Erlendar
208 209 210 211 212 213 214 215 216 … 264 ›
Colchester komið yfir gegn Chelsea Neðrideildarliðið Colchester er komið yfir gegn Englandsmeisturum Chelsea í ensku bikarkeppninni. Ricardo Carvalho skoraði sjálfsmark en rétt áður höfðu Colchester mennátt skot í stöngina. Forysta liðsins er verðskulduð með meiru en Eiður Smári Guðjohnsen er ekki í liði Chelsea í dag sem leikur á sínum eigin heimavelli, Stamford Bridge. Sport 19.2.2006 16:30
Robinson sýndi bestu tilþrifin Nate Robinson, nýliði New York Knicks, sigraði í troðslukeppni NBA sem haldin er árlega í kringum Stjörnuleikinn sem fer fram í Houston í nótt. Leikurinn hefst klukkan 1.30 og verður í beinni útsendingu á Sýn. Sport 19.2.2006 16:24
Gæti spilað í átta ár til viðbótar Cafu leikmaður AC Milan á Ítalíu er sem endurfæddur eftir hnéaðgerð sem hann gekkst undir nýverið. Cafu er 34 ára gamall en spilar enn meðal þeirra allra bestu enda í gríðarlega góðu formi og er almennt talinn vera einn allra fremsti hægri bakvörður í heimi. Sport 19.2.2006 14:28
18 ára gutti sló Roddick út Átján ára gamall piltur frá Skotlandi gerði sér lítið fyrir og lagði besta tenniskappa heims, Andy Roddick í SAP mótinu í San Jose í Bandaríkjunum. Sport 19.2.2006 14:18
Standa ekki í vegi fyrir McClaren Middlesbrough munu ekki standa í vegi fyrir Steve McClaren stjóra liðsins verði honum boðið að taka við enska landsliðinu. McClaren er talinn líklegur artaki Sven Göran Eriksson sem hættir með landsliðið eftir HM í sumar. Sport 19.2.2006 13:57
Keppni frestað hjá Dagnýju Keppni í risasvigi á Ólympíuleikunum í Tórínó hefur verið frestað til morguns vegna aðstæðna. Skyggni er mjög slæmt og óveður í fjallinu. Dagný Linda Kristjánsdóttir keppir í risasviginu en verður að bíða til morguns með að renna sér í brautinni. Sport 19.2.2006 13:48
Alan Smith mun jafna sig David O´Leary fyrrum stjóri Alan Smith hjá Leeds segir að hann muni komast í gegnum þau skelfilegu meiðsli sem hann hlaut í gær. Smith fer í aðgerð í dag en hann fótbrotnaði í leiknum gegn Liverpool sem United tapaði 1-0. Sport 19.2.2006 12:41
Paletta mun ná langt Rafael Benítez stjóri Liverpool segir að Argentínski varnaraðurinn Gabriel Paletta, sem kemur til Evrópumeistaranna í sumar, muni slá í gegn á Englandi. Sport 19.2.2006 12:23
Newcastle komst áfram Newcastle er komið áfram í átta liða úrslit ensku bikarkeppninnar en liðið lagði Southampton í dag. Kyeron Dyer skoraði eina mark leiksins. Sport 18.2.2006 19:27
Leicester og Leeds skildu jöfn Leceister og Leeds gerðu 1-1 jafntefli í ensku 1. deildinni í dag. Jóhannes Karl Guðjónsson spilaði allan leikinn með Leceister en Gylfi Einarsson var ónotaður varamaður hjá Leeds. Sport 18.2.2006 19:09
Charlton áfram Charlton er komið í átta liða úrslit FA bikarkeppninnar eftir 3-1 sigur á 1. deildarliðinu Brentford en Hermann Hreiðarsson lék allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá Charlton. Bolton og West Ham þurfa að mætast aftur eftir markalaust jafntefli. Sport 18.2.2006 17:07
