Innlent

Fréttamynd

Gistinóttum fjölgar um nærri fjórðung í september

Gistinóttum á hótelum í september fjölgaði um tæpan fjórðung miðað við sama mánuð í fyrra. Þetta sýna nýjar tölur frá Hagstofu Íslands. Gistinæturnar voru nærri 115 þúsund í september síðastliðnum en tæplega 94 þúsund í sama mánuði í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Svanur felldi hug til plastbáts

Svartur svanur í Þýskalandi hefur fellt hug til hjólabáts úr plasti sem er í laginu eins og svanur. Elskendurnir hafa nú verið færðir í dýragarð og munu eyða vetrinum þar saman.

Erlent
Fréttamynd

Hvalveiðar eru eins og bílasala

Ein virtasta fréttastofa Evrópu, DPA í Þýskalandi, hefur eftir Stefáni Ásmundssyni, skrifstofustjóra sjávarútvegsráðuneytisins, að Íslendingar gætu þurft að endurskoða afstöðu sína til atvinnuhvalveiða ef ekki verður hægt að selja kjötið á erlendum mörkuðum. Stefán segist ekki hafa átt við að stjórnvöld væru að meta hvort eigi að endurmeta leyfi til atvinnuhvalveiða vegna markaðsskorts.

Innlent
Fréttamynd

Talning fer fram í dag

Talning atkvæða í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, sem fara átti fram í gær, var frestað til klukkan tvö í dag þar sem kjörgögn bárust ekki frá Vestmannaeyjum til lands vegna veðurs. Alls kusu um 1.100 manns í Vestmannaeyjum.

Innlent
Fréttamynd

Heilbrigðisráðuneytið hunsar tilmæli

Ríkisendurskoðun gerði stjórnsýsluúttekt á þjónustu við aldraða árið 2005 þar sem meðal annars var mælst til þess að ríkið gerði þjónustusamninga við dvalar- og hjúkrunarheimili. Ekkert hefur verið aðhafst í þeim málum enn. Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, segir slíka þjónustusamninga ekki á döfinni.

Innlent
Fréttamynd

Kakkalakkar í húsgögnum og hurð drepur hund

Öll heyrum við flökkusögur einhvern tíma á lífsleiðinni. Þetta eru krassandi sögur í ólíkindadúr, sumar hafa gengið marga hringi og birtast aftur og aftur með hverri nýrri kynslóð. Yfirleitt eru „pottþéttar“ heimildir fyrir sögunum, vinur vinar eða einhver í mötuneytinu. Tvær nýjustu flökkusögurnar á Íslandi tengjast kakkalökkum og hættulegum hurðum. En er eitthvert sannleikskorn í þeim?

Innlent
Fréttamynd

Aldrei heyrt um 90 milljarða

Sigurður Snævarr borgarhagfræðingur segir hvorki borgaryfirvöld í Reykjavík né viðskiptaráðgjöf Par X IBM kannast við verðmætamat á Landsvirkjun upp á 91,2 milljarða króna. Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, segir borgarstjórn hafa samþykkt að selja Landsvirkjun á allt að fimmtán milljarða lægra verði en verðmat hefði gefið tilefni til.

Innlent
Fréttamynd

Dýrari þjónusta fyrir aldraða

Gjaldskrá fyrir heimaþjónustu, félagsstarf, fæði og veitingar í félagsstarfi og þjónustugjöld í þjónustuíbúðum aldraðra í Reykjavík mun hækka um tæp níu prósent næstu áramót samkvæmt samþykkt velferðarráðs Reykjavíkurborgar.

Innlent
Fréttamynd

Nýtt hjúkrunarheimili byggt

Ráðgert er að byggja 2.000–2.500 fermetra hjúkrunarheimili á Egilsstöðum á næstu 2–3 árum. Sótt verður um 30 milljóna króna framlag úr ríkissjóði sem mun skiptast niður á þrjú ár til að lagfæra núverandi húsnæði sjúkrahúss og heilsugæslu til að það nýtist betur undir starfsemina.

Innlent
Fréttamynd

Aðeins heimilt stjórnvöldum

Skjaldarmerki Íslands er notað á pólskri frétta- og spjall-síðu, www.iceland.pl, sem Pólverjar á Íslandi nota töluvert mikið. Skjaldarmerkið hefur einnig verið notað víðar, þar á meðal á vefsíðu starfsmannaleigunnar 2b ehf., en verið fjarlægt þaðan.

