Erlendar
197 198 199 200 201 202 203 204 205 … 264 ›
Verður í Þýskalandi framvegis Jurgen Klinsmann, landsliðsþjálfari Þjóðverja, hefur nú svarað gagnrýni sem hann hefur orðið fyrir undanfarið fullum hálsi. Klinsmann hefur verið gagnrýndur fyrir að vera ekki viðstaddur uppákomu á vegum landsliðsins í Þýskalandi fyrir skömmu, en hann hann hefur nú gefið upp ástæður fyrir fjarveru sinni. Sport 12.3.2006 17:28
Henry kemur Arsenal yfir Það er heldur betur fjör farið að færast í leik Arsenal og Liverpool á Highbury, því nú hefur Thierry Henry komið Arsenal í 2-1 eftir skelfileg mistök Steven Gerrard hjá Liverpool, sem renndi boltanum glórulaust til baka inn fyrir vörnina þar sem Thierry Henry stóð aleinn og renndi boltanum í netið. Sport 12.3.2006 17:43
Garcia jafnar fyrir Liverpool Spánverjinn Luis Garcia hefur náð að jafna leikinn fyrir Liverpool gegn Arsenal á Highbury í viðureign liðanna í ensku úrvalsdeildinni. Garcia fylgdi vel á eftir þrumuskoti Steven Gerrard á 76. mínútu og skallaði boltann í netið eftir að Jens Lehmann sló boltann út í teiginn. Aðeins augnabliki síðar var svo Xabi Alonso hjá Liverpool svo vikið af leikvelli eftir að hann fékk sitt annað gula spjald. Sport 12.3.2006 17:38
Vill fá Owen aftur á Anfield Steven Gerrard hefur viðurkennt að hann sakni Michael Owen sárt og segir að Liverpool vanti einmitt framherja á borð við Owen, þar sem liðinu hefur gengið afleitlega að skora að undanförnu. Sport 12.3.2006 17:21
Arsenal hefur yfir í hálfleik Arsenal hefur 1-0 forystu gegn Liverpool þegar flautað hefur verið til hlés í leik liðanna á Highbury. Aðeins glæsimark Thierry Henry skilur liðin að eftir 45 mínútna leik, en heimamenn hafa verið heldur sprækari, þó gestirnir hafi átt fleiri marktilraunir. Sport 12.3.2006 17:00
Charlton lagði Middlesbrough Charlton vann í dag góðan 2-1 sigur á Middlesbrough í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni. Darren Bent kom heimamönnum yfir á 73. mínútu og skoraði svo sigurmarkið fjórum mínútum fyrir leikslok, en áður hafði Mark Viduka jafnað metin fyrir Middlesbrough. Sport 12.3.2006 16:51
Tímabilið verður galopið í ár Heimsmeistarinn Fernando Alonso hjá Renault segist eiga von á að keppnistímabilið í Formúlu 1 í ár verði mjög spennandi og opið, en hann vill meina að fjögur keppnislið muni berjast um sigurinn í hverri einustu keppni. Sport 12.3.2006 16:33
Henry kemur Arsenal yfir Snillingurinn Thierry Henry er búinn að koma Arsenal í 1-0 gegn Liverpool í leik liðanna í Highbury. Markið skoraði Henry á 21. mínútu með glæsilegum hætti eftir góða sendingu frá Cesc Fabregas. Sport 12.3.2006 16:22
Ekki búið að ráða Curbishley Enska knattspyrnusambandið hefur sent frá sér yfirlýsingu um að ekki sé búið að ráða Alan Curbishley stjóra Charlton sem næsta þjálfara enska landsliðsins, en myndir náðust af Curbishley ganga til fundar við sambandið í gær. Nú er verið að ræða við hugsanlega eftirmenn Sven-Göran Eriksson og er Curbishley einn þeirra sem koma til greina í því sambandi. Sport 12.3.2006 16:11
Markalaust á The Walley Enn er markalaust í leik Charlton og Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni en nú hefur verið flautað til leikhlés á The Valley. Stórleikur Arsenal og Liverpool er um það bil að hefjast. Peter Crouch verður einn í framlínu Liverpool í dag og Frakkinn Djibril Cisse er ekki í leikmannahópi liðsins. Sport 12.3.2006 15:54
Rooney sökkti Newcastle Wayne Rooney skoraði bæði mörk Manchester United í dag þegar liðið lagði Newcastle 2-0 á heimavelli sínum Old Trafford og styrkti þar með stöðu sína í öðru sæti deildarinnar. Mörk Rooney komu með aðeins 4 mínútna millibili á 8. og 12. mínútu leiksins. Sport 12.3.2006 15:33
