Íþróttir

Fréttamynd

Benitez ánægður með Morientes

Rafael Benitez, stjóri Liverpool, var ánægður með sigur sinna manna á slöku liði Anderlecht í Meistaradeildinni í gærkvöldi og þótti sérstök ástæða til að minnast á frammistöðu landa síns Fernando Morientes sem skoraði fyrsta mark sitt í langan tíma fyrir Liverpool.

Sport
Fréttamynd

Lélegasti leikur Chelsea síðan ég tók við

Jose Mourinho, stjóri Chelsea, sagðist ekki geta fundið neinar afsakanir fyrir tapinu gegn Real Betis í Meistaradeildinni í gær og sagði leikinn hafa verið lélegustu frammistöðu liðsins síðan hann tók við því á sínum tíma.

Sport
Fréttamynd

Chelsea tapaði fyrir Real Betis

Chelsea tapaði sínum fyrsta leik í Meistaradeildinni í ár í kvöld, þegar liðið lá á Spáni fyrir Real Betis 1-0. Chelsea-liðið var mun sterkara í leiknum, en leikmenn liðsins fóru illa með færin og geta sjálfum sér um kennt hvernig fór.

Sport
Fréttamynd

Chelsea er undir í hálfleik

Eiður Smári og félagar hans í Chelsea eru undir 1-0 í hálfleik gegn Real Betis í Meistaradeildinni og það var Dani sem skoraði mark heimamanna á 28. mínútu. Eiður Smári fór illa að ráði sínu þegar hann misnotaði sannkallað dauðafæri um miðjan hálfleikinn og var skipt útaf í kjölfarið. Liverpool hefur yfir gegn Anderlecht 1-0, þar sem Morientes skoraði mark enska liðsins.

Sport
Fréttamynd

Manchester United er stærsta lið allra tíma

Alex Ferguson, stjóri Manchester United ætlar ekki að láta slakt gengi liðsins undanfarið hafa áhrif á sig og segir að tapið stóra gegn Middlesbrough geti kennt ungum leikmönnum liðsins dýrmæta lexíu.

Sport
Fréttamynd

Eiður Smári í framlínu Chelsea

Eiður Smári Guðjohnsen verður í framlínu Chelsea í leiknum við Real Betis í Meistaradeildinni nú á eftir, þegar hann jafnar met Árna Gauts Arasonar yfir flesta leiki sem Íslendingur hefur spilað í Meistaradeildinni. Þetta verður 21. leikur Eiðs Smára.

Sport
Fréttamynd

Valur fær liðsstyrk

Valsmönnum gengu í dag frá samningi við tvo nýja leikmenn sem spila munu fyrir liðið á næsta ári. Þetta eru fyrrum Fylkismaðurinn Valur Fannar Gíslason og Pálmi Rafn Pálmason frá KA. Þá hefur knattspyrnudeild Víkings ákveðið að draga kæru á hendur Valsmönnum vegna ólöglegra viðræðna við leikmenn til baka, eftir að sátt náðist milli félaganna tveggja.

Sport
Fréttamynd

Félagið fer á hausinn ef það fellur

David Sullivan, sem er meðeigandi í knattspyrnuliði Birmingham, hefur fullyrt að engum fjármunum verði varið í að styrkja liðið í janúar af þeirri einföldu ástæðu að þeir séu ekki til. Hann bendir á að ef liðið nær ekki að rétta úr kútnum og afstýra falli í vor, muni félagið einfaldlega fara á hausinn.

Sport
Fréttamynd

Chelsea mætir Real Betis

Átta leikir eru á dagskrá Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Leikur PSV Eindhoven og AC Milan verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn og hefst klukkan 19:45, en leikur Chelsea og Real Betis er sýndur á sama tíma á Sýn Extra. Sá leikur er svo sýndur síðar um kvöldið á Sýn.

Sport
Fréttamynd

Vill ekki tjá sig um Roy Keane

Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, brást reiður við á blaðamannafundi í dag, þegar hann var spurður út í skammarræðu fyrirliðans Roy Keane sem var ritskoðuðu á sjónvarpsstöð félagsins MUTV í gær.

