Íþróttir

Fréttamynd

Hefur engan áhuga á Cisse

Martin Jol, stjóri Tottenham Hotspur í ensku úrvalsdeildinni, hefur nú tekið af allan vafa um orðróm um að félagið sé á höttunum eftir Djibril Cisse hjá Liverpool. Jol viðurkennir að Tottenham hafi íhugað að fá leikmanninn að láni í janúar, en segir af og frá að hann verði keyptur til London í sumar eins og umboðsmaður hans gaf í skyn í gær.

Sport
Fréttamynd

Charlton - Middlesbrough í beinni í kvöld

Leikur Charlton og Middlesbrough í 8-liða úrslitum enska bikarsins verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn í kvöld og hefst útsending klukkan 19:50. West Ham, Liverpool og Chelsea hafa þegar tryggt sér þáttöku í undanúrslitum keppninnar. Hermann Hreiðarsson er í leikmannahópi Charlton eins og venjulega.

Sport
Fréttamynd

Hatton mætir Collazo

Breski hnefaleikarinn Ricky Hatton ætlar upp um einn þyngdarflokk þegar hann mætir bandaríska veltivigtarmeistaranum Luis Collazo í Boston þann 13. maí næstkomandi. Hatton er handhafi IBF og WBA meistaratitlanna í léttveltivigt, en ætlar nú að þyngja sig og leitast við að bæta við sig einum titli í viðbót á bandarískri grundu.

Sport
Fréttamynd

Chelsea kært aftur

Englandsmeistarar Chelsea hafa nú verið kærðir í annað sinn á stuttum tíma fyrir ólæti á knattspyrnuvellinum og í þetta sinn fyrir óhófleg mótmæli við dómara leiksins gegn Fulham á dögunum. Chelsea var fyrir stuttu kært fyrir svipað atvik í leik gegn West Brom, en þeirri ákæru hafnaði félagið og hefur farið fram á sérstök réttarhöld í málinu.

Sport
Fréttamynd

Meirihluti stuðningsmanna vilja losna við Bruce

Í dag kom út könnun í breska dagblaðinu Birmingham Mail, þar sem stuðningsmenn úrvalsdeildarliðsins Birmingham voru spurðir hvort þeir vildu hafa Steve Bruce áfram sem knattspyrnustjóra liðsins. Í ljós kom að 52% þeirra sem tóku þátt í könnunninni vildu breytingar og að Bruce segði af sér. Það er því ljóst að Bruce á eftir að eiga verulega undir högg að sækja á næstu vikum.

Sport
Fréttamynd

Capello ekki inni í myndinni

Ítalski þjálfarinn Fabio Capello hjá Juventus segist hafa mikinn áhuga á að taka við enska landsliðinu í knattspyrnu, en þó ekki strax og því hefur hann verið afskrifaður sem eftirmaður Sven-Göran Eriksson sem hættir með liðið eftir HM í sumar.

Sport
Fréttamynd

Defoe óttast um sæti sitt

Framherjinn Jermain Defoe hjá Tottenham óttast að seta hans á varamannabekknum hjá liði sínu gæti kostað hann sæti í enska landsliðinu fyrir HM í sumar. Defoe á í harðri samkeppni við menn eins og Darren Bent, Dean Ashton og James Beattie um að verða síðasti framherjinn í hópi Sven-Göran Eriksson.

Sport
Fréttamynd

Guðmundur og félagar í úrslitin

Malmö, lið Guðmundar Stephensen í sænsku borðtennisdeildinni, komst í gærkvöld í úrslitaleik deildarinnar þegar liðið bar sigurorð af Halmstad í undanúrslitum. Í úrslitunum mætir Malmö deildarmeisturunum í Eslövs AI.

Sport
Fréttamynd

Shearer óhress með Wright-Phillips

Alan Shearer, fyrirliði Newcastle, var allt annað en ánægður með það sem hann kallaði leikræna tilburði kantmannsins Shaun Wright-Phillips hjá Chelsea í leik liðanna í enska bikarnum í gærkvöld. Phillips fiskaði þá Robbie Elliott útaf með sitt annað gula spjald.

Sport
Fréttamynd

Detroit vann uppgjörið í Austurdeildinni

Detroit Pistons vann í nótt góðan sigur á Miami Heat á heimavelli sínum 82-73 í uppgjöri toppliðanna í Austurdeildinni. Þetta var 16. heimasigur Detroit í röð, en jafnframt lægsta stigaskor Miami í allan vetur. Shaquille O´Neal skoraði 27 stig fyrir Miami, en Dwayne Wade átti ekki góðan dag og skoraði aðeins 13 stig. Chauncey Billups skoraði 24 stig og gaf 10 stoðsendingar fyrir Detroit.

