Íþróttir

Fréttamynd

Versta útreið mín á ferlinum

Steve Bruce segir að útreiðin sem hans menn í Birmingham fengu í 7-0 tapinu fyrir Liverpool í enska bikarnum í gærkvöldi, hafi verið versti skellur sem hann hafi fengið á 25 ára ferli sínum sem leikmaður og þjálfari. Hann tekur þó fram að hann ætli sér alls ekki að segja af sér sem knattspyrnustjóri Birmingham.

Sport
Fréttamynd

Liverpool niðurlægði Birmingham

Liverpool valtaði yfir arfaslakt lið Birmingham á útivelli í enska bikarnum í kvöld 7-0 og er komið í undanúrslit keppninnar. Lærisveinar Steve Bruce vilja eflaust gleyma þessum leik sem fyrst, en geta nú einbeitt sér að fallbaráttunni í úrvalsdeildinni eftir að hafa verið niðurlægðir á leið sinni út úr bikarnum.

Sport
Fréttamynd

KR í undanúrslitin

KRingar eru komnir í undanúrslit Íslandsmótsins í körfuknattleik eftir frækinn sigur á Snæfelli í rafmögnuðum leik í Vesturbænum 67-64 í kvöld. Skarphéðinn Ingason skoraði 16 stig fyrir KRinga og Fannar Ólafsson 15, en Igor Beljanski skoraði 17 stig fyrir Snæfell.

Sport
Fréttamynd

KR einu stigi yfir fyrir lokaleikhlutann

Leikur KR og Snæfells í DHL-höllinni er enn í járnum og nú hafa heimamenn eins stigs forystu 50-49 þegar aðeins fjórði leikhlutinn er eftir, en það lið sem tapar í kvöld er komið í sumarfrí.

Sport
Fréttamynd

Allt í járnum í Vesturbænum

Nú er kominn hálfleikur í viðureign KR og Snæfells í oddaleik í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í körfubolta og staðan er jöfn 35-35. Snæfell hafði betur framan af en heimamenn hafa náð að jafna leikinn með mikilli baráttu. Jón Ólafur Jónsson hefur skorað 10 stig fyrir Snæfell, en Skarphéðinn Ingason og Fannar Ólafsson hafa skorað 8 stig hvor fyrir KR.

Sport
Fréttamynd

Liverpool leiðir 3-0 í hálfleik

Nú er kominn hálfleikur í viðureign Birmingham og Liverpool í enska bikarnum og er staðan orðin 3-0 fyrir gestina frá Liverpool. Sami Hyypia kom Liverpool yfir eftir 55 sekúndur og síðan hefur Peter Crouch skorað tvö mörk. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn.

Sport
Fréttamynd

Snæfell leiðir eftir fyrsta leikhluta

Snæfell er yfir 17-12 gegn KR eftir fyrsta leikhluta í oddaleik liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppni Iceland Express deildar karla í körfubolta. Leikurinn fer fram í DHL-höllinni og er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Extra. Gestirnir hafa verið mun meira sannfærandi í öllum sínum aðgerðum og leiða verðskuldað, en KR hefur aðeins skorað eina körfu utan af velli í leikhlutanum.

Sport
Fréttamynd

Liverpool byrjar vel

Liverpool virðist ekki ætla að verða í vandræðum gegn Birmingham ef svo fer sem horfir í leik liðanna í enska bikarnum í kvöld, því gestirnir skoruðu tvö mörk á fyrstu fimm mínútum leiksins. Varnarmaðurinn Sami Hyypia kom Liverpool yfir eftir aðeins rúmar 50 sekúndur og Peter Crouch bætti við öðru marki á 5. mínútu. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn.

Sport
Fréttamynd

Ekki í viðræðum við enska knattspyrnusambandið

Luis Felipe Scolari, landsliðsþjálfari Portúgala, brást reiður við fregnum í enskum fjölmiðlum í dag sem sögðu hann vera í viðræðum við knattspyrnusambandið þar í landi með það fyrir augum að hann tæki við enska landsliðinu af Sven-Göran Eriksson.

