Lög og regla
113 114 115 116 117 118 119 120 … 120 ›
Þarf að ákæra á ný Hæstiréttur vísaði líkamsárásarmáli frá héraðsdómi þar sem talið var að ákæran í málinu væri ekki í samræmi við þau gögn sem lágu fyrir þegar hún var gefin út. Þarf því að hefja málsmeðferð að nýju með nýrri ákæru. Innlent 13.10.2005 14:47
Stálu fjölda DVD mynda Brotist var inn í Bónusvideo við Geislagötu á Akureyri í fyrrinótt og þaðan stolið fjölda dvd mynda auk einhverra smámuna. Innlent 13.10.2005 14:47
Barði annan með bjórflösku Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um sex mánaða skilorðsbundið fangelsi yfir manni sem sló annan mann með glerflösku í höfuðið. Innlent 13.10.2005 14:47
Ákærður fyrir heimilisofbeldi Maður hefur verið ákærður af ríkissaksóknara fyrir að hafa beitt sambýliskonu sína miklu ofbeldi í þremur líkamsárásum á hana en hún hlaut varanlega áverka vegna einnar árásarinnar. Innlent 13.10.2005 14:47
Handtekinn tvær nætur í röð Lögreglumenn handtóku í nótt tæplega tvítugan mann á vettvangi þar sem hann hafði brotist inn í verslunarmiðstöð í Breiðholti. Það væri vart í frásögu færandi ef sami maðurinn hefði ekki líka verið handtekinn við innbrot á sama stað og um svipað leyti í fyrrinótt. Innlent 13.10.2005 14:47
Bílar skullu saman í Garði Minnstu munaði að slys hlytist af í gærkvöldi þegar ölvaður ökumaður ók þvers og kruss um veginn á leið heim til sín suður í Garði. Þegar bíll kom á móti honum tókst honum ekki að halda sig á sínum vegarhelmingi þannig að hliðar bílanna skullu saman og speglar og hliðarrúður brotnuðu. Innlent 13.10.2005 14:47
Heimasíða með nöfnum dópsala Maður í Breiðholti hefur sett upp heimasíðu þar sem hann nafngreinir tuttugu og fimm menn og heldur því fram að þeir séu viðriðnir eiturlyfjasölu. Maðurinn sem stendur á bak við síðuna segir handrukkara hafa rænt syni hans og upp úr því hafi hann farið að safna sér upplýsinga um eiturlyfjasala. Innlent 13.10.2005 14:47
Sjöundi maðurinn í gæsluvarðhald Karlmaður sem var handtekinn í Reykjavík í fyrradag vegna rannsóknar á smygli mikils magns fíkniefna með Dettifossi var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald til 25. október næstkomandi. Hann er sjöundi maðurinn sem er handtekinn og dæmdur í gæsluvarðhald vegna málsins. Tveimur þeirra hefur verið sleppt. Innlent 13.10.2005 14:47
121 milljón í sekt Örn Garðarsson fyrrverandi framkvæmdastjóri og stjórnarformaður Brasserie Borgar var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að greiða rúmlega 121 milljón króna í sekt fyrir rúmlega sextíu milljóna króna skattsvik. Innlent 13.10.2005 14:47
Sögð hafa flutt 14 kíló af hassi 37 ára kona er ákærð af ríkissaksóknara fyrir innflutning á tæpleg fjórtán kílóum af hassi. 25 ára gamall maður er ákærður fyrir að hafa staðið að, ásamt konunni, að innflutningi á tæpum níu kílóum af hassinu. Hassið var flutt til landsins með tveimur fraktsendingum, bæði með skipi og flugi, í febrúar síðastliðinn. Innlent 13.10.2005 14:47
Gruna að ein byssan sé illa fengin Fjöldi vopna fundust í þremur húsleitum á Hellissandi um síðustu helgi. Leitarheimild var fenginn eftir að par, á fertugs og fimmtugsaldri, var handtekið grunað um fíkniefnamisferli. Parið hafi húsin, þrjú sem leitað var í, til umráða. Innlent 13.10.2005 14:47
Hótaði lífláti Fertugur maður var dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir hótanir gegn dóttur sambýliskonu sinnar og kærasta hennar. Innlent 13.10.2005 14:46
Skaðabætur fyrir símhleranir Íslenska ríkinu var gert að greiða tveimur mönnum, fimmtíu þúsund krónur hvorum, fyrir símhleranir lögreglunnar á Blönduósi, samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. Mennirnir voru búsettir á sveitabæ í Húnavatnssýslu og grunaði lögregluna að kannabisræktun færi fram á bænum. Mennirnir voru ekki viðriðnir ræktun kannabisplantna. Innlent 13.10.2005 14:46
Óvíst um ákæru Ekki hefur verið ákveðið hvort máli manns sem skaut um tíu skotum á tvö hús á Reykhólum um verslunarmannahelgina ljúki með sektum eða ákæru, að sögn Þórólfs Halldórssonar, sýslumanns á Patreksfirði. Innlent 13.10.2005 14:46
Lögreglan finnur ekki eigendurna Tuttugu og þriggja ára Lithái, var í Héraðsdómi Reykjaness, dæmdur í fjórtán mánaða fangelsi, fyrir innflutning á rúmum 297 grömmum af kókaíni, í lok ágúst. Hann ákvað að una dómnum eftir ráðlegginum verjanda síns, Guðrúnar Sesselju Arnardóttur. Sækjandinn lagði til fimmtán mánaða fangelsi. Ekkert er vitað um vitorðsmenn Litháans. Innlent 13.10.2005 14:46
Fjögur fíkniefnamál í Hafnarfirði Lögreglan í Hafnarfirði kom upp um fjögur fíkniefnamál um helgina. Á föstudagskvöldið lagði hún hald á fimmtíu grömm af meintu amfetamíni eftir leit í bifreið og í framhaldi af því í íbúð manns. Innlent 13.10.2005 14:46
Konan á batavegi Ekki er vitað hvað olli því bílslysi á Þjórsárdalsvegi að morgni sunnudags en lögreglan á Selfossi og Rannsóknarnefnd umferðarslysa rannsakar málið. Ljóst er að bílnum var ekið út á hægri vegaröxl og svo aftur inn á veginn þar sem hann valt. Talið er að hann hafi farið fleiri en eina veltu. Innlent 13.10.2005 14:46
Skilorð fyrir líkamsárás Nítján ára piltur var dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands í tveggja mánaða fangelsi skilorðsbundið, fyrir fíkniefnabrot, eignaspjöll og líkamsárás. Refsingu annars, sem einnig var ákærður fyrir innbrot og eignaspjöll, var frestað og fellur hún niður haldi hann skilorð í tvö ár. Innlent 13.10.2005 14:46
Tveir látnir eftir bílveltu Tveir menn létust og fimm slösuðust í umferðarslysi í Þjórsárdal um klukkan ellefu í morgun. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Selfossi varð slysið með þeim hætti að jeppabifreið valt á þjóðveginum milli Skriðufells og Búrfellsvirkjunar. Innlent 13.10.2005 14:46
Tveir létust í bílveltu Tveir menn biðu bana og fimm slösuðust þegar jeppi valt á Þjórsárdalsvegi rétt ofan við afleggjarann að Skriðufelli í Skeiða- og Gnúpverjahreppi í gærmorgun. Sjö manns voru í bílnum, tveir eru taldir hafa látist samstundis og fimm voru sendir á sjúkrahús í Reykjavík. Innlent 13.10.2005 14:46
Kraftaverk að lifa bílveltu af Í gær lenti Birta Jónsdóttir, 22 ára heimavinnandi húsmóðir, í bílslysi í nágrenni Selfoss. Hún slapp á ótrúlegan hátt þegar bíll hennar fór nokkrar veltur og endaði ofan í skurði. Hvolpurinn Lísa stökk í fang á Birtu og sleikti hana í framan svo Birta missti stjórn á bílnum. Birta þakkar guði fyrir að hafa komist lífs af. Faðir hennar segir það kraftaverk. Innlent 13.10.2005 14:46
Innbrot á Selfossi Brotist var inn í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi í nótt og stolið þaðan skjávarpa auk þess sem nokkrar skemmdir voru unnar á húsakynnum. Þjófurinn eða þjófarnir brutust inn í nýtt íþróttahús skólans sem tekið var í notkun í haust. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins. Innlent 13.10.2005 14:46
Rólegt í miðborginni um helgina Rólegt var í Reykjavíkurborg aðfaranótt sunnudags. Að sögn lögreglu voru afskaplega fáir á ferli í miðbænum og skemmtanahald með minnsta móti. Mikil rigning var og vont veður og gæti það hafa haft áhrif á lítinn mannfjölda.<b><font face="Helv" color="#008080"></font></b> Innlent 13.10.2005 14:46
Fann 60 grömm af amfetamíni Lögreglan í Hafnarfirði handtók tvo menn í fyrrinótt vegna fíkniefnamáls. Bíll mannanna hafði verið stöðvaður vegna gruns um ölvunarakstur en við leit í bílnum fannst amfetamín. Við húsleit í kjölfarið á heimili annars mannsins fannst meira af fíkniefnum. Innlent 13.10.2005 14:46
Alvarlegt bílslys í Þjórsárdal Alvarlegt bílslys varð í Þjórsárdal á veginum skammt frá afleggjaranum að Skriðufelli fyrir liðlega klukkustund. Þá valt sjö manna jeppi og segir lögregla á Selfossi að hann hafi verið fullur af erlendum ferðamönnum. Fyrstu upplýsingar lögreglu eru að þrír eða fjórir mannanna séu mikið slasaðir. Innlent 13.10.2005 14:46
Enn í stofufangelsi í Texas Bandarísk stjórnvöld hafa enn ekki svarað beiðni íslenskra stjórnvalda um að tvítugur Íslendingur, sem haldið hefur verið föngnum í Texas í sjö ár, fáist framseldur til Íslands. Hann var 13 ára dæmdur fyrir kynferðisbrot sem hann er sagður hafa framið þegar hann var 11 ára. Innlent 13.10.2005 14:46
Bílvelta við Ljósafoss Fólksbifreið valt við Ljósafoss klukkan hálfþrjú í dag. Ung kona var þar ein á ferð og virðist hún hafa misst stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að hann valt og hafnaði úti í skurði. Innlent 13.10.2005 14:46
Skattrannsóknarstjóri þarf meira Skattrannsóknarstjóri hefur farið fram á viðbótarfjárheimild í fjáraukalögum fyrir þetta ár upp á fjórtán milljónir króna. Þessarri fjárhæð er ætlað að mæta kostnaði vegna stórra mála sem eru til meðferðar hjá embættinu. Innlent 13.10.2005 14:46
77 kílómetrum yfir hámarkshraða Tveir ungir piltar voru teknir fyrir hraðakstur innanbæjar á Egilsstöðum í nótt. Annar þeirra mældist á 100 kílómetra hraða en hinn á 127 kílómetra hraða á stað þar sem leyfður er 50 kílómetra hámarkshraði, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Egilsstöðum. Innlent 13.10.2005 14:46
Dauðsfall við Hólmavík Tilkynnt var um mannshvarf í umdæmi lögreglunnar á Hólmavík seinni partinn á laugardaginn. Leitað var að manninum í sveitinni við Hólmavík í dágóða stund áður en hann fannst látinn. Innlent 13.10.2005 14:46