Alonso sigraði í Barein Heimsmeistarinn Fernando Alonso byrjaði keppnistímabilið í Formúlu 1 með stæl í dag þegar hann skaut fyrrum heimsmeistaranum Michael Schumacher ref fyrir rass og sigraði í fyrstu keppni ársins. Schumacher var á ráspól í dag, en varð að láta sér annað sætið duga að þessu sinni. Kimi Raikkonen var engu að síður hetja dagsins því hann vann sig úr síðasta sæti í það þriðja með frábærum akstri. Sport 12.3.2006 14:41
Nash sneri aftur með stórleik Leikstjórnandinn Steve Nash sneri aftur eftir ökklameiðsli með liði sínu Phoenix Suns í nótt og ekki var að sjá að hann kenndi til í ökklanum í sigri á Minnesota 110-102. Nash skoraði 31 stig og gaf 11 stoðsendingar, Tim Thomas skoraði 19 stig og Boris Diaw skoraði 18 stig. Hjá Minnesota var Kevin Garnett atkvæðamestur með 28 stig og 10 fráköst og Trenton Hassell var með 21 stig. Sport 12.3.2006 05:17
Le Guen tekur við Rangers Úrvalsdeildarlið Glasgow Rangers gekk í dag frá þriggja ára samningi við knattspyrnustjóran Paul Le Guen og mun hann taka við liðinu í sumar þegar Alex McLeish lætur af störfum hjá félaginu. Le Guen stýrði áður frönsku meisturunum Lyon í Frakklandi. Sport 11.3.2006 18:14
Enn vænkast hagur Reading Íslendingalið Reading siglir nú lygnan sjó á toppi 1. deildarinnar á Englandi, þrátt fyrir markalaust jafntefli liðsins á heimavelli gegn Watford. Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson spiluðu allan leikinn með Watford í dag, en liðið hefur nú 15. stiga forskot á næsta lið á toppi deildarinnar og á úrvalsdeildarsætið nokkuð víst næsta haust. Sport 11.3.2006 17:21
Bolton burstaði West Ham Bolton heldur sínu striki í baráttunni um Evrópusæti í ensku úrvalsdeildinni og í dag vann liðið stórsigur á West Ham 4-1 á heimavelli sínum. Stelios Giannakopoulos skoraði tvö marka Bolton, Gary Speed eitt og Henrik Pedersen eitt. Gamla brýnið Teddy Sheringham skoraði mark West Ham. Sport 11.3.2006 17:07
Raikkönen vongóður þrátt fyrir áföllin Finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen er staðráðinn í að láta ekki áföllin í byrjun tímabils hafa áhrif á sig, en eftir að lið hans McLaren lenti í vélarbilunum í gær, þarf hann að byrja síðastur á ráslínu í Barein á morgun eftir að hafa lent í óhappi í fyrsta hring í tímatökunum í dag. Sport 11.3.2006 16:35
Lemgo hafði betur í Íslendingaslagnum Logi Geirsson og félagar í Lemgo unnu góðan sigur á Guðjóni Val Sigurðssyni og félögum í Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag 28-26. Logi skoraði 1 mark fyrir Lemgo og Ásgeir Örn komst ekki á blað, en Guðjón Valur skoraði 8 mörk fyrir Gummersbach og Róbert Gunnarsson var með 5 mörk. Sport 11.3.2006 16:20
Beattie með tvö mörk í hálfleik Framherjinn James Beattie er í miklu stuði með liði sínu Everton gegn Heiðari Helgusyni og félögum í Fulham, en Everton hefur yfir 2-0 í hálfleik á Goodison Park. Bolton er að taka West Ham í bakaríið 3-0. Stelios Giannakopoulos hefur skorað tvívegis fyrir Bolton og Gary Speed einu sinni. Wigan hefur yfir gegn Sunderland 1-0 og markalaust er hjá Portsmouth og Manchester City. Sport 11.3.2006 15:58
Ég vissi strax að þetta yrði mark Sigurmark William Gallas gegn Tottenham í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag var einstaklega glæsilegt og ekki á hverjum degi sem varnarmaðurinn knái skorar svona mörk. John Terry fyrirliði Chelsea sagðist hafa séð strax að skot félaga síns myndi hafna í netinu. Sport 11.3.2006 15:33