Mjög sérstakt að skora sigurmarkið Peter Crouch framherji Liverpool var í skýjunum eftir að hafa skorað sigurmarkið gegn Manchester United í FA bikarkeppninni í dag. Crouch skoraði eina mark leiksins á 19. mínútu með góðum skalla sem dugði til sigurs. Sport 18.2.2006 16:25
Sigurgöngu Reading lokið Reading, lið Ívars Ingimarssonar og Brynjars Bjarnar Gunnarssonar, tapaði fyrsta leik sínum í ensku 1. deildinni síðan í ágúst í kvöld þegar liðið lá 3-2 fyrir Luton á útivelli. Ívar og Brynjar voru báðir í byrjunarliði Reading í kvöld, en liðið hefur 12 stiga forystu á toppi deildarinnar þrátt fyrir tapið. Sport 17.2.2006 22:04
Reading undir gegn Luton Topplið Reading er undir 2-1 á útivelli gegn Luton Town í ensku 1. deildinni eftir að liðið náði forystu í leiknum eftir aðeins örfáar sekúndur. Brynjar Björn Gunnarsson og Ívar Ingimarsson eru báðir í byrjunarliði Reading í leiknum. Sport 17.2.2006 20:34
Cappello eftirmaður Eriksson? Ítalska blaðið Corriere dello sport greinir frá því í dag að Fabio Capello stjóra Juventus hafi verið boðið að taka við enska landsliðinu í sumar og segir að hann fái fyrir um 19 milljónir punda. Enska knattspyrnusambandið hefur þó séð ástæðu til að vísa þessum fréttum á bug og neitar því alfarið að búið sé að finna eftirmann Sven-Göran Eriksson. Sport 17.2.2006 18:11
Dómarinn verður að hafa góð tök á bikarleiknum Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir afar mikilvægt að dómarinn Howard Webb hafi góð tök á bikarleik liðsins gegn Liverpool á morgun, því hann óttist að annars gæti soðið uppúr milli leikmanna liðanna. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn. Sport 17.2.2006 17:12
Dómararnir á Englandi eru skelfilegir Dennis Rodman lék í gærkvöld sinn síðasta leik fyrir lið Brighton Bears í ensku úrvalsdeildinni í körfubolta þegar liðið burstaði London Towers 103-84. Rodman hafði sitt að segja um veru sína á Englandi, enda ekki vanur að liggja á skoðunum sínum. Sport 17.2.2006 16:50
Óánægja með öryggi í Stuttgart Nokkur óánægja ríkir nú með öryggisviðbúnað á heimavelli þýska úrvalsdeildarliðsins Stuttgart, sem notaður verður á HM í sumar, eftir að öryggisútkall á vellinum á leik Stuttgart og Middlesbrough í gær var ekki þýtt yfir á ensku og því sátu enskir áhorfendur eftir í stúkunni á meðan þeir þýsku fóru að fyrirmælum vallarvarða og yfirgáfu leikvanginn. Sport 17.2.2006 14:25
Djemba Djemba biðst afsökunar Miðjumaðurinn Eric Djemba Djemba hefur beðið David O´Leary knattspyrnustjóra Aston Villa afsökunar á að hafa komið of seint í herbúðir liðsins eftir að lið Kamerún var slegið út úr Afríkukeppninni í knattspyrnu á dögunum. Sport 17.2.2006 15:34
Button þarf sigur fjótlega Fyrrum heimsmeistarinn í Formúlu 1, Nigel Mansell, segir að Jenson Button verði að krækja í sinn fyrsta sigur mjög fljótlega ef hann eigi að standa undir væntingum með liði Honda í vetur. Besti árangur Button í keppni til þessa er annað sæti, en Mansell telur að hinum 26 ára gamla ökumanni sé hollara að fara að ná í sigur. Sport 17.2.2006 14:18
Rose og Wilson í forystu Breski kylfingurinn Justin Rose og Bandaríkjamaðurinn Dean Wilson eru efstir og jafnir á sjö höggum undir pari eftir fyrsta hringinn á Nissan Open mótinu í golfi sem fer fram á Riviera Country Club vellinum í Kaliforníu. Sýnt verður frá mótinu á Sýn um helgina. Sport 17.2.2006 14:08
O´Neal talinn líklegastur Í víðtækri könnun sem gerð var á BBC kemur í ljós að flestir telja líklegast að Martin O´Neil verði næsti landsliðsþjálfari Englendinga í knattspyrnu þegar Sven-Göran Eriksson stígur af stóli eftir HM í sumar. Sport 17.2.2006 13:29
Bergkamp gefur kost á sér í leikinn á Spáni Hinn flughræddi framherji Arsenal, Dennis Bergkamp, segist ætla að gefa kost á sér í fyrri leik Arsenal gegn Real Madrid í Meistaradeildinni í næstu viku, en hann fer sjaldan í keppnisferðalög með liðinu í Meistaradeildinni því hann neitar að fljúga. Sport 17.2.2006 13:19
Phoenix valtaði yfir Houston Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt, en þetta voru síðustu leikirnir í deildinni fyrir hlé sem gert er vegna Stjörnuleiksins um helgina. Phoenix Suns valtaði yfir Houston á heimavelli sínum 109-75, þar sem Steve Nash skoraði 21 stig og Shawn Marion 16 fyrir Phoenix, en Stromile Swift skoraði 13 stig fyrir Houston. Sport 17.2.2006 12:58
Chicago - Philadelphia í beinni Í kvöld verður síðasta beina útsendingin úr deildarkeppninni í NBA áður en kemur að fjögurra daga hlé vegna Stjörnuhelgarinnar í Houston. Leikur kvöldsins er viðureign Chicago Bulls og Philadelphia 76ers, en útsending hefst skömmu eftir miðnættið í nótt. Sport 16.2.2006 18:57
Hefur miklar mætur á Benitez Sir Alex Ferguson er mjög hrifinn af kollega sínum Rafa Benitez hjá Liverpool og segir hann prýðisnáunga sem hafi góð áhrif á lið sitt. Þeir félagar leiða saman lið sín í stórleik helgarinnar í enska bikarnum. Sport 16.2.2006 18:51
McLeish fer í úrvalsdeildina Sir Alex Ferguson segist viss um að Alex McLeish, stjóri Rangers, muni taka við liði í ensku úrvalsdeildinni á næsta ári þegar hann lætur af störfum hjá skosku meisturunum. Sport 16.2.2006 18:33
Larsson semur við sitt gamla félag Sænski sóknarmaðurinn Henrik Larsson ætlar að ljúka ferli sínum með liði Helsingborg í heimabæ sínum í Svíþjóð og hefur nú undirritað 18 mánaða samning við félagið. Larsson leikur sem kunnugt er með Spánarmeisturum Barcelona, en hann snýr aftur til Svíþjóðar í sumar að leiktíð lokinni. Sport 16.2.2006 16:45
Boro hefur áhuga á Intertoto Middlesbrough er þriðja enska liðið á skömmum tíma sem tilkynnir áhuga sinn á að vera með í Intertoto keppninni evrópsku á næsta ári, ef svo fer að liðið nái ekki að vinna sér inn sæti í Evrópukeppni félagsliða í gegn um ensku úrvalsdeildina. Áður hafa Blackburn og Everton greint frá áhuga sínum á að vera með í keppninni. Sport 16.2.2006 16:36
Megson hættur hjá Forest Gary Megson hefur sagt af sér sem knattspyrnustjóri Nottingham Forest, en gengi liðsins hefur verið afar dapurt undanfarið. Stuðningsmenn Forest voru orðnir mjög óhressir með gengi liðsins sem hefur aðeins unnið einn af síðustu tíu leikjum sínum og er komið í fallbaráttu í fyrstu deildinni. Sport 16.2.2006 16:22
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent