Íþróttir

Fréttamynd

Góður sigur á Serbum í fyrsta leik

Íslenska landsliðið í handbolta vann frækinn sigur á Serbum í fyrsta leik sínum í C-riðli Evrópumótsins í handbolta í kvöld 36-31, eftir að hafa verið yfir í hálfleik 16-11. Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur í íslenska liðinu með tíu mörk, þar af þrjú úr vítaköstum.

Sport
Fréttamynd

Ísland yfir í hálfleik

Íslenska landsliðið í handknattleik hefur yfir 16-11 í hálfleik gegn Serbum í fyrsta leik sínum á EM í handbolta í Sviss. Ólafur Stefánsson og Guðjón Valur Sigurðsson hafa skoraði 5 mörk hvor.

Sport
Fréttamynd

Ronaldo á yfir höfði sér bann

Gary Neville er ekki eini leikmaður Manchester United sem hefur verið tekinn fyrir vegna ósæmilegrar framkomu á leikvellinum í dag, því nú hefur evrópska knattspyrnusambandið kært Cristiano Ronaldo fyrir að storka áhorfendum Benfica í leik í Portúgal í Meistaradeildinni þegar United féll úr keppni.

Sport
Fréttamynd

Jafnt hjá Spánverjum og Þjóðverjum

Opnunarleikurinn á EM í Sviss var æsispennandi en honum lauk með jafntefli Spánverja og Þjóðverja 31-31 í B-riðli. Spánverjar höfðu raunar ágæta möguleika að ná öllum stigunum úr leiknum á síðustu mínútunni, en sterk vörn Þjóðverja hélt í lokin. Klukkan 17 eigast svo Íslendingar og Serbar við í C-riðli.

Sport
Fréttamynd

Svissneskir dómarar dæma í kvöld

Dómarar í leik Íslands og Serbíu síðar í dag koma frá Sviss og heita Falcone og Ratz en eftirlitsmennirnir koma frá Þýskalandi og Ísrael. Íslensku dómararnir Stefán Arnaldsson og Gunnar Viðarsson verða einnig í eldlínunni í dag en þeir dæma leik Frakka og Slóvaka í Basel.

Sport
Fréttamynd

Risasamningur Henry kominn á borðið

Peter Hill-Wood, stjórnarformaður Arsenal, segir að félagið sé búið að fá Thierry Henry tilboð í hendur sem sé líklega hærra en öll lið á englandi gætu boðið leikmanninnum, hugsanlega að Chelsea undanskildu. "Þetta er mjög há upphæð," sagði Hill-Wood.

Sport
Fréttamynd

Grannarnir mætast í undanúrslitunum

Í dag var dregið í undanúrslitin í bikarkeppni KKÍ í körfubolta karla og kvenna. Í karlaflokki verða það Keflavík og Njarðvík sem mætast og svo Grindavík og Skallagrímur. Í kvennaflokki mæta Keflavíkurstúlkur grönnum sínum úr Grindavík og ÍS mætir Breiðablik.

Sport
Fréttamynd

Baghdatis óvænt í úrslitin

Hinn óþekkti gríski tennisleikari Marcos Baghdatis tryggði sér mjög óvænt farseðilinn í úrslitaleik opna ástralska meistaramótsins í tennis í dag þegar hann lagði fjórða stigahæsta tennisleikara heims, David Nalbandian í undanúrslitunum 3-6,5-7, 6-3, 6-4 og 6-4.

Sport
Fréttamynd

Neville kærður

Gary Neville, fyrirliði Manchester United, hefur verið kærður fyrir ósæmilega hegðun sína eftir leik United og Liverpool á dögunum þegar hann fagnaði sigurmarki félaga síns með því að hlaupa í átt að stuðningsmönnum andstæðinga sinna og benti á merki Manchester United á treyju sinni.

Sport
Fréttamynd

Níu í röð hjá Detroit

Detroit Pistons vann níunda leik sinn í röð í nótt þegar liðiði skellti Milwaukee í framlengdum leik 106-102. Rip Hamilton skoraði 35 stig fyrir Detroit, en Chauncey Billups var maðurinn á bak við sigurinn með því að skora 11 stig fyrir Detroit í framlengingunni einni saman. Michael Redd skoraði 41 stig fyrir Milwaukee.

Sport
Fréttamynd

Breytir engu fyrir heimsmeistaramótið

John Terry, fyrirliði Chelsea, neitar því að brotthvarf Sven Goran Eriksson hafi slæm áhrif á enska landsliðið fyrir heimsmeistaramótið í Þýskalandi í sumar. Segir Terry að þetta hafi engin bein áhrif á leikmannahópinn.

Sport
Fréttamynd

Mauresmo og Henin Hardenne mætast í úrslitum

Það verða Amelie Mauresmo og Justine Henin-Hardenne sem mætast í úrslitum í kvennaflokki á opna ástralska meistaramótinu í tennis sem fram fer í Melbourne. Henin-Hardenne sigrðai Mariu Sharapovu í undanúrslitum og Mauresmo lagði Kim Clijsters í hinum undanúrslitaleiknum.

Sport
Fréttamynd

Vantar nauðsynlega miðjumann

Alex Ferguson, stjóri Manchester United, mun líklega kaupa miðjumann áður en félagaskiptagluggi janúarmánaðar er úti. Ástæðan er að margir miðjumanna liðsins eru meiddir þessa stundina þannig að nauðsynlegt er að fá inn nýjan leikmann núna.

Sport
Fréttamynd

Artest skipt fyrir Stojakovic

Hörmungarsögu Indiana Pacers og Ron Artest er nú lokið, en í kvöld skipti félagið vandræðagemlingnum til Sacramento Kings og fékk í staðinn serbnesku skyttuna Peja Stojakovic. Artest hefur ekki spilað leik á árinu eftir að hafa opinberlega farið fram á að verða skipt frá Indiana, en Stojakovic hefur sömuleiðis átt erfitt uppdráttar í vetur.

Sport
Fréttamynd

Manchester United í úrslitin

Manchester United mætir Wigan í úrslitaleik enska deildarbikarsins eftir að liðið lagði Blackburn á heimavelli sínum Old Trafford í kvöld, 2-1. Það voru þeir Ruud Van Nistelrooy og Louis Saha sem skoruðu mörk heimamanna, en Steven Reid skoraði mark Blackburn.

Sport
Fréttamynd

Jafnt hjá United og Blackburn í hálfleik

Staðan í leik Manchester United og Blackburn Rovers er 1-1 þegar flautað hefur verið til leikhlés. Ruud Van Nistelrooy kom heimamönnum yfir snemma leiks, en misnotaði vítaspyrnu rétt fyrir lok hálfleiksins. Það var Steven Reid sem jafnaði metin fyrir Blackburn á 32. mínútu og því stendur Blackburn ágætlega að vígi.

Sport
Fréttamynd

Hartson er ekki til sölu

Skoska félagið Glasgow Celtic hefur neitað 1,2 milljón punda tilboði Portsmouth í framherjann John Hartson og var talsmaður skoska félagsins ósáttur við framgöngu enskra þegar þeir nálguðust leikmanninn, sem sjálfur vill ekki fara frá Celtic.

Sport
Fréttamynd

Manchester United - Blackburn í beinni

Síðari leikur Manchester United og Blackburn í undanúrslitum enska deildarbikarsins verður í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld og hefst útsending klukkan 19:50. Þar kemur í ljós hvort liðið leikur til úrslita gegn Wigan sem sló Arsenal út úr keppninni í gærkvöldi.

Sport
Fréttamynd

Dean Kiely til Portsmouth

Portsmouth hefur keypt markvörðinn Dean Kiely frá Charlton og hefur hann þegar staðist læknisskoðun og skrifað undir 18 mánaða samning við félagið. Talið er að hann fari beint inn í byrjunarlið Portsmouth sem mætir Liverpool í bikarnum á sunnudaginn. Kiely er fyrrum landsliðsmarkvörður Íra og er 35 ára gamall.