Sport
Fréttamynd

Íhugar að kæra Jose Mourinho

Arsene Wenger var ekki hrifinn af ummælum Jose Mourinho, stjóra Chelsea um helgina, þar sem hann kallaði Wenger "gluggagægir" og segist vera að íhuga að kæra Portúgalann fyrir meiðyrði.

Sport
Fréttamynd

Dunleavy samdi við Golden State

Framherjinn ungi Mike Dunleavy hjá Golden State Warriors, framlengdi í gær samning sinn við félagið um fimm ár og fær fyrir það um 44 milljónir dollara. Dunleavy var valinn þriðji í nýliðavalinu árið 2002 og fetaði með samningnum í fótspor Tayshaun Prince sem undirritaði svipaðan samning við Detroit skömmu áður.

Sport
Fréttamynd

Þrumuræða Keane ritskoðuð af sjónvarpinu

Roy Keane vandaði félögum sínum í liði Manchester United ekki kveðjurnar í þætti á sjónvarpsstöð félagsins í dag, ef marka má viðbrögð dagskrárstjóra stöðvarinnar, því dagskrárliðurinn þar sem fyrirliðinn meiddi var beðinn að segja sína meiningu á tapinu gegn Boro um helgina var klipptur út.

Sport
Fréttamynd

Vassell gerði út af við fyrrum félaga sína

Darius Vassell skoraði tvö mörk fyrir Manchester City í 3-1 sigri á Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Andy Cole lagði upp annað markanna fyrir félaga sinn í framlínu City og setti eitt sjálfur. Liam Ridgewell skoraði mark Aston Villa.

Sport
Fréttamynd

Romanov tekur til í herbúðum félagsins

Tveir æðstu menn í stjórn knattspyrnuliðsins Hearts í skosku úrvalsdeildinni eru farnir frá félaginu. Vladimir Romanov, nýr eigandi liðsins, hefur heldur betur látið til sín taka og rak í dag Phil Anderton, yfirmann knattspyrnumála. Í kjölfarið ákvað George Foulkes að segja af sér í mótmælaskyni og því hafa þrír menn verið flæmdir frá félaginu á nokkrum dögum.

Sport
Fréttamynd

Prince semur við Detroit

Framherjinn Tayshaun Prince hefur framlengt samning sinn við Detroit Pistons til fimm ára og fær fyrir það um 47 milljónir dollara í laun. Samningar milli umboðsmanns Prince og félagsins náðust á elleftu stundu, en ef það hefði ekki tekist, hefði Prince verði með lausa samninga næsta sumar.

Sport
Fréttamynd

Tekinn fullur á bílnum um helgina

Vandræðagemlingurinn El Hadji Diouf hjá Bolton er enn kominn í fréttirnar fyrir agabrot og nú fyrir ölvunarakstur. Diouf var stöðvaður af lögreglu snemma á sunnudagsmorguninn og var látinn blása, þar sem í ljós kom að hann var undir áhrifum áfengis.

Sport
Fréttamynd

Baðst afsökunar en fær sekt

Lauren Robert hefur verið sektaður um óuppgefna upphæð fyrir að neita að vera á varamannabekk liðsins í leiknum gegn Sunderland á laugardaginn. Robert hefur beðist afsökunar á atvikinu, en hann lýsti því yfir skömmu fyrir leikinn að hann væri meiddur og gæti ekki spilað.

Sport
Fréttamynd

Arsene Wenger er eins og gluggagægir

Arsene Wenger og Jose Mourinho, knattspyrnustjórar Lundúnaliðanna Arsenal og Chelsea, munnhöggvast nú sem aldrei fyrr í fjölmiðlum og í morgun sagði Jose Mourinho að Wenger væri eins og gluggagægir að fylgjast með liði Chelsea.