Sport
Fréttamynd

Cole frá út tímabilið

Sóknarmaðurinn Andy Cole getur ekki spilað meira með liði Manchester City á þessu tímabili eftir að hann þurfti að fara í annan hnéuppskurð sitt á stuttum tíma. Cole hafði þegar misst úr sjö leiki í röð með City, en nú er ljóst að hann spilar ekki meira í vetur og setur það vonir hans um nýjan samning við félagið væntanlega eitthvað úr skorðum.

Sport
Fréttamynd

Solskjær verður boðinn nýr samningur

David Gill, stjórnarformaður Manchester United, er bjartsýnn á að norski sóknarmaðurinn Ole Gunnar Solskjær fái nýjan samning við félagið þó hann hafi verið meiddur í hátt í þrjú ár. Solskjær braut kinnbein í leik með varaliði United á dögunum. "Ole er frábær persónuleiki og hefur reynst okkur vel, svo að ég á von á að við finnum einhverja lausn á málinu," sagði Gill.

Sport
Fréttamynd

Chelsea komið áfram

Englandsmeistarar Chelsea eru komnir í undanúrslitin í enska bikarnum eftir 1-0 sigur á Newcastle á Stamford Bridge í kvöld. Það var fyrirliðinn John Terry sem skoraði sigurmark sinna manna strax á fjórðu mínútu leiksins, en það er því ljóst að síðasta tækifæri Alan Shearer til að krækja í titil með Newcastle er runnið út í sandinn.

Sport
Fréttamynd

Keflavík sigraði í Grindavík

Keflavíkurstúlkur gerðu sér lítið fyrir og lögðu granna sína í Grindavík í fyrsta leik undanúrslitanna í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í kvöld 90-83. Keflavík getur því komst í úrslitin með sigri á heimavelli sínum í næsta leik. LaKiste Barkus skoraði 30 stig fyrir Keflavík, en Tamara Stocks skoraði 33 stig fyrir Grindavík.

Sport
Fréttamynd

Chelsea leiðir í hálfleik

Chelsea hefur yfir 1-0 gegn Newcastle í hálfleik í viðureign liðanna í enska bikarnum á Stamford Bridge. Það var John Terry sem skoraði mark heimamanna strax á fjórðu mínútu leiksins, sem er sýndur í beinni útsendingu á Sýn.

Sport
Fréttamynd

Skoski bankinn hættir að styðja úrvalsdeildina

Skoski bankinn, aðalstyrktaraðili skosku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, hefur tilkynnt að hann muni ekki framlengja samning sinn við deildina sem rennur út á næsta ári. Bankinn hefur þá verið aðalstyrktaraðili deildarinnar í níu ár, en forráðamenn úrvalsdeildarinnar hafa ekki áhyggjur af þessu og segjast bjartsýnir á að útvega nýjan stuðningsaðila á næsta ári.

Sport
Fréttamynd

Eiður í byrjunarliði Chelsea

Jose Mourinho hefur gert margar breytingar á byrjunarliði sínu frá leiknum við Fulham á dögunum og er Eiður Smári Guðjohnsen til að mynda kominn í byrjunarliðið ásamt þeim Carlo Cudicini, Asier del Horno, Geremi, Didier Drogba, Damien Duff og Ricardo Carvalho. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn.

Sport
Fréttamynd

Búinn að ákveða hver verður næsti þjálfari

Forseti Real Madrid segist nú vera búinn að ákveða hvern hann geri að næsta þjálfara spænska stórveldisins, en neitar að gefa upp nafn hans. Margir af frægustu knattspyrnustjórum í Evrópu hafa verið orðaðir við stöðuna, en flestir þeirra hafa þegar neitað að vera á leið til Real Madrid.

Sport
Fréttamynd

Við viljum enga Beckham-týpu í stað Ballack

Felix Magath er alveg með það á tæru hvernig leikmann Bayern Munchen þurfi til að fylla skarð Michael Ballack í liðinu ef hann fer til Chelsea í sumar eins og altalað er. Magath segist ekki þurfa neinn David Beckham í lið Bayern, heldur baráttuhund sem búi yfir sæmilegum hæfileikum.

Sport
Fréttamynd

Tiger Woods æfði ekki í dag

Stigahæsti kylfingur heims, Tiger Woods, var ekki viðstaddur æfingar eða blaðamannafundi fyrir Players-mótið í golfi sem fram fer í Flórida í Bandaríkjunum um helgina og hafa margir leitt líkum að því að kappinn verði ekki með á mótinu. Umboðsmaður hans þrætir þó fyrir þær fréttir og segir Woods hafa dregið sig í hlé í dag af persónulegum ástæðum. Sýnt verður frá mótinu í beinni útsendingu á Sýn.

Sport
Fréttamynd

Eftirmaður Eriksson verður fundinn fljótlega

Alan Curbishley telur að leitinni að næsta þjálfara enska landsliðsins í knattspyrnu farin nú brátt að ljúka og spáir að tíðinda verði að vænta á næstu vikum. Curbishley er einmitt einn þeirra sem orðaðir hafa verið við landsliðsþjálfarastöðuna.

Sport
Fréttamynd

Gummersbach á toppinn

Íslendingaliðið Gummersbach skaut sér á toppinn í þýsku úrvalsdeildinni í gær þegar liðið bar sigurorð af Delitzsch á útivelli í gær 23-22. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 6 mörk fyrir Gummersbach og Róbert Gunnarsson skoraði 2. Gummersbach er því efst í deildinni, en Kiel og Flensburg koma þar skammt á eftir og eiga tvo og þrjá leiki til góða.

Sport
Fréttamynd

Viðræður hafnar við Liverpool

Umboðsmaður varnarmannsins sterka hjá Valencia, Fabio Aurelio, segist þegar vera kominn í viðræður við Liverpool um kaup á leikmanninum í sumar. Aurelio verður með lausa samninga í sumar og er því brátt laus allra mála hjá spænska félaginu. Aurelio er 26 ára gamall og hefur leikið mjög vel með Valencia í vetur.

Sport
Fréttamynd

Solano óttast Chelsea

Chelsea tekur á móti Newcastle í átta liða úrslitum enska bikarsins í kvöld og verður leikurinn sýndur í beinni útsendingu á Sýn klukkan 19:35. Nolberto Solano, leikmaður Newcastle, óttast að leikmenn Chelsea muni mæta til leiks eins og öskrandi ljón eftir tapið gegn Fulham í deildinni um helgina.

Sport
Fréttamynd

Enski boltinn hentar mér best

Þýski miðjumaðurinn Michael Ballack telur víst að spilamennskan á Englandi henti sínum leikstíl betur en til að mynda spilamennskan á Spáni, en víst er talið að Ballack gangi í raðir Chelsea í sumar.

Sport
Fréttamynd

Ætlar til Tottenham í sumar

Umboðsmaður franska framherjans Djibril Cisse hjá Liverpool hallast að því að skjólstæðingur sinn gangi í raðir Tottenham í sumar. "Tottenham gæti vel sett sig í samband við okkur aftur í sumar," sagði umboðsmaðurinn í samtali við The Sun og bætti við að Liverpool myndi líklega sætta sig við 8 milljónir punda fyrir kappann. Forráðamenn Tottenham gefa þó lítið út á þessar fregnir.

Sport
Fréttamynd

Rix rekinn frá Hearts

Úrvalsdeildarfélagið Hearts rak í dag knattspyrnustjóra sinn Graham Rix eftir aðeins nokkra mánuði í starfi. Rix tók við liðinu í nóvember en hafði aðeins stýrt liðinu til níu sigra í síðustu nítján leikjum og það þótti nýjum eiganda liðsins Vladimir Romanov ekki ásættanlegur árangur. Við starfi Rix tekur Valdas Ivanauskas sem áður var þjálfari hjá félaginu.

Sport
Fréttamynd

Loks vann New Orleans á heimavelli

New Orleans Hornets spilaði sinn síðasta leik af þremur á tímabilinu á upprunalegum heimavelli sínum New Orleans Arena í nótt og náði loks að færa stuðningsmönnum sínum sigur eftir tap í fyrstu tveimur leikjunum sem spilaðir voru þar. New Orleans skellti LA Clippers 120-108. Rasual Butler skoraði 28 stig fyrir heimamenn, en Corey Maggette setti 25 stig fyrir Clippers.

Sport
Fréttamynd

Barcelona með 14 stiga forystu

Meistarar Barcelona náðu í gær 14 stiga forystu í úrvalsdeildinni spænsku þegar liðið lagði Getafe 3-1 á heimavelli sínum Nou Camp. Barca lenti undir í leiknum, en jafnaði með sjálfsmarki í fyrri hálfleik og það var svo Kamerúninn skæði Samuel Eto´o sem kláraði leikinn með tveimur mörkum í síðari hálfleiknum.

Sport