Sport
Fréttamynd

Hefur augastað á Johann Vogel

Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, er sagður hafa áhuga á að reyna að fá svissneska landsliðsmanninn Johann Vogel að láni frá AC Milan út leiktíðina, eftir að ljóst varð að hópur liðsins er orðinn ansi þunnur þegar kemur að miðjumönnum vegna meiðsla þeirra Paul Scholes og John O´Shea.

Sport
Fréttamynd

Fótboltinn þarf menn eins og Riquelme

Jose Pekerman, landsliðsþjálfari Argentínu, segir að fótboltinn þurfi nauðsynlega á mönnum eins og Juan Roman Riquelme að halda, en hinn snjalli leikstjórnandi Villareal á Spáni hefur ekki alltaf farið troðnar slóðir á leið sinni á toppinn.

Sport
Fréttamynd

Honda er með bestu ökumennina í Formúlu 1

Nick Fry, stjóri Honda-liðsins í Formúlu 1, er ekki í vafa um að ökumenn liðsins muni skila liðinu fyrsta sigrinum í sjö ár á næsta tímabili. Sem kunnugt er hét lið Honda áður BAR, en Honda er nú með í Formúlu 1 í fyrsta sinn síðan 1968.

Sport
Fréttamynd

Mikil gleði í herbúðum Wigan

Paul Jewell, knattspyrnustjóri Wigan, segir að lið sitt eigi það fyllilega skilið að vera komið í úrslitaleik enska deildarbikarsins eftir frækinn sigur á Arsenal í gærkvöldi.

Sport
Fréttamynd

Sektin stendur

Bakvörðurinn Ashley Cole hjá Arsenal hafði ekki erindi sem erfiði í áfrýjun sinni vegna sektarinnar sem hann fékk fyrir að verða uppvís að því að ræða við forráðamenn Chelsea þegar hann var samningsbundinn Arsenal. Cole þarf því að sætta sig við að reiða fram 75.000 pund í sekt.

Sport
Fréttamynd

Federer í undanúrslit

Tenniskappinn Roger Federer er kominn í undanúrslit á opna ástralska meistaramótinu eftir að hann vann sigur á Rússanum Nikolay Davydenko í fjórðungsúrslitum í dag 6-4, 3-6, 7-6 og 7-6. Sigurinn var ekki mjög sannfærandi hjá þessum stigahæsta tennisleikara í heimi, en hann náði að klára dæmið og verður að teljast sigurstranglegur á mótinu.

Sport
Fréttamynd

Garcia farinn til Þýskalands

Landsliðsmaðurinn Jaliesky Garcia mun ekki leika með íslenska landsliðinu í handbolta á EM í Sviss vegna meiðsla og hefur hann því snúið aftur til Stuttgart í Þýskalandi þar sem lið hans Göppingen er við æfingar.

Sport
Fréttamynd

Hiddink vill taka við enska landsliðinu

Hollenski knattspyrnustjórinn Guus Hiddink hefur áhuga á að taka við enska landsliðinu eftir að Sven-Göran Eriksson lætur af störfum í sumar ef marka má yfirlýsingar umboðsmanns hans í dag. Hiddink er sem stendur þjálfari PSV Eindhoven og landsliðs Ástralíu.

Sport
Fréttamynd

Vel heppnuð endurkoma Saunders

Flip Saunders átti sérlega vel heppnaða endurkomu til Minnesota í nótt þegar nýja liðið sem hann stjórnar, Detroit Pistons, tók liðið sem hann stýrði í níu ár í bakaríið 107-83. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleiknum, en þá tók Chauncey Billups málin í sínar hendur og skoraði sjálfur fleiri stig en allt Minnesota-liðið í þriðja leikhluta.

Sport
Fréttamynd

Ætlar að leita að nýju starfi áður en HM byrjar

Sven Goran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga hefur lýst því yfir að hann ætli ekki að bíða með að leita sér að nýju starfi þangað til eftir HM. Enska knattspyrnusambandið hefur lagt blessun sína yfir að kappinn byrji leit sína að nýrri vinnu áður en HM byrjar.

Sport