Erlent Fóðraði svínin með 30 vændiskonum Kanadiskur svínabóndi hefur verið ákærður fyrir að myrða þrjátíu vændiskonur, og fóðra svínin á líkamsleifum þeirra. Talið er mögulegt að hann hafi sextíu og þrjú morð á samviskunni. Það komst upp um hann fyrir algera tilviljun. Erlent 22.1.2007 16:49 Farsímasektir hækkaðar Erlent 22.1.2007 16:31 Blóðbað í Bagdad Erlent 22.1.2007 16:23 Enn einn blaðamaður myrtur í Rússlandi Erlent 22.1.2007 16:12
176 177 178 179 180 181 182 183 184 … 334 ›
Fóðraði svínin með 30 vændiskonum Kanadiskur svínabóndi hefur verið ákærður fyrir að myrða þrjátíu vændiskonur, og fóðra svínin á líkamsleifum þeirra. Talið er mögulegt að hann hafi sextíu og þrjú morð á samviskunni. Það komst upp um hann fyrir algera tilviljun. Erlent 22.1.2007 16:49
Býst við hörðum bardögum við talibana Sendiherra Bandaríkjanna í Afganistan segir að búist sé við hörðum bardögum við Talibana á þessu ári. Ríkisstjórn landsins sé hinsvegar að styrkjast í sessi og því sé hann bjartsýnn um framtíðina. Síðasta ár var hið blóðugasta síðan talibanar voru hraktir frá völdum árið 2001. Erlent 22.1.2007 15:47
Páfi íhugaði afsögn vegna heilsubrests Jóhannes Páll páfi íhugaði alvarlega að segja af sér árið 2000, af heilsufarsástæðum. Hann íhugaði einnig að breyta kirkjulögum þannig að páfar segðu af sér þegar þeir yrðu áttræðir. Erlent 22.1.2007 15:28
Palestínumenn hatast enn Tveim æðstu leiðtogum Palestínumanna tókst ekki að ná samkomulagi um myndun þjóðstjórnar, á fundi sínum í Sýrlandi um helgina. Á þeim fundi voru Mahmoud Abbas, forseti Palestínu og leiðtogi Fatah hreyfingarinnar og Khaled Meshaal, leiðtogi Hamas samtakanna. Erlent 22.1.2007 14:43
Glaðnar yfir Norður-Kóreu Aðalsamningamaður Rússa í málefnum Norður-Kóreu sagði í dag að sex landa viðræður um kjarnorkuáætlun landsins gætu hafist í næsta mánuði. Alexander Losyukov sagði að undirbúningsfundir sem haldnir hafi verið í Berlín hafi aukið bjartsýni manna. Erlent 22.1.2007 14:32
Ný áætlun um friðarferli í Ísrael Varnarmálaráðherra Ísraels hefur lagt fram áætlun í þrem liðum um að koma friðarferlinu við Palestínumenn aftur í gang. Í því felst meðal annars að Mahmoud Abbas, forseti, fái lengri tíma til þess að afvopna öfgahópa, og Ísraelar loki ólöglegum landnemabyggðum á Vesturbakkanum. Erlent 22.1.2007 13:27
Ætla að dæla olíu úr flutningaskipi í dag Björgunarfólk í Devon í Englandi hefur í alla nótt og fram eftir morgni reynt að hreinsa upp varning og brak frá flutningaskipinu Napolí sem var siglt upp í fjöru í gær. Skipið laskaðist töluvert í óveðri í síðustu viku. Erlent 22.1.2007 12:02
Hillary vinsælust meðal demókrata Flestir demókratar í Bandaríkjunum vilja Hillary Clinton sem forsetaefni demókrata á næsta ári samkvæmt skoðanakönnun sem bandaríska blaðið Washington Post birti í gær. Samkvæmt henni vilja 39% flokksmanna að hún hljóti útnefndinguna. Næstir koma öldungadeildarþingmennirnir Barack Obama, með 17%, og John Edwards með 12%. Edwards var varaforsetaefni Johns Kerry í kosningunum 2004. Erlent 22.1.2007 12:05
Serbía: Ólíklegt að þjóðernissinnar komist í ríkisstjórn Forvígismenn flokks þjóðernissinnaðra Serba eiga ekki von á því að þeim verði boðið að mynda ríkisstjórn þótt þeir hafi unnið stórsigur í þingkosningum í gær. Leiðtogi flokksins situr í fangelsi í Haag í Hollandi þar sem rétta á yfir honum fyrir stríðsglæpi. Erlent 22.1.2007 11:56
Asískar hlutabréfavísitölur í methæðum Helstu hlutabréfavísitölur í Asíu náðu methæðum við lokun markaða í dag. Mikillar bjartsýni gætir í Kína fyrir áramótin, sem er fagnað um miðjan febrúar þar í landi. Viðskipti erlent 22.1.2007 10:26
Citigroup kaupir af ABN Amro Bandaríski bankinn Citigroup hefur keypt veðlánaarm hollenska bankans ABN Amro. Tilgangurinn er að auka útlánastarfsemi bankans og gerir Citigroup ráð fyrir að fjölga viðskiptavinum um 1,5 milljónir talsins. Viðskipti erlent 22.1.2007 09:32
Lifði af tveggja daga ísskápsvist Bandarískum hjónum brá heldur betur í brún þegar þau opnuðu ísskáp sinn í gær og sunnudagssteikin kom fljúgandi á móti þeim. Þar var á ferðinni önd sem húsbóndinn hafði skotið tveimur dögum áður. Erlent 21.1.2007 17:25
Ótti um mengunarslys í Devon Bresk yfirvöld óttast mengunarslys við suðvesturströnd Englands eftir að flutningaskipið Napoli strandaði þar. Skipið skemmdist í óveðrinu sem gekk yfir Evrópu fyrir helgi og því var ákveðið að sigla því í strand. Erlent 21.1.2007 17:24
Abbas og Mashaal hittast í dag Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, og Khaled Mashaal, leiðtoga Hamas-samtakanna ætla að hittast í Damaskus í Sýrlandi í dag. Þetta fullyrðir Saeb Erekat, náinn ráðgjafi Abbasar. Erlent 21.1.2007 12:25
Samsteypustjórn líklegust Þingkosningar fara fram í Serbíu í dag, þær fyrstu frá því að leiðir skildu með Serbum og Svartfellingum á síðasta ári. Sex og hálf milljón manna er á kjörskrá og stendur slagurinn á milli flokka sem aðhyllast nánari samband við nágrannalöndin í Evrópu og flokka þjóðernissinna. Erlent 21.1.2007 09:53
Viðurkenndi morðið á Dink Sautján ára atvinnulaus piltur frá borginni Trabzon hefur viðurkennt að hafa skotið tyrkneska blaðamanninn Hrant Dink til bana í Istanbul í fyrradag. Erlent 21.1.2007 09:51
Hlakkar til að mæta Attenborough Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra er óhræddur við herferð breskra stjórnvalda gegn hvalveiðum Íslendinga, en verndarar hennar eru Tony Blair forsætisráðherra Bretlands og sjónvarpsmaðurinn David Attenborough. Hann óttast aftur á móti að aðgerðir Bretanna muni ganga af Alþjóðahvalveiðiráðinu dauðu. Erlent 20.1.2007 18:58
Elsta kona heims látin Elsta kona í heimi, Julie Winnefred Bertrand, andaðist í gær á elliheimili í Montreal í Kanada 115 ára að aldri. Hún fæddist 16. september 1891. Erlent 20.1.2007 10:04
Tilraunirnar vekja ugg Tilraunir Kínverja til að skjóta niður gervihnött með stýriflaug hefur litla ánægju vakið á Vesturlöndum. Gervihnötturinn sem var grandað var gamall veðurathugnarhnöttur en hann var í svipaðri hæð og bandarískir njósnahnettir og því virðist tilrauninni beint gegn þeim. Erlent 20.1.2007 10:01
Stjórn olíunnar í Bagdad Lagafrumvarp sem veitir ríkisstjórninni í Bagdad yfirráð yfir olíulindum Íraks er nánast tilbúið og bíður einungis samþykkis ríkisstjórnar og þings. Þetta er fullyrt í stórblaðinu New York Times í dag. Erlent 20.1.2007 09:59
Netsvikarar stela úr Nordea-bankanum Rússneskum netþrjótum hefur þekkist af stela jafnvirði 72 milljóna íslenskra króna af reikningum viðskiptavina sænska bankans Nordea, einum stærsta banka á Norðurlöndunum. Fjöldi manns hefur verið handtekinn vegna málsins, þar af 100 sem aðilar sem tengjast því í Svíþjóð. Þrjótarnir notuðu hugbúnað, sem afritaði lykilorð þeirra viðskiptavina sem notuðu netbanka Nordea. Viðskipti erlent 19.1.2007 22:34
Leiðtogi Abu Sayyaf fallinn DNA-rannsókn hefur leitt í ljós að Khaddafy Janjalani, leiðtogi filippeysku skæruliðasamtakanna Abu Sayyaf, er látinn. Lík hans fannst á Jolo-eyju á dögunum og er talið að hann hafi fallið í skotbardaga einhvern tímann í fyrrahaust. Erlent 20.1.2007 09:58
Sjálfhjálparhvötin sterkust Engin hvöt er sterkari í dýrum jarðarinnar en að reyna að halda sér á lífi hvað sem það kostar. Þrjú nýleg dæmi af jafnmörgum ferfætlingum sýna okkur það. Erlent 19.1.2007 18:20
Ritstjóri skotinn til bana Talið er að öfgasinnaður þjóðernissinni hafi verið að verki þegar ritstjóri tyrknesks dagblaðs var skotinn til bana fyrir utan skrifstofur blaðsins í Istanbúl í dag. Ritstjórinn var á síðasta ári dæmdur fyrir að sýna tyrknesku þjóðinni vanvirðingu með skrifum sínum um fjöldamorð Tyrkja á Armenum í lok heimsstyrjaldarinnar fyrri. Erlent 19.1.2007 18:18
41 sagður hafa látist í óveðrinu Á fimmta tug manna hafa látið lífi í fárviðri sem geisað hefur í Evrópu undanfarinn sólarhring. Samgöngur í álfunni eru í uppnámi og rafmagnsleysi hefur bitnað á milljónum manna. Íslendingur búsettur í Tékklandi segir að tré hafi rifnað upp með rótum í nágrenni við hann í mesta ofsanum. Erlent 19.1.2007 18:14
Samdráttur hjá Citigroup Bandaríski bankinn Citigroup skilaði rúmlega 5,3 milljarða dala hagnaði á síðasta fjórðungi 2006. Þetta jafngildir 369,7 milljarða króna hagnaði á fjórðungnum sem er 26 prósenta samdráttur á milli ára. Hagnaður bankans á árinu í heild nam jafnvirði 1.660 milljarða króna, sem er 12 prósentum minna en árið 2005. Viðskipti erlent 19.1.2007 15:57
Ekkert fækkað í breskum hersveitum í Írak Yfirmaður breska heraflans í Írak segir að liðsafli Breta í landinu verði óbreyttur að minnsta kosti þetta ár, og vel hugsanlega fram í 2008. Þetta er á skjön við fréttir breskra fjölmiðla um að ætlunin sé að fækka breskum hermönnum um nær 3000 fyrir maílok. Erlent 19.1.2007 15:49