Erfiðið er að borga sig Michael Schumacher segir að þrotlausar æfingar og prófanir séu lykillinn á bak við góðan árangur Ferrari í tímatökunum í Barein í dag. "Það er orðið langt síðan maður var í þessari aðstöðu síðast og nú er allt erfiðið í vetur svo sannarlega að skila sér. Það er ekkert að marka þó hlutirnir líti vel út á æfingu, þú veist aldrei hvar þú stendur fyrr en á brautina er komið," sagði Þjóðverjinn. Sport 11.3.2006 15:05
Heiðar í byrjunarliði Fulham Fjórir leikir eru á dagskrá klukkan 15 í ensku úrvalsdeildinni. Heiðar Helguson er í byrjunarliði Fulham þegar liðið sækir Everton heim í leit að fyrsta útisigri sínum á leiktíðinni. Bolton mætir West Ham, Portsmouth tekur á móti Manchester City og Sunderland mætir Wigan. Sport 11.3.2006 14:51
Jafnt hjá Birmingham og West Brom Nathan Ellington var hetja West Brom í dag þegar hann tryggði liði sínu dýrmæt stig í botnbaráttu úrvalsdeildarinnar gegn Birmingham, með marki tveimur mínútum eftir að hann kom inná sem varamaður. Mikael Forssel skoraði mark heimamanna úr vítaspyrnu í upphafi síðari hálfleiksins. Bæði lið eru eftir sem áður í bullandi fallbaráttu. Sport 11.3.2006 14:45
Draumamark Gallas tryggði Chelsea sigur William Gallas tryggði Chelsea mikilvæg stig í titilbaráttunni í dag þegar hann skoraði glæsilegt mark með þrumuskoti þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma gegn Tottenham. Chelsea vann því leikinn 2-1 og er komið með aðra hönd á Englandsbikarinn. Sport 11.3.2006 14:38
Lakers lagði San Antonio Los Angeles Lakers vann í nótt óvæntan útisigur á San Antonio Spurs á útivelli 100-92. Meistararnir komust aldrei í gang í leiknum og virkuðu þreyttir eftir mikið leikjaálag síðustu daga og skoraði Tim Duncan t.a.m. aðeins 12 stig í leiknum. Kobe Bryant skoraði 29 stig fyrir Lakers. Sport 11.3.2006 14:09
Schumacher á ráspól Ferrari gekk allra liða best í tímatökunum fyrir Barein kappaksturinn sem fram fer á morgun. Það var fyrrum heimsmeistarinn Michael Schumacher sem náði bestum tíma og verður því á ráspól í 65. skiptið á ferlinum á morgun. Hann jafnar þar með met Brasilíumannsins Ayrton Senna. Félagi Schumacher Felipe Massa varð í öðru sæti, Jenson Button í þriðja og heimsmeistarinn Fernando Alonso í fjórða. Sport 11.3.2006 13:48
Jafnt á Stamford Bridge í hálfleik Staðan hjá Chelsea og Tottenham er jöfn 1-1 þegar blásið hefur verið til leikhlés í Stamford Bridge. Michael Essien kom heimamönnum yfir strax á 14. mínútu, en Jermaine Jenas jafnaði metin fyrir Tottenham rétt fyrir lok hálfleiksins. Staðan í leik Birmingham og West Brom er einnig 1-1, en þar er skammt til leiksloka. Sport 11.3.2006 13:38
Að verða til í slaginn? Miðjumaður Liverpool, Momo Sissoko, gæti óvænt komið inn í byrjunalið Liverpool eftir þrjár vikur en hann varð fyrir meiðslum á auga í fyrri leik liðsins gegn Benfica í Meistaradeildinni fyrir rífum tveimur vikum síðan. Sport 11.3.2006 00:34
Framlengir við Fulham Bandaríski sóknarmaðurinn Brian McBride hefur framlengt samning sinn við enska úrvalsdeildarfélagið Fulham um eitt ár. McBride hefði orðið samningslaus eftir tímabilið en honum hefur verið umbunað fyrir frábæra frammistöðu á tímabilinu. Sport 10.3.2006 23:40
Nolan leikmaður febrúarmánaðar Miðjumaðurinn Kevin Nolan hjá Bolton var í dag kjörinn leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni. Nolan er 23 ára gamall og hefur skorað 10 mörk í deildinni á tímabilinu, sem verður að teljast gott af miðjumanni að vera. Sam Allardyce stjóri Bolton segist alveg eins búast við að sjá Nolan í enska landsliðinu fljótlega. Sport 10.3.2006 20:07
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent