Sport

Real er að rétta úr kútnum

Zinedine Zidane fagnar hér einu marka sinna í gærkvöldi
Zinedine Zidane fagnar hér einu marka sinna í gærkvöldi NordicPhotos/GettyImages

Franski miðjumaðurinn Zinedine Zidane segir að Real Madrid sé nú óðum að sýna sitt rétta andlit eftir góðan 4-2 sigur liðsins á Sevilla í gær, þar sem hann skoraði sjálfur þrennu.

"Það er hægt að sjá batamerki á liðinu smátt og smátt og við erum óðum að líkjast gamla góða Real Madrid. Við erum að vinna betur saman um þessar mundir, en við þurfum ekkert að missa okkur þó við höfum unnið einn deildarleik," sagði Zidane, sem er sjálfur að finna sig betur þessa dagana.

"Mér líður betur núna en áður. Ég er í betra formi og er því bara að einbeita mér að því að halda því. Þetta var í fyrsta sinn á ferlinum sem ég skora þrennu og það er ekki slæmt að ná því þegar maður er 34 ára gamall, þó aðalatriðið hafi auðvitað verið að vinna leikinn," sagði Frakkinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×