Innlent

Fréttamynd

Lamdi mann

Karlmaður á sextugsaldri var á þriðjudag ákærður fyrir líkamsárás í Héraðsdómi Reykjavíkur. Manninum er gefið að sök að hafa slegið annan mann margsinnis með hnefanum á bifreiðastæði Kjörgarðs við Hverfisgötu í júní á síðasta ári með þeim afleiðingum að fórnarlambið særðist á höku, brjóstvöðum og bringubeini.

Innlent
Fréttamynd

Staða kvenna hér fjórða best

Ísland er í fjórða sæti á lista Alþjóðaefnahagsráðsins um jafnrétti kynjanna eftir löndum. Öll fimm Norðurlöndin raða sér á topp tíu og er Svíþjóð efst á lista og því jafnrétti mest þar af öllum þeim 115 löndum sem könnunin náði til.

Innlent
Fréttamynd

Tíu milljarða aukning útgjalda

Í breytingartillögum fjárlaganefndar að fjárlagafrumvarpi er lagt til að tekjuafgangur ríkissjóðs minnki um sex og hálfan milljarð frá því sem gert var ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi 2007 sem lagt var fyrir Alþingi í október. Hagfræðingum atvinnulífs og banka líst ekki á blikuna.

Innlent
Fréttamynd

Skaðaði sjón fórnarlambs

Maður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir stórfellda líkamsárás í október á síðasta ári. Það var við veitingastaðinn Hlöllabáta í Reykjavík sem maðurinn veittist að öðrum manni og sló hann hnefahögg í höfuðið með þeim afleiðingum að sá síðarnefndi hlaut mar á sjónhimnu, glerhlaupslos og varanlega skert sjónsvið á hægra auga.

Innlent
Fréttamynd

Sjö milljarða til lífeyrisþega

Stjórnarandstöðuflokkarnir kynntu í gær sameiginlega breytingartillögu við fjárlagafrumvarpið. Snýr hún að bættum kjörum lífeyrisþega og er í sex liðum.

Innlent
Fréttamynd

Ég er maður eins og þeir

Nú er verið að leggja lokahönd á heimildarmyndina Tímamót. Hún fjallar um þrjá karlmenn um fimmtugt og þau tímamót í lífi þeirra þegar þeir flytja úr vistheimili í Mosfellsdal í eigin íbúðir. Guðmundur Erlingsson er leikstjóri myndarinnar og þetta er hans fyrsta mynd í fullri lengd.

Innlent
Fréttamynd

Biðtími fatlaðra barna mun styttast

Fyrirhugaðar skipulagsbreytingar Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins gera ráð fyrir að fötluð börn þurfi aðeins að bíða í nokkrar vikur eftir þjónustu en undanfarin ár hefur biðtíminn verið frá sex mánuðum til tæpra þriggja ára.

Innlent
Fréttamynd

Boða þögula hópstöðu á Lækjartorgi

Anna Kristine Magnúsdóttir og Kristín Ingvadóttir afhentu í vikunni Bjarna Benediktssyni, formanni allsherjarnefndar Alþingis, áskorun um að setja í nefndarálit sitt hvatningu til dómstóla landsins um að nýta þann refsiramma sem á að gilda í nauðgunarmálum.

Innlent
Fréttamynd

Þemavika í Hjallaskóla

Í síðustu viku voru haldnir sérstakir þemadagar í Hjallaskóla í Kópavogi og unnu nemendur skólans alla þá viku að margvíslegum verkefnum tengdum menningu í aldursblönduðum hópum.

Innlent
Fréttamynd

Launin hækka hjá hinu opinbera

Launavísitalan var 300,4 stig í október og hafði hækkað um 0,5 prósent frá því í september, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Á sama tíma í fyrra hafði hún hækkað um 0,3 prósent. Launavísitalan hefur hækkað um ellefu prósent síðustu tólf mánuði.

Innlent
Fréttamynd

Þá var kátt í Kauphöllinni

Íslandsdagur var haldinn í Kauphöllinni í New York í fyrsta skipti á þriðjudaginn. Geir H. Haarde forsætisráðherra hringdi út viðskiptin í kauphöllinni síðdegis.

Innlent
Fréttamynd

Gerviliðaaðgerðir til skoðunar

Heilbrigðisráðherra ætlar að skoða gerviliðaaðgerðir sérstaklega fáist fjármagn til biðlistaaðgerða. Landspítalinn getur ekki framkvæmt aðgerðir vegna sjúklinga sem bíða eftir framhaldsúrræði.

Innlent
Fréttamynd

Slagsmál í flugvél

Slagsmál urðu í flugvél Flugfélags Íslands á leið frá Egilsstöðum í kvöld. Átökin hófust þegar að vélin var í aðflugi. Var árásarmaðurinn tekinn höndum þegar vélin lenti og er maðurinn á slysadeild þar sem hlúð er að sárum hans. Lögreglan lítur málið mjög alvarlegum augum og mun hún yfirheyra árásarmanninn í fyrramálið.

Innlent
Fréttamynd

Reyndi að koma syni sínum ólöglega úr landi

Maður var handtekinn á Akureyrarflugvelli í morgun þegar hann reyndi að koma nokkurra mánaða syni sínum ólöglega úr landi. Feðganna hafði verið leitað dögum saman eftir að maðurinn rændi barninu.

Innlent
Fréttamynd

Fimm ára fangelsi

Rúmlega tvítugur maður var, í Hérðasdómi Reykjaness, dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps og fleiri brot. Maðurinn stakk annann mann fyrir utan íbúðarhús í Hafnarfirði, fjórtanda maí, og hlaut sá lífshættulega áverka. Árásarmaðurinn kom óboðinn að húsinu en þar stóð yfir afmælisveisla þess sem var stunginn. Með árásarmanninum var átján ára piltur sá fékk tólf mánaða skilorðsbundinn dóm. Afleiðingar af völdum hnífsstungunnar eru varanlegar. Ástæður árásarinnar eru óljósar.

Innlent
Fréttamynd

Skipulagsbreytingum laumað inn bakdyramegin

Skipulagsbreytingum, sem gætu allt að tvöfaldað íbúafjölda Kársness, er lætt inn bakdyramegin án þess að kynna framtíðarskipulag svæðisins fyrir íbúum í vesturbæ Kópavogs, segir oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi.

Innlent
Fréttamynd

Forsætisráðherra í Íslandi í dag

Geir H. Haarde mun verða gestur í Íslandi í dag að loknum kvöldfréttum. Þar mun Geir meðal annars ræða um frammistöðu Árna Johnsen í nýafstöðnu prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, ástandið í Írak og hvaða mál ríkisstjórnin leggur áherslu á að klára áður en kjörtímabilinu lýkur.

Innlent
Fréttamynd

Hæstiréttur sýknar 3X af kröfu Style ehf.

Hæstiréttur sýknaði í dag fyrirtækið 3X af kröfum fyrirtækisins Style ehf. og vísaði um leið frá kröfu þess á staðfestingu á lögbanni vegna sölu þess fyrrnefnda á tiltekinni vél.

Innlent
Fréttamynd

Umhverfissamtök eru æf út í Íslendinga vegna togveiða

Íslendingar eru sagðir hafa unnið vondan sigur hjá Sameinuðu þjóðunum með því að koma í veg fyrir að botnvörpuveiðar verði bannaðar á alþjóðlegum hafsvæðum. Sjávarútvegsráðherra segir að margar þjóðir standi með Íslendingum.

Innlent
Fréttamynd

Lögreglan á Blönduósi fær Umferðarljósið

Lögreglan á Blönduósi fékk í dag verðlaunagripinn Umferðarljósið fyrir að hafa unnið með árangursríkum og eftirtektarverðum hætti að umferðaröryggismálum. Verðlaunin voru afhent á Umferðarþingi sem nú er haldið á Hótel Loftleiðum.

Innlent
Fréttamynd

Fékk þrjú og hálft ár fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum

Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag þriggja og hálfs árs fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir karlmanni fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum. Önnur stúlknanna var stjúpdóttir mannsins en hin vinkona hennar. Stjúpdóttir mannsins var aðeins sex ára gömul þegar brotin hófust.

Innlent
Fréttamynd

Virðisaukaskattur á geisladiska lækkaður í sjö prósent

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í fyrradag, að tillögu Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra, að leggja til við alþingi að virðisaukaskattur á geisladiska verði lækkaður í 7 prósent. Mun lækkunin taka gildi þann 1. mars 2007 um leið og aðrar boðaðar breytingar taka gildi á virðisaukaskattslögunum.

Innlent
Fréttamynd

Sjö ára fangelsi fyrir amfetamínsmygl

Tveir Litháar voru í dag dæmdir í sjö ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að reyna að smygla tæpum tólf kílóum af amfetamíni til landsins með Norrænu í sumar.

Innlent
Fréttamynd

Straumur-Burðarás gefur út skuldabréf

Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hefur gefið út 200 milljóna evra skuldabréf á alþjóðlegum lánamarkaði. Í tilkynningu frá bankanum kemur fram að lánveitingin muni styrkja þátttöku bankans á alþjóðlegum sambankalánamarkaði og sé mikilvægur áfangi í að auka enn frekar hlutdeild vaxtaberandi eigna og vaxtatekna bankans.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Gripinn þrisvar fyrir þjófnað í gær

Karlmaður á fertugsaldri var tekinn þrisvar fyrir þjófnað í verslunum í borginni í gær. Fram kemur á vef lögreglunnar að maðurinn hafi fyrst farið ránshendi í verslunarmiðstöð og stolið varningi frá tveimur fyrirtækjum. Hann náðist hins vegar og var fluttur á lögreglustöð.

Innlent