Sport
Fréttamynd

Yfirtaka á næsta leiti hjá Aston Villa

Stuðningsmenn Aston Villa bíða þess nú í ofvæni að írska stórfyrirtækið Comer Homes Group kaupi hlaut Doug Ellis í félaginu og trúa að það muni hafa í för með sér að Villa komi sér á kortið með stóru liðunum á Englandi.

Sport
Fréttamynd

Börsungar í stuði í gær

Barcelona smellti sér í annað sæti spænsku deildarinnar í gær þegar liðið burstaði Real Sociedad 5-0. Osasuna er í efsta sæti deildarinnar eftir 2-0 á Espanyol í gær.

Sport
Fréttamynd

Souness bjartsýnn

Graeme Souness, knattspyrnustjóri Newcastle, segir að liðið sé að komast á beinu brautina eftir sigurinn á WBA í gær og setur stefnuna á eitt af efstu sætunum í úrvalsdeildinni í vetur.

Sport
Fréttamynd

Fyrsta tap Grindvíkinga

Nokkrir leikir voru á dagskrá í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og þá var einn leikur í kvennaflokki, þar sem Haukastúlkur skelltu Íslandsmeisturum Keflavíkur í Hafnarfirði, 66-48.

Sport
Fréttamynd

Getum engan unnið

Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United sýndi leikmönnum liðsins enga miskunn í viðbrögðum sínum við niðurlægjandi 4-1 tapi fyrir Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Hann segir að Man Utd geti ekki unnið nokkurt einasta lið í því formi sem liðið er í þessa dagana.

Sport
Fréttamynd

Owen með tvö í sigri Newcastle

Newcastle lyfti sér upp í 10. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld með 3-0 sigri á W.B.A. en þetta var eini leikurinn á dagskrá deildarinnar í dag. Michael Owen skoraði tvívegis fyrir Newcastle.

Sport
Fréttamynd

Bjarni ekki með Plymouth

Bjarni Guðjónsson var ekki í leikmannhópi Plymouth sem gerði markalaust jafntefli við Millwall í ensku 1. deildinni í fótbolta í dag. Plymouth er nú í fjórða neðsta sæti af 24 liðum deildarinnar með 16 stig, fjórum stigum á undan botnliði Millwall.

Sport
Fréttamynd

McGinley fagnaði sigri

Skoski kylfingurinn Colin Montgomerie varð efstur á peningalistanum í evrópsku mótaröðinni í golfi sem lauk með Volvo Masters mótinu á Spáni í dag. Írinn Paul McGinley fagnaði besta árangri sínum á 14 ára ferli á evrópsku mótaröðinni og fór með sigur á mótinu en hann lauk keppni á 10 undir pari.

Sport
Fréttamynd

Aftur í efstu deild eftir 40 ár

Sandefjord tryggði sér í dag sæti í efstu deild í norska fótboltanum í fyrsta skipti í 40 ár. Sandefjord náði með sigrinum 2. sæti í 1. deild með 4-3 sigri á Moss í dag en Sandefjord hefur ekki leikið í efstu deild síðan 1965. Andreas Tegström skoraði þrennu fyrir Sandefjord sem lenti 1-0 undir í leiknum en komst í 2-4 með mörkum Tegström á 73. mínútu og gífurleg fagnaðarlæti brutust út.

Sport
Fréttamynd

Veigar skoraði tvö fyrir Stabæk

Veigar Páll Gunnarsson lék allan leikinn og skoraði tvö af mörkum Stabæk sem valtaði yfir Pors Grenland, 8-1 í lokaumferð 1. deildar í norska fótboltanum í dag. Veigar skoraði samtals 13 mörk í deildinni þetta tímabilið og varð þriðji markahæsti leikmaðurinn.

Sport
Fréttamynd

Lampard er bestur í heimi

Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea segir að Frank Lampard sé besti leikmaður í heimi í dag. Lampard átti enn einn stórleikinn fyrir Chelsea í 4-2 sigrinum á Blackburn í gær og skoraði tvö mörk og hefur nú alls skorað 100 mörk. Mourinho segir að Lampard geti einfaldlega ekki orðið betri.

Sport