegar þeir lögðu bandaríska liðið Red Bulls 4-1 en leikurinn fór fram í New York í fyrrinótt. Ronaldinho skoraði tvö mörk fyrir Barcelona en hin mörkin skoruðu hinir argentínsku Lionel Messi og Javier Saviola. Gamla kempan Youri Djorkaeff skoraði eina mark Red Bull. Eiður Smári Guðjohnsen lék síðari hálfleikinn í leiknum og lagði upp markið sem Messi skoraði.

Sport
Fréttamynd

Blikastúlkur í banastuði í Austurríki

Kvennalið Breiðabliks lék í gær sinn síðasta leik í riðlinum í Evrópukeppni félagsliða en hann var gegn meisturunum frá Norður-Írlandi, Newtownabbey. Blikastelpur áttu ekki í erfiðleikum í þeim leik og unnu sannfærandi 7-0 sigur. Þrír leikmenn skoruðu tvö mörk í þeim leik en það voru Fanndís Friðriksdóttir, Sandra Sif Magnúsdóttir og Erna Björk Sigurðardóttir. Greta Mjöll Samúelsdóttir skoraði hitt markið en það var beint úr aukaspyrnu og var stórglæsilegt.

Sport
Fréttamynd

Arnar og Íris vörðu titlana

Arnar Sigurðsson varð í gær Íslandsmeistari í tennis tíunda árið í röð. Hann bar sigurorð af Raj Bonifacius í úrslitaleik í tveimur settum, 6-3 og 6-1. Í kvennaflokki varði Íris Staup Íslandsmeistaratitil sinn en hún sigraði Sigurlaugu Sigurðardóttur í úrslitum 6-1 og 6-1. Íris og Rakel Pétursdóttir urðu Íslandsmeistarar í tvíliðaleik kvenna en þær sigruðu Söndru Dís Kristjánsdóttur og Guðrúnu Óskarsdóttur 6-1 og 6-3. Í karlaflokki urðu Arnar og Raj Íslandsmeistarar í tvíliðaleik án þess að keppa þar sem Andri Jónsson og Jón Axel Jónsson neyddust til að gefa leikinn vegna meiðsla.

Sport
Fréttamynd

Heiðar Geir í Svíþjóð

Framarinn Heiðar Geir Júlíusson er þessa dagana staddur í Svíþjóð þar sem hann mun æfa með toppliði Hammarby fram á fimmtudag. Heiðar Geir, sem er 19 ára gamall, hefur verið fastamaður í liði Fram í sumar og hittir hjá Hammarby fyrir fyrrum félaga sinn, Gunnar Þór Gunnarsson. Einnig er á mála hjá félaginu Pétur Marteinsson en allir eru þeir uppaldir Framarar. Fram hefur góða forystu í 1. deildinni þegar enn á eftir að leika fjórar umferðir. Næst mætir liðið Þrótti á föstudaginn kemur.

Sport
Fréttamynd

Loksins sigur hjá Silkeborg

Danska úrvalsdeildarliðið Silkeborg vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu í Danmörku eftir fjóra tapleiki í röð. Liðið vann Viborg, 3-2, og það eftir að hafa lent 2-0 undir. Hörður Sveinsson og Bjarni Ólafur Eiríksson léku að vanda allan leikinn fyrir Silkeborg en Hörður var nálægt því að skora í leiknum.

Sport
Fréttamynd

Lánaður í neðri deild?

Svo gæti ferið að Hjálmar Þórarinsson verði lánaður í neðrideildarlið í Skotlandi en hann er á mála hjá úrvalsdeildarliðinu Hearts. Honum var tilkynnt ekki fyrir löngu að hann væri ekki í framtíðaráætlun liðsins og fór þá að líta í kringum sig. Nú síðast fór hann til norska liðsins Aalesund á reynslu en liðið ákvað að bjóða honum ekki samning þar sem forráðamönnum liðsins þótti hann vera samskonar knattspyrnumaður og eru fyrir hjá liðinu.

Sport
Fréttamynd

Crystal Palace á toppinn

Þriðju umferð ensku 1. deildarinnar lauk í gær með leik Crystal Palace og Leeds. Aðeins eitt mark var skorað í leiknum og það gerði Clinton Morrison í viðbótartíma. Leeds lék manni færri frá 15. mínútu en þá fékk Geoff Horsfield að líta rauða spjaldið. Það var því ansi svekkjandi fyrir leikmenn liðsins að fá þetta mark á sig þegar komið var fram yfir venjulegan leiktíma.

Sport
Fréttamynd

HK-ingar komnir í lykilstöðu í 1. deildinni

HK vann góðan útisigur á KA í 1. deild karla í gær 2-0 fyrir norðan og er liðið komið í ansi góða stöðu í deildinni þar sem Víkingur Ólafsvík vann Þrótt í Laugardalnum í dramatískum leik. Fjórar umferðir eru eftir og eru HK-ingar í öðru sæti en fjögur stig eru niður í þriðja sætið þar sem Fjölnir og Þróttur sitja. Framarar eru langefstir í deildinni en tvö efstu liðin spila í Landsbankadeildinni á næsta ári.

Sport
Fréttamynd

Rooney tæpur fyrir fyrsta leik

Óvíst er hvort sóknarmaðurinn Wayne Rooney verði með Manchester United þegar liðið tekur á móti Fulham í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar um næstu helgi. Rooney á við meiðsli í nára að stríða og sagði Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, að ekki væri víst hvort Rooney yrði búinn að ná sér fyrir næstu helgi en United á leik gegn Fulham.

Sport
Fréttamynd

Verð klár í landsleikinn

Gunnar Heiðar Þorvaldsson var ekki í leikmannahópi Hannover 96 sem spilaði sinn fyrsta leik á nýju tímabili í þýsku úrvalsdeildinni í gær. Liðið tók á móti Werder Bremen á heimavelli og tapaði, 4-2. Gunnar Heiðar fylgdist með sínum mönnum og sagði við Fréttablaðið að þjálfari liðsins hefði ákveðið að hvíla hann þar sem hann hefur nýverið náð sér af meiðslum

Sport
Fréttamynd

Charlton hafnar öllum tilboðum sem berast í Hermann

Allt útlit er fyrir að Hermann Hreiðarsson verði um kyrrt í herbúðum enska úrvalsdeildarliðsins Charlton en fyrr í mánuðinum bárust þær fregnir að fimm önnur félög í ensku úrvalsdeildinni höfðu sýnt honum áhuga. Þetta voru Newcastle, Manchester City, Fulham, Middlesbrough og Wigan.

Sport
Fréttamynd

Erfitt hjá Öster

Lífróður Helga Vals Daníelssonar og félaga í Öster þyngdist til muna í sænsku úrvalsdeildinni í gær eftir að liðið tapaði fyrir Halmstad á útivelli í gær, 1-0. Helgi Valur lék allan leikinn. Liðið er sem fyrr í næstneðsta sæti deildarinnar og er fimm stigum frá liðinu í fjórða neðsta sæti.

Sport
Fréttamynd

Loeb áfram á sigurbraut

Heimsmeistarinn Sebastien Loeb frá Frakklandi sigraði um helgina í Þýskalandsrallinu fimmta árið í röð. Loeb ekur á Citroën en hann tók forystu strax á fyrstu sérleiðinni og hélt henni allt til loka. Spánverjinn Daniel Sordo varð annar en hann ekur einnig á Citroën og þriðji var hinn finnski Marcus Grönholm á Ford.

Sport
Fréttamynd

Crouch tryggði Liverpool skjöldinn

Liverpool vann Chelsea 2-1 í hinum árlega leik milli Englandsmeistarana og bikarmeistarana þar í landi. Sigurinn var sanngjarn en Peter Crouch skoraði sigurmarkið með skalla þegar tíu mínútur voru eftir.

Sport
Fréttamynd

Þrjú íslensk lið í pottinum

Í gær var dregið í riðla í Evrópukeppni félagsliða í körfuknattleik en þrjú íslensk félag taka þátt í keppnunum á komandi tímabili. Íslandsmeistararnir í Njarðvík taka ásamt Keflavík þátt í Áskorendabikarkeppninni, EuroCup Challange, en alls taka sextán lið þátt í þeirri keppni. Njarðvík lenti í C-riðli og mætir þar Cherkasy frá Úkraínu, Samara frá Rússlandi og Tartu Rock frá Eistlandi. Keflavík dróst í D-riðil ásamt Dnipro frá Úkraínu, Mlekarna Kunin frá Tékklandi og Norrköping frá Svíðþjóð. Suðurnesjaliðin leika fyrst á útivelli 8. og 9. nóvember, en fyrstu heimaleikir liðanna verða 16. og 17. nóvember.

Sport
Fréttamynd

Sýnir brögð með ávöxtum

Veigar Páll Gunnarsson er í viðtali í aukablaði norska dagblaðsins Dagbladet, sem heitir Sport Magasinet og kemur út á föstudaginn. Þar er hann í löngu viðtali og á heimasíðu blaðsins, dagbladet.no, má sjá myndskeið þar sem Veigar sýnir ýmis brögð, meðal annars heldur hann epli og mandarínu á lofti eins og um fótbolta væri að ræða - meira að segja tyggjó líka.

Sport
Fréttamynd

Stefnan sett á efri hlutann

Mynd er að komast á leikmannamál hjá Íslandsmeisturum ÍBV í handbolta kvenna. Margar breytingar hafa orðið á leikmannahópnum á stuttum tíma.

Sport
Fréttamynd

Langþráður sigur Grindvíkinga

Grindavík vann Breiðablik 4-2 á heimavelli sínum í gær en leikurinn var ansi fjörlegur. Fyrir leikinn hafði Grindavík ekki náð sigri síðan í áttundu umferð, þegar liðið burstaði KR 5-0 hinn 22. júní. Hins vegar var þetta fyrsti leikurinn sem Blikar tapa síðan Ólafur Kristjánsson tók við stjórninni. Leikurinn var hraður og skemmtilegur á blautum Grindavíkurvelli og ekki var hægt að kvarta undan markaleysi. Líkt og í fyrri viðureign liðanna skoraði Óskar Örn Hauksson tvö stórglæsileg mörk.

Sport
Fréttamynd

Kristinn í stað Jóhannesar

Kristinn Jakobsson knattspyrnudómari mun dæma leik Eistalands og Makedóníu sem fer fram á miðvikudaginn kemur en þá hefst undankeppni EM 2008. Upphaflega stóð til að Jóhannes Valgeirsson myndi dæma leikinn en hann tognaði á læri nú fyrr í sumar og varð því tilkynntur meiddur. UEFA ákvað því að boða Kristinn til verkefnisins. Aðstoðardómarar han s verða Eyjólfur Finnsson og Ingvar Guðfinsson en fjórði dómari Garðar Örn Hinriksson.

Sport
Fréttamynd

Komust áfram í Evrópukeppni

Íslandsmeistarar Breiðabliks í knattspyrnu kvenna lögðu austurríska liðið Neulengbach, 3-0, í undankeppni Evrópumóts félagsliða í gær. Blikastúlkur hafa þar með tryggt sér farseðil í aðra umferð keppninnar sem fram fer 12. 17. september.

Sport
Fréttamynd

John Terry er nýr fyrirliði

John Terry, varnarmaður Chelsea, er hinn nýi fyrirliði enska landsliðsins undir stjórn Steve McClaren, en þetta var tilkynnt í gær. Hann tekur við fyrirliðabandinu af David Beckham sem lét það af hendi eftir heimsmeistarakeppnina í sumar. Þá var Steven Gerrard, miðjumaður Liverpool, gerður að varafyrirliða.

Sport