Erlendar
227 228 229 230 231 232 233 234 235 … 264 ›
Kominn til Charlton Framherjinn Marcus Bent gekk í dag formlega til liðs við Hermann Hreiðarsson og félaga hans í Charlton, en hann var áður hjá Everton. Kaupverðið er 2 milljónir punda, en gæti orðið 2,5 milljónir háð samningsákvæðum með leikjafjölda og markaskorun. Samningurinn er til þriggja og hálfs árs. Sport 17.1.2006 13:36
Federer byrjar með stæl Tenniskappinn Roger Federer var ekki í vandræðum í fyrstu umferðinni á opna ástralska meistaramótinu í tennis þar sem hann vann nokkuð fyrirhafnarlítinn 6-2, 6-3 og 6-2 sigur á Denis Istomin frá Úsbekistan. Þá átti Martina Hingis frábæra endurkomu og skellti andstæðingi sínum auðveldlega 6-1 og 6-2, en hún hefur verið frá í þrjú ár vegna meiðsla. Sport 17.1.2006 13:31
Tilboðunum rignir inn Forráðamenn Southampton hafa staðfest að félagið hafi fengið tvö formleg tilboð í framherjann unga Theo Walcott og segjast búast við því að fá í það minnsta eitt í viðbót mjög fljótlega. Talið er að Arsenal sé búið að leggja fram tilboð upp á 12 milljónir punda í leikmanninn, en vitað er af áhuga Tottenham, Chelsea og Manchester United. Sport 17.1.2006 13:26
Lagði Boston næsta auðveldlega Detroit Pistons hélt sigurgöngu sinni áfram í NBA-deildinni í körfubolta í gær þegar liðið mætti Boston Celtics í fyrrinótt. Lið Boston reyndist vera lítil fyrirstaða og unnu Pistons sanngjarnan sigur 94-84. Sport 17.1.2006 11:59
Lá við slagsmálum á æfingasvæðinu Stjörnuleikmenn Manchester United, Ruud Van Nistelrooy og Christiano Ronaldo, rifust heiftarlega á æfingu liðsins á mánudag og þurftu liðsfélagar þeirra að skilja þá að. Sport 17.1.2006 10:59
Er ekki á förum í sumar Hernan Crespo; framherji Chelsea, segist ekki vera á förum frá Chelsea á næstunni. Hann blæs á allar sögusagnir sem bendla hann við önnur lið. Sport 17.1.2006 09:59
Ætlar að hætta 2009 Fabio Capello, þjálfari Juventus, hefur látið í veðri vaka að hann ætli sér að hætta knattspyrnuþjálfun árið 2009. ástæðuna segir hann að sé löngun til þess að fá meiri frítíma og ferðast um heiminn. Sport 17.1.2006 09:36
Real er að rétta úr kútnum Franski miðjumaðurinn Zinedine Zidane segir að Real Madrid sé nú óðum að sýna sitt rétta andlit eftir góðan 4-2 sigur liðsins á Sevilla í gær, þar sem hann skoraði sjálfur þrennu. Sport 16.1.2006 19:11
Kobe og Shaq mætast á ný Það verður enginn smá leikur á dagskrá á NBA TV í beinni útsendingu í nótt, en þar mætast LA Lakers og Miami Heat í síðari leik sínum á tímabilinu eftir að Miami vann uppgjör liðanna á jóladag. Þó mikið hafi verið gert úr einvígi hinna fornu fjenda og fyrrum félaga, Kobe Bryant og Shaquille O´Neal, er ekki víst að mesta andúðin í kvöld verði þeirra á milli. Leikurinn hefst klukkan 03:30 í nótt. Sport 16.1.2006 18:45
Beckham er sannur atvinnumaður Juan Ramon Lopez Caro, stjóri Real Madrid, segir að David Beckham hafi tekið fréttunum af Sven-Göran Eriksson í bresku pressunni um helgina með stakri ró, en í blaðamenn News of the World lokkuðu Svíann í gildru þar sem hann talaði af sér, meðal annars um Beckham. Sport 16.1.2006 18:35
Tony Adams til Utrecht Fyrrum fyrirliði Arsenal og enska landsliðsins, Tony Adams, hefur verið ráðinn á reynslusamning sem þjálfari hjá hollenska liðinu Utrecht. Frá þessu var gengið í dag. "Hann verður hjá okkur í mánuð til að athuga hvort honum líst á starfið," sagði Foeke Booy, knattspyrnustjóri félagsins. Sport 16.1.2006 16:52
Schumacher prófaði nýja bílinn í dag Michael Schumacher prufukeyrði 2006 árgerðina af Ferrari á Fiorano æfingabrautinni í dag. Schumacher æfði ræsingar og ók bílnum fjóra hringi, en bíllinn verður ekki frumsýndur formlega fyrr en á Mugello-brautinni þann 24. janúar. Sport 16.1.2006 16:25
Við vinnum Englendinga á HM Jens Lehmann, markvörður Arsenal, hefur gefið það út að ef Englendingar og Þjóðverjar komi til með að mætast á HM í sumar, muni Þjóðverjar hafa betur vegna álagsins sem er á ensku leikmönnunum í deildinni heimafyrir. Þá hefur hann sínar skoðanir á því hverjir eru bestu leikmenn heims í dag. Sport 16.1.2006 15:50
Fékk tilboð frá Valencia og Juventus Portúgalski miðjumaðurinn Cristiano Ronaldo hjá Manchester United gaf það út í viðtali við brasilíska blaðið Lance að hann hefði neitað tilboðum frá Juventus og Valencia á sínum tíma, því hann vildi vera áfram í herbúðum Manchester United. Ronaldo samdi við enska liðið til ársins 2010 fyrir stuttu. Sport 16.1.2006 15:44
Fulham gerir tilboð í Matt Taylor Fulham, lið Heiðars Helgusonar í ensku úrvalsdeildinni, hefur gert Portsmouth formlegt tilboð í fyrrum U-21 árs landsliðsmanninn Matthew Taylor, ef marka á fréttavef Sky. Umboðsmaður Taylor hefur staðfest að tilboð hafi verið gert í leikmanninn og því kemur væntanlega í ljós fljótlega hvort af viðskiptunum verður. Sport 16.1.2006 16:21
Hættu að tala um að hætta Ralf Schumacher, ökumaður Toyota og bróðir fyrrum heimsmeistarans Michael Schumacher hjá Ferrari, hefur aldrei verið feiminn við að tjá skoðanir sínar á bróður sínum og nú hefur hann gefið það út að Michael ætti að hætta að tala um að leggja stýrið á hilluna og einbeita sér að því að vinna titla með liði sínu. Sport 16.1.2006 15:29
Serena í erfiðleikum Serena Williams var ekki langt frá því að fara sömu leið og systir hennar Venus í fyrstu umferð opna ástralska meistaramótisins í tennis í dag, en vann þó nauman sigur á lítt þekktum andstæðingi sínum Li Na. Mari Sharapova og Lindsey Davenport unnu sína leiki nokkuð örugglega og eru komnar áfram. Sport 16.1.2006 15:21
Nálægt því að landa Bent Úrvalsdeildarlið Charlton er nú komið á fremsta hlunn með að landa framherjanum Marcus Bent frá Everton, að því talið er fyrir um tvær milljónir punda. Charlton verður því líklega níunda liðið sem Bent leikur fyrir á tíu árum, en hann hefur átt erfitt uppdráttar hjá Everton í vetur. Sport 16.1.2006 15:12
Áfrýjar rauða spjaldinu á Ronaldo Manchester United hefur ákveðið að áfrýja rauða spjaldinu sem miðjumaðurinn Cristiano Ronaldo fékk að líta í grannaslag Manchester United og Manchester City á laugardaginn. Ronaldo fékk beint rautt spjald fyrir tæklingu á Andy Cole um miðjan síðari hálfleikinn og vill félagið meina að brottvísunin hafi verið óréttmæt. Sport 16.1.2006 15:01
Stærsta áfallið á ferli hans Aðstoðarmaður Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfara Englendinga í knattspyrnu, segir að gildran sem blaðamenn News of the World leiddu hann í um helgina sé stærsta áfall sem hann hafi orðið fyrir á ferli sínum sem þjálfari, en tekur fram að Eriksson sé 100% einbeittur í starfi sínu sem landsliðsþjálfari og muni ekki segja af sér. Sport 16.1.2006 14:46
Henman tapaði aftur fyrir Trusunov Breski tenniskappinn Tim Henman féll úr keppni í fyrstu umferð opna ástralska meistaramótsins í tennis. Henman tapaði fyrir Rússanum Dmitri Tursanov 7-5, 3-6, 4-6 og 5-7, en Tursanov sló Henman einmitt úr keppni á Wimbledon-mótinu á síðasta ári. Sport 16.1.2006 14:09
Toronto stöðvaði sigurgöngu New York Lið Toronto Raptors stöðvaði í nótt sex leikja sigurgöngu New York Knicks með 129-103 sigri á heimavelli sínum í Kanada. New York var fyrir leikinn eina taplausa liðið í NBA á árinu, en 31 stig frá Jalen Rose áttu stóran þátt í þessum sigri, sem jafnframt bauð upp á mesta stigaskor í sögu Toronto liðsins. Eddy Curry skoraði 20 stig fyrir New York og Stephon Marbury var með 18 stig og 13 stoðsendingar. Sport 16.1.2006 13:53
Venus Williams tapaði óvænt Bandaríska tenniskonan Venus Williams féll mjög óvænt úr keppni á opna ástralska meistaramótinu í tennis í nótt, þegar hún tapaði fyrir búlgörsku stúlkunni Tszvetlönu Pironkovu á opnunardegi mótsins, en hún er aðeins 18 ára gömul og er í 94. sæti styrkleikalista alþjóða tennissambandsins. Pironkova sigraði 2-6, 6-0 og 9-7. Sport 16.1.2006 13:42
Southampton neitar tilboði Arsenal Southampton hefur neitað tilboði upp á rúmlega tólf milljónir punda í hinn kornunga Theo Walcott. Að sögn forráðamanna Southampton eru Chelsea að undirbúa enn stærra boð í framherjann efnilega. Sport 16.1.2006 09:55
Sigraði á opna Sony-mótinu David Toms sigraði örugglega á Opna Sony-mótinu á Sunnudag sem haldið var á Hawaí. Var hann vel a sigrinum kominn þar sem hann fór síðasta hringinn á einungis 59 höggum. Sport 16.1.2006 09:19
Mourinho sættir sig við rauða spjaldið Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea hafði ekki yfir miklu að kvarta eftir 2-1 útisigur sinna manna gegn botnliði Sunderland í dag sunnudag. Hann segir dómarann hafa gert rétt þegar hann vísaði Arjen Robben af velli fyrir að fagna sigurmarki sínu með áhorfendum en sá hollenski stökk yfir auglýsingaskilti og henti sér í áhorfendaskarann. Sport 15.1.2006 23:06
Roma lagði AC Milan Brasilíski kantmaðurinn Alessandro Mancini tryggði Roma óvæntan 1-0 sigur á AC Milan í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Sigurmarkið kom á 81. mínútu þvert gegn gangi leiksins en Milan liðið var mun betri aðilinn í leiknum en fóru illa með fjöldamörg færi sín. Sport 15.1.2006 22:34
Zidane með þrennu fyrir Real Madrid Real Madrid lyfti sér upp í 4. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld þegar liðið sigraði Sevilla 4-2. Zinedine Zidane var sjóðheitur og skoraði þrennu fyrir Madridarliðið sem var mun betri aðilinn í leiknum. Sport 15.1.2006 22:26
17. sigur Barcelona í röð Óvænt úrslit urðu í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag þegar botnlið Alaves vann 2-0 útisigur á Deportivo Coruna. Þetta var fyrsti leikur Alaves undir stjórn nýja knattspyrnustjórans Juan Carlos Oliva. Barcelona vann 17. leik sinn í röð í öllum keppnum talið þegar Katalóníurisinn vann 2-1 sigur á Athletic Bilbao á Nou Camp í kvöld. Sport 15.1.2006 19:56
Ungverjar lögðu Þjóðverja Ungverjar sem verða í riðli með Íslandi á Evrópumótinu í handbolta í lok mánaðarins, unnu Þjóðverja í dag, 34-30 á fjögurra þjóða móti í Króatíu í dag. Slóvenar og Króatar leika til úrslita í kvöld. Sport 15.1.2006 19:24
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent