Innlent

Fréttamynd

Játar barsmíðar í Öskjuhlíðinni

Ungur piltur hefur játað að hafa ráðist á karlmann á sjötugsaldri í Öskjuhlíðinni síðastliðið föstudagskvöld. Pilturinn og þrír félagar hans veittust að manninum á Flugvallarvegi eftir að hafa komið upp að bíl mannsins og spurt hvort hann væri samkynhneigður.

Innlent
Fréttamynd

Hjartastopp í lögreglubíl

Karlmaður gekk berserksgang á Radisson SAS Hótel Sögu í Reykjavík á laugardagskvöldið. Maðurinn, sem var gestur á hótelinu, var með ólæti, truflaði hótelgesti og kastaði til húsgögnum.

Innlent
Fréttamynd

Fundu fíkniefni í söluumbúðum

Lögreglan í Kópavogi handtók tæplega tvítugan mann aðfaranótt föstudags. Við leit á manninum fundust fíkniefni í söluumbúðum. Í kjölfarið var gerð húsleit á heimili mannsins og fannst töluvert magn fíkniefna til viðbótar. Við yfirheyrslur viðurkenndi maðurinn að hafa ætlað að selja efnin. Honum var sleppt að yfirheyrslu lokinni.

Innlent
Fréttamynd

Ellefu manns handteknir

Lögreglan á Selfossi handtók ellefu manns í Árneshverfi á sunnudag og lagði hald á lítilræði af fíkniefnum.

Innlent
Fréttamynd

Ekki talinn í lífshættu

Líðan mannsins sem slasaðist á Kárahnjúkavirkjun á laugardagskvöld er stöðug að sögn svæfingalæknis á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi.

Innlent
Fréttamynd

Óformlegar viðræður í bígerð

Óformlegar viðræður um varnarsamstarf við nágrannaríkin munu fara fram á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins, sem hefst á morgun. Þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir fagnaðarefni að Norðmenn hafi áhuga á að liðsinna Íslendingum en gagnrýnir ríkisstjórnina um leið fyrir framtaksleysi.

Innlent
Fréttamynd

Latibær hreppti BAFTA-verðlaunin

Sjónvarpsþættirnir um Latabæ hlutu í gærkvöldi fyrstu verðlaun bresku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, BAFTA, í flokki alþjóðlegs barnaefnis.

Innlent
Fréttamynd

Skautasvell á Ingólfstorgi

Skautasvell verður á Ingólfstorgi í desember og er nú unnið hörðum höndum að gerð þess. Tryggingamiðstöðin stendur að svellinu í tilefni hálfrar aldar afmælis.

Innlent
Fréttamynd

Jón H. Snorrason hættir brátt í starfi

Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra, hættir brátt hjá embættinu. Hann tekur við starfi aðstoðarlögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins, samkvæmt heimildum fréttastofu. Jón mætti í héraðsdóm dag fyrir hönd ríkislögreglustjóra þar sem þingfest var kæra Baugsmanna þess efnis að rannsókn embættisins á skattamálum þeirra væri ólögmæt.

Innlent
Fréttamynd

Bati á fasteignamarkaði

Greiningardeild Landsbankans segir auknar vísbendingar komið fram á síðustu vikum um að fasteignamarkaðurinn sé að taka við sér eftir samdrátt lengst af á þessu ári. Vísbendingarnar eru þó fremur veikar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Utanríkisráðherra á ferð og flugi

Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra heldur í dag til Lettlands þar sem hún tekur þátt í leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins, sem hefst á þriðjudaginn. Ráðherra heimsækir einnig íslensk fyrirtæki í Lettlandi. Að leiðtogafundi loknum fer utanríkisráðherra til Litháen og á meðal annars fund með utanríkisráðherra landsins, Petras Vaitiekunas, og opnar nýja ræðisskrifstofu í Vilníus.

Innlent
Fréttamynd

Sprenging í skíðaferðum

Hátt í fjögur þúsund Íslendingar fljúga suður á bóginn yfir jólin og hafa líklega aldrei verið fleiri. Þá hefur sprenging orðið í sölu skíðaferða.

Innlent
Fréttamynd

Tveggja mánaða fangelsi fyrir brot gegn barni og vörslu barnakláms

Karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu 300 þúsund króna í miskabætur fyrir að hafa sært blygðunarsemi ungrar stúlku með því að sýna henni tvær klámmyndir í tölvu sinni, þar á meðal aðra sem sýndi barn á kynferðislegan og klámfenginn hátt, og fyrir að hafa rúmlega 40 ljósmyndir og 21 hreyfimynd í tölvu sinni með barnaklámi.

Innlent
Fréttamynd

Peningafalsari á ferð í borginni

Peningafalsari var á ferðinnni um helgina því tveimur fölsuðum fimm þúsund króna seðlum var framvísað í verslunum. Báðir höfðu þeir verið ljósritaðir og báru þeir sama númer. Fram kemur á vef lögreglunnar að af því megi ráða að þeir komi frá sama aðila.

Innlent
Fréttamynd

30 þúsund króna sekt fyrir ólöglegar veiðar

Karlmaður var í dag í Héraðsdómi Norðurlands eystra dæmdur til greiðslu 30 þúsund króna fyrir að hafa brotið lög um lax- og silungsveiði með því að hafa í vor veitt í tvö silungsnet í sjó sunnan við bæ sinn í Hörgárbyggð en bannað er að veiða göngusilung í sjó frá 15. maí til 15. ágúst ár hvert

Innlent
Fréttamynd

65 umferðaróhöpp í Reykjavík um helgina

Sextíu og fimm umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar í Reykjavík um helgina. Flest þeirra voru minniháttar en í aðeins einu tilviki þurfti að flytja slasaðan með sjúkrabíl. Fram kemur á vef lögreglunnar að í átta tilfellum hafi menn stungið af frá vettvangi óhappsins.

Innlent
Fréttamynd

Ný flugslysaáætlun fyrir Keflavíkurflugvöll undirrituð

Forsvarsmenn almannavarna á Keflavíkurflugvelli og ríkislögreglustjóri undirrituðu í dag nýja og endurskoðaða flugslysaáætlun fyrir Keflavíkurflugvöll. Áætlunin segir fyrir um skipulag og stjórnun aðgerða í kjölfar flugslyss á Keflavíkurflugvelli eða annars staðar á Reykjanesskaga.

Innlent
Fréttamynd

Fékk hjartastopp á leið á lögreglustöð

Karlmaður fékk hjartastopp og hætti að anda þegar verið að flytja hann á lögreglustöð eftir handtöku um helgina. Lögreglan var kölluð að hóteli í borginni aðfaranótt sunnudags en þar hafði karlmaðurinn gengið berserksgang og meðal annars kastað til húsgögnum og ráðist inn á herbergi sofandi hótelgesta.

Innlent
Fréttamynd

Kristján segir það mistök að hafa stutt innrásina í Írak

Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri og sigurvegari í prófkjöri sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi um helgina, segir að það hafi verið mistök hjá íslenskum stjórnvöldum að styðja innrásina í Írak árið 2003 og telur að Sjálfstæðisflokkurinn eigi líkt og Framsóknarflokkurinn að fara yfir ákvörðunartöku í aðdraganda málsins. Þá segist hann telja eðlilegt að sjálfstæðismenn í Norðausturkjördæmi fái ráðherrasæti fari svo að Sjálfstæðisflokkurinn sitji áfram í ríkisstjórn að loknum þingkosningum í vor.

Innlent
Fréttamynd

Ekki á svifdreka heldur með dráttarsegl

Maðurinn sem slasaðist í Svignaskarði í Borgarfirði í gær var ekki á svifdreka heldur með nokkurs konar dráttarsegl, sem meðal annars skíðamenn og sjóskíðamenn nota til þess að draga sig áfram í góðum byr. Þetta kemur fram á fréttavefnum Skessuhorni.

Innlent
Fréttamynd

Útafakstur við Selfoss vatt upp á sig

Lögreglan á Selfossi handtók fjóra, yfirheyrði sex á staðnum, og lagði hald á nokkuð af fíkniefnum í þremur húsum í Árneshverfinu í uppsveitum Árnessýslu í gær.

Innlent
Fréttamynd

Svifdrekamaður slasaðist alvarlega í Borgarfirði

Svifdrekamaður liggur á gjörgæsludeild Landspítalans eftir slys sem varð við Svignaskarð í Borgarfirði í gær. Eftir því sem fram kemur á vef Skessuhorns brotlenti svifdreki mannsins eftir að vindhviða feykti honum á skurðbakka af miklu afli og slasaðist maðurinn illa.

Innlent
Fréttamynd

Vanskil aukast á þriðja ársfjórðungi

Vanskilahlutfall af útlánum innlánsstofnana jókst heldur á þriðja ársfjórðungi ársins eftir að hafa verið mjög lágt undanfarin misseri, að því er fram kemur á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins. Í heildina námu vanskil 0,7 prósentum af útlánum, en hlutur einstaklinga var heldur hærri en hlutur fyrirtækja.

Innlent
Fréttamynd

Halda óbreyttum réttindum í tvö ár

Starfsmenn Ríkisútvarpsins munu halda lífeyrisréttindum sínum og öðrum réttindum opinberra starfsmanna í tvö ár eftir að stofnunin verður gerð að hlutafélagi, samkvæmt hugmyndum sem ræddar eru í menntamálanefnd Alþingis. Össur Skarphéðinsson, varamaður í nefndinni, segir að eftir það verði réttindi starfsmannanna nánast öll komin undir útvarpsstjóra.

Innlent