Sport
Fréttamynd

Larsson fæst ekki til að vera áfram

Frank Rijkaard, knattspyrnustjóri Barcelona segist ásamt öllu starfsliði sínu hafa gert ótal árangurslausar tilraunir til að sannfæra sænska sóknarmanninn Henrik Larsson um að vera eitt ár í viðbót í herbúðum liðsins, en Larsson ætlar sem kunnugt er að ganga í raðir Helsingborg í heimalandi sínu í sumar.

Sport
Fréttamynd

Gunnar Heiðar til Hannover

Landsliðsframherjinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson hefur gengið frá þriggja ára samningi við þýska úrvalsdeildarliðið Hannover og gengur til liðs við félagið í sumar. Þetta kemur fram á heimasíðu sænska liðsins Halmstad í dag, en vitað var að Gunnar væri í viðræðum við félag í þýsku úrvalsdeildinni.

Sport
Fréttamynd

Gagnrýnir knattspyrnusambandið

Rafa Benitez segir að enska knattspyrnusambandið sé að gera leikmönnum landsliðsins litla greiða með því mikla keppnisálagi sem sé í deildarkeppninni á Englandi og segir meiðslahættuna sem fylgi því að spila tvo leiki á þremur dögum mjög mikla.

Sport
Fréttamynd

Roy Keane meiddur

Miðjumaðurinn Roy Keane verður frá keppni í að minnsta kosti mánuð eftir að hafa rifið vöðva í aftanverðu læri. Gordon Strachan, knattspyrnustjóri liðsins greindi frá þessu í dag. Keane hefur átt við þrálát meiðsli að stríða undanfarið ár og ekki verður þetta til að auka líkurnar á að Keane spili eitt ár í viðbót með liðinu eins og til stóð. Keane ætlar að taka ákvörðun um framhaldið í sumar.

Sport
Fréttamynd

Birmingham - Liverpool í beinni á Sýn

Leikur Birmingham og Liverpool í átta liða úrslitum enska bikarsins verður sýndur beint á Sýn í kvöld og hefst útsending klukkan 19:35. Steve Bruce segir að þó hans menn tjaldi öllu til að halda sér í ensku úrvalsdeildinni, séu þeir óneitanlega farnir að hugsa um að komast alla leið í úrslitaleikinn.

Sport
Fréttamynd

Ancelotti framlengir við Milan

Carlo Ancelotti hefur framlengt núgildandi samning sinn við AC Milan um eitt ár og verður því við stjórn hjá félaginu til ársins 2008. Ancelotti er á sínu fimmta ári með AC Milan, en hann hafði verið orðaður við stjórastöðuna hjá Real Madrid síðustu daga.

Sport
Fréttamynd

KR - Snæfell í beinni á Sýn Extra

Oddaleikur KR og Snæfells í fyrstu umferð úrslitakeppni Iceland Express deildar karla verður í beinni útsendingu á Sýn Extra klukkan 19:50 í kvöld. Liðin hafa til þessa unnið sitthvorn útileikinn og í kvöld verður leikið til þrautar í DHL-Höllinni.

Sport
Fréttamynd

Suður-Afríka vill Eriksson

Yfirmaður landsliðs Suður-Afríku í knattspyrnu vill ólmur fá Sven-Göran Eriksson til að stýra landsliðinu á rétta braut, en Suður-Afríka reið ekki feitum hesti frá Afríkukeppninni í vetur og þar á bæ hafa menn lítinn áhuga á að líta illa út þegar þeir halda heimsmeistaramótið árið 2010.

Sport
Fréttamynd

Flugvöllur nefndur eftir George Best

Flugvellinum í Belfast á Norður Írlandi verður gefið nafnið George Best, eftir norður-írska knattspyrnukappanum sem lést í nóvember síðastliðnum.

Erlent
Fréttamynd

Moyes tekur ekki við Newcastle

Forráðamenn Newcastle og Everton hafa allir neitað fréttum í breskum blöðum sem hermdu að David Moyes yrði næsti knattspyrnustjóri Newcastle. Freddy Sheperd, stjórnarformaður Newcastle, gaf út yfirlýsingu nú síðdegis þar sem hann sagði að þessar vangaveltur væru algjör þvættingur og tók fram að félagið hefði alls ekki leitað til Moyes, sem er samningsbundinn Everton.

Sport
Fréttamynd

Valur mætir Tomis Constanta

Í morgun var dregið í undanúrslit EHF-keppninnar í handknattleik kvenna og þar mæta Valsstúlkur rúmenska liðinu Tomis Constanta. Leikirnir fara fram 15. og 22. næsta mánaðar, en enn hefur ekki verið ákveðið hvort annað liðið muni hugsanlega selja heimaleik sinn.

Sport
Fréttamynd

Detroit vann Miðriðilinn

Detroit Pistons tryggði sér í nótt sigur í Miðriðlinum í Austurdeildinni þegar liðið skellti Atlanta Hawks 91-84 á heimavelli sínum, en ekkert lið getur nú náð Pistons á toppi riðilsins þó enn sé talsvert eftir af tímabilinu. Rasheed Wallace skoraði 26 stig fyrir Detroit, en Al Harrington skoraði 23 stig fyrir Atlanta.

Sport
Fréttamynd

Hefur augastað á Henry og Nistelrooy

Massimo Moratti, eigandi Inter Milan á Ítalíu, hefur augastað á þeim Thierry Henry hjá Arsenal og Ruud Van Nistelrooy hjá Manchester United í leit sinni að framherja fyrir næstu leiktíð. Hann gerir sér þó litlar vonir um að krækja í Henry og segir Nistelrooy vera raunhæfara markmið fyrir félag sitt.

Sport
Fréttamynd

Adidas að tapa í HM baráttunni

Adidas er í fyrsta sinn fyrir neðan sína helstu keppinauta hvað búninga á Heimsmeistaramótinu í Þýskalandi varðar. Adidas sér um búninga fyrir sex lið en Nike verða með átta og Puma tólf landsliðs á sínum snærum.

Sport
Fréttamynd

Verður tilbúinn fyrir HM

Hinn mjög svo sóknarsinnaði bakvörður Cafu, er óðum að nálgast sitt gamla góða form eftir að hafa lent í erfiðum hnémeiðslum. Þessi magnaði fyrirliði brasilíska landsliðsins getur spilað með á HM í sumar.

Sport
Fréttamynd

Ánægður að vera á undan Schumacher

Felipe Massa var mjög ángæður með að skáka félaga sínum hjá Ferrai, Michael Schumacher, í Formúlu-1 kappakstrinum í Malasíu um helgina. Massa lenti í fimmta sæti en Schumacher í því sjötta.

Sport
Fréttamynd

Í skýjunum með tvennuna

Dean Ashton framherji West Ham var skiljanlega í skýjunum með mörkin sín tvö gegn Manchester City í ensku bikarkeppninni í gærkvöldi. Hamrarnir unnu leikinn 2-1 og eru komnir í undanúrslit keppninnar.

Sport
Fréttamynd

West Ham í undanúrslitin

West Ham vann í kvöld frækinn útisigur á Manchester City í 8-liða úrslitum enska bikarsins og er því komið í undanúrslit keppninnar. Dean Ashton gerði tvö mörk fyrir West Ham í kvöld á 41. og 69. mínútu, en Kiki Musampa minnkaði muninn fyrir heimamenn fimm mínútum fyrir leikslok.

Sport
Fréttamynd

Tagliabue hættir í sumar

Paul Tagliabue, yfirmaður bandarísku ruðningsdeildarinnar NFL, hefur tilkynnt að hann ætli að setjast í helgan stein og lætur af störfum í júlí í sumar. Tagliabue hefur verið æðsti maður í deildinni í 16 ár, en hann tók við störfum af Pete Rozelle árið 1989.

Sport
Fréttamynd

West Ham yfir í hálfleik

West Ham er yfir 1-0 gegn Manchester City í hálfleik í viðureign liðanna í átta liða úrslitum enska bikarsins, en leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. Það var framherjinn Dean Ashton sem skoraði mark gestanna á 41. mínútu.

Sport
Fréttamynd

Finnur sig vel á miðjunni

Ryan Giggs segist vera að finna sig ágætlega í nýju hlutverki í liði Manchester United, en hann hefur verið færður af kantinum og inn á miðjuna eftir að Paul Scholes og Alan Smith urðu fyrir meiðslum.

Sport