Lög og regla
108 109 110 111 112 113 114 115 116 … 120 ›
Slapp ómeiddur úr bílveltu Fólksbifreið valt í umdæmi Selfosslögreglu laust eftir klukkan sjö í morgun á Biskupstungnabraut á móts við bæinn Torfastaði. Ungur ökumaður var einn í bílnum og slapp hann nánast ómeiddur úr veltunni. Innlent 13.10.2005 14:55
Fullur á stolnum bíl Menn sem unnu við kvikmyndatöku á Klapparstíg í gærmorgun áttu fótum sínum fjör að launa þegar drukkinn maður stal bíl þeirra og ók næstum á þá þegar þeir reyndu að stöðva hann. Skömmu síðar hóf lögreglan eftirför og náði að stöðva bílþjófinn, sem skemmdi bílinn sem hann ók auk tveggja lögreglubíla. Innlent 13.10.2005 14:55
5 mánaða fangelsi fyrir fjársvik Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í morgun liðlega tvítugan karlmann í fimm mánaða fangelsi fyrir fjársvik. Maðurinn var sakfelldur fyrir að svíkja út bensín fyrir tæpar 400 þúsund krónur á bensínstöðvum í Reykjavík. Innlent 13.10.2005 14:55
Lögreglubílar skemmdust í eftirför Kvikmyndatökumenn sem voru að störfum á Klapparstíg klukkan hálfsjö í morgun áttu fótum fjör að launa þegar ölvaður bílþjófur gerði sig líklegan til að aka á þá, á þeirra eigin bíl, þegar þeir ætluðu að stöðva hann. Tveir lögreglubílar skemmdust í eftirför sem hófst í kjölfarið. Innlent 13.10.2005 14:55
Maitsland-bræður dæmdir í fangelsi Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Rúnar Ben Maitsland í fimm ára fangelsi og tvíburabróður hans, Davíð Ben Maitsland, í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir að smygla tuttugu og sjö kílóum af hassi til landsins. Innlent 13.10.2005 14:55
Furðu lostnir bræður áfrýja Tvíburabræðurnir Rúnar Ben og Davíð Ben Maitsland voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdir í fimm ára og fjögurra og hálfs árs fangelsi, fyrir stórfelldan innflutning á hassi. Einn af þremur dómurum í málinu skilaði séráliti, en hann vildi sýkna bræðurna. Þeir ætla báðir að áfrýja dómnum. Innlent 13.10.2005 14:55
Héraðsdómur klofnaði í málinu Rúnar Ben Maitsland var dæmdur í fimm ára fangelsi í dag fyrir innflutning á fíkniefnum. Tvíburabróðir hans, Davíð Ben Maitsland, var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi. Héraðsdómur Reykjavíkur klofnaði í niðurstöðu sinni en einn af þremur dómurum vildi sýkna bræðurna. Innlent 13.10.2005 14:55
Mikið um stúta við stýri Fimm ölvaðir ökumenn voru stöðvaðir í Reykjavík í nótt sem er óvenju mikið í miðri viku. Enginn var þó ofurölvi og allir sinntu stöðvunarmerkjum lögreglu. Þá var einn tekinn ölvaður í Hafnarfirði, annar í Kópavogi og sá þriðji við Kjarnaskóg á Akureyri eftir að hafa ekið þar út af. Innlent 13.10.2005 14:55
Vítisenglar stöðvaðir í Leifsstöð? Átta menn sem taldir eru tengjast vélhjólasamtökunum Vítisenglum voru stöðvaðir í Leifsstöð nú síðdegis. Mennirnir komu með flugi frá Kaupmannahöfn og er jafnvel von á fleiri meintum meðlimum samtakanna til landsins. RÚV greindi frá þessu. Innlent 13.10.2005 14:55
Þrettán vélhjólamenn stöðvaðir Þrettán danskir vélhjólamenn eru í umsjá lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli þessa stundina og svo getur farið að fleiri bætist í hópinn. Að sögn Jóhanns R. Benediktssonar, sýslumanns á Keflavíkurflugvelli, komu níu mannanna með Iceland Express frá Kaupmannahöfn og fjórir aðrir bættust við með vél Icelandair. Innlent 13.10.2005 14:55
Ætlar ekki að áfrýja Magnús Einarsson, sem banaði Sæunni Pálsdóttur, eiginkonu sinni og móður tveggja barna, hefur ákveðið að una gæsluvarðhaldsúrskurði sem kveðinn var upp í Héraðsdómi Reykjaness á mánudag. Innlent 13.10.2005 14:55
Endurskin í Eyjafirði Í vikunni var sérstakur endurskinsmerkjadagur í grunnskólum Akureyrar og Eyjafjarðarsvæðisins. Af því tilefni veittu kennarar börnum fræðslu um notkun endurskinsmerkja. Innlent 13.10.2005 14:55
Vill breytingu á hegningarlögum Atli Gíslason hæstaréttarlögmaður segir sérstakt refsiákvæði um heimilisofbeldi þurfa svo hægt sé að taka á verknaðinum í heild sinni. Hann segir ákvæði hegningarlaga um líkamsmeiðingar ekki duga ein og sér. Innlent 13.10.2005 14:55
Brennuvargur ófundinn Enn er enginn grunaður um að hafa kveikt í atvinnuhúsnæðinu Votmúla á Blönduósi aðfaranótt þriðjudagsins 28. september. Ummerki á vettvangi benda engu að síður til þess að kveikt hafi verið í húsinu, en eldurinn kom upp í skilrúmi milli matvælaverksmiðjunnar Vilkó og pakkhúss kaupfélagsins. Innlent 13.10.2005 14:55
Hnífurinn fannst á vettvangi "Við teljum okkur hafa fundið vopnið," segir Ómar Smári Ármannsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í Reykjavík, um rannsóknina á árás þegar maður var særður lífshættulega aðfaranótt miðvikudags. Rúmlega fertugur maður sem grunaður er um verknaðinn var í fyrradag úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald. Innlent 13.10.2005 14:55
Stálu tveimur tonnum af kjöti Tveimur tonnum af nýsjálensku nautakjöti og 30 til 40 kílóum af kanadískum humri hefur verið stolið úr vörugeymslu í Kópavogi að undanförnu. Tilkynnt var um þjófnaðinn í fyrradag en ekki liggur nákvæmlega fyrir hvenær kjötinu var stolið. Innlent 13.10.2005 14:55
Gæsluvarðhalds krafist Lögreglan í Reykjavík fer í dag fram á gæsluvarðhald yfir manninum sem grunaður er um að hafa stungið tæplega fertugan karlmanna á hol í húsi við Hverfisgötu í nótt. Innlent 13.10.2005 14:54
Stakk mann á hol og iðrin sáust Maður sem grunaður er um að stinga mann á fertugsaldri á hol í fyrrinótt þannig að hann særðist lífshættulega var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald til 17. nóvember næstkomandi. Þá var honum gert að sæta geðrannsókn. Innlent 13.10.2005 14:54
Vettvangsrannsókn að ljúka Hugsanlega verða send sýni utan til rannsóknar vegna manndrápsins í Hamraborg aðfaranótt mánudags að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar yfirlögregluþjóns í Kópavogi. Magnús Einarsson sem varð Sæunni Pálsdóttur, eiginkonu sinni og móður tveggja barna þeirra, að bana hefur verið yfirheyrður einu sinni. Innlent 13.10.2005 14:54
Lögregla óskar vitna Þeir sem urðu vitni að árekstri á gatnamótum Listabrautar og Kringlumýrarbrautar um klukkan hálf ellefu á mánudagskvöld eru beðnir um að gefa sig fram við lögreglu. Innlent 13.10.2005 14:54
Rannsókn á láti Sri lokið Lögreglan í Reykjavík lauk í dag rannsókn á láti Sri Rhamawati sem myrt var í júlí síðastliðnum. Barnsfaðir hennar og fyrrverandi sambýlismaður, Hákon Eydal, sem hefur játað að hafa orðið henni að bana og komið líkinu fyrir í gjótu í hrauninu sunnan við Hafnarfjörð, var í dag úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. Innlent 13.10.2005 14:54
Andlegur miski ráði refsingu Gunnleifur Kjartansson, hjá lögreglunni í Reykjavík, segir að það þurfi að koma á fót svipaðri aðstöðu fyrir þolendur heimilisofbeldis og Neyðarmóttaka kynferðisbrota sinnir nú. Innlent 13.10.2005 14:54
Héraðsdómur fjallar um kröfuna Héraðsdómur Reykjavíkur er nú að fjalla um kröfu lögreglunnar í Reykjavík um að karlmaður verði úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald vegna hnífstungumáls í húsi við Hverfisgötu síðustu nótt. Fórnarlambið fannst í nótt á Laugavegi, nær dauða en lífi. Innlent 13.10.2005 14:54
Áfram í gæsluvarðhaldi Hákon Eydal, banamaður Sri Rahmawati, var úrskurðaður í Héraðsdómi Reykjavíkur til að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi til tólfta janúar næstkomandi. Innlent 13.10.2005 14:54
Var á milli heims og helju Tæplega fertugur maður var um tíma á milli heims og helju á slysadeild Landspítalans eftir að hann var stunginn á hol í heimahúsi í miðborginni í nótt. Fólk sem átti leið um Laugaveginn um klukkan tvö í nótt fann manninn liggjandi á götunni, nær meðvitundarlausan, með svo mikinn og djúpan skurð á kviði að hluti innyfla lá úti. Innlent 13.10.2005 14:54
Gagnrýnir dóminn harðlega Jafnréttisnefnd Reykjavíkur gagnrýnir harðlega nýgenginn dóm Héraðsdóms Reykjaness í máli þar sem refsingu yfir karlmanni í líkamsárásarmáli gegn konu hans var frestað, þar sem konan hefði átt sök á ofbeldinu. Í ályktun frá jafnréttisnefndinni segir að að látið sé að sök konunnar liggja í dómnum þar sem hún hafi reitt mann sinn til reiði. Innlent 13.10.2005 14:54
Tvö ár í fangelsi fyrir bankarán Bryngeir Sigurðsson var í gær dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar fyrir að ræna Landsbanka Íslands við Gullinbrú í Reykjavík vopnaður öxi sem hann ógnaði gjaldkera og braut glerskilrúm með. Frá refsingunni dregst sá tími sem hann hefur verið í gæsluvarðhaldi. Innlent 13.10.2005 14:54
Andlát á Kópaskeri í rannsókn Aldraður maður lést í bílslysi á Kópaskeri laust fyrir hádegi í gær. Málið er í rannsókn lögreglunnar á Húsavík þar sem ekki er ljóst hvort maðurinn hafi verið látinn áður en óhappið átti sér stað. Innlent 13.10.2005 14:54
Maður stunginn með hnífi í nótt Karlmaður er hættulega særður eftir hnífsstungu á Laugavegi í nótt. Lögreglu barst tilkynning um manninn upp úr klukkan tvö í nótt og var hann rænulítill þegar að var komið. Maðurinn var fluttur á slysadeild og gekkst undir aðgerð í nótt. Líðan han ser sögð eftir atvikum. Meintur árásarmaður var handtekinn skömmu síðar og er hann í haldi lögreglu. Atvik eru óljós en meintur árásarmaður verður yfirheyrður í dag. Innlent 13.10.2005 14:54
Eldri hjón létust í árekstri Niðurstaða dánardómstjóra í Stafford-héraði í Bretlandi er sú að lát eldri hjóna sem lentu í árekstri við Guðjón Þórðarson knattspyrnuþjálfara 10. apríl hafi verið af slysförum. Guðjón var ekki á nokkurn hátt sagður valdur að slysinu í úrskurðinum sem kom nú í byrjun mánaðarins. Innlent 13.10.2005 14:54