Innlent
Fréttamynd

94 leyfi það sem af er ári

Í októbermánuði gaf Persónuvernd út sjö leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við vísindarannsóknir. Það sem af er þessu ári hefur Persónuvernd gefið út 94 leyfi og segir Særún María Gunnarsdóttir, lögfræðingur Persónuverndar, stærstan hluta þeirra vegna vísindarannsókna.

Innlent
Fréttamynd

Veiðikofi fauk út í hafsauga

Svo hvasst var í Vestmannaeyjum í gær að veiðikofi fauk út í sjó. Kofinn var í eyjunni Hana, sem er rétt við eyjarnar Hænu og Grasleysu, og hafði staðið þar síðan 1984. Hann var byggður eftir að sá fyrri fauk í stórviðri.

Innlent
Fréttamynd

22.000 skrifa undir áskorun

Um 22.000 manns hafa skrifað undir áskorun þess efnis að samþykkja beri lagafrumvarp um afnám fyrningarfrests vegna kynferðisbrota gegn börnum. Þetta segir Ágúst Ólafur Ágústsson, sem er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins. Hann segir slíkan stuðning nánast fordæmalausan í sögu þingisins.

Innlent
Fréttamynd

Alvarleg slys fátíð hjá Bechtel

Við Fjarðaálsverkefnið hafa nú verið unnar tvisvar sinnum 2,5 milljónir vinnustundir án fjarveruslyss. Fjarveruslys er það kallað ef viðkomandi þarf að taka sér frí úr vinnu vegna vinnuslyss.

Innlent
Fréttamynd

Hefði viljað lækkun vaxta

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, SA, segist hafa beðið eftir að Seðlabankinn færi að gefa önnur skilaboð en þau að hækka vextina.

Innlent
Fréttamynd

Rektor ráðinn í lok mánaðarins

Ekki liggur enn ljóst fyrir hver staðgengill dr.Guðfinnu Bjarnadóttur, rektors við Háskólann í Reykjavík, verður. Eins og fram hefur komið fer Guðfinna í launalaust leyfi vegna framboðs fyrir alþingiskosningar næsta vor.

Innlent
Fréttamynd

Samningaviðræður í hnút

Fulltrúar Félags grunnskólakennara og Launanefndar sveitarfélaga hafa hist á fimm árangurslausum fundum til að ræða breyttar forsendur kjarasamnings kennara vegna greinar 16.1 í kjarasamningnum.

Innlent
Fréttamynd

Flugvöllum lokað í hvassviðri

Aftakaveður olli miklu tjóni um allt land í gær. Millilanda- og innanlandsflug lá niðri fram eftir degi og má búast við seinkunum á millilandaflugi í dag. Þrjú skip slitu landfestar, tvö í Hafnarfirði og eitt á Skagaströnd. Rúður brotnuðu í bílum í grjótfoki á Möðrudalsöræfum. Ekki er vitað til þess að nein teljandi slys hafi orðið á fólki.

Innlent
Fréttamynd

Nemendur velji rektor

Stjórn Bandalags íslenskra námsmanna sendi frá sér yfirlýsingu á fimmtudag þar sem fyrirkomulagi á vali rektors við HR og Háskólann á Bifröst er mótmælt. Í báðum skólunum velja háskólaráð eða háskólastjórn rektora án aðkomu nemenda eða fulltrúa þeirra.

Innlent
Fréttamynd

Tré rifnaði upp með rótum

Eitt elsta tré Reykjavíkurborgar við Sóleyjargötu rifnaði upp með rótum í óveðrinu í gær og féll á tvo bíla. Bifreiðarnar voru mannlausar þegar tréð féll en skemmdir urðu nokkrar. Lögregla og björgunarlið fóru á staðinn og fjarlægðu tréð. Að undanskildum bílunum olli tréð ekki öðru tjóni.

Innlent
Fréttamynd

Nóvember gegn nauðgunum

Átaksverkefninu „nóvember gegn nauðgunum“ var hleypt af stokkunum fyrir helgi. Það er jafningafræðsla Hins hússins sem stendur fyrir átakinu og verða fyrirlestrar um málefnið haldnir í framhaldsskólum í þesssum mánuði.

Innlent
Fréttamynd

Hof ásatrúarfólks í Leynimýri

Borgarráð Reykjavíkurborgar samþykkti að úthluta Ásatrúarfélaginu lóð undir hof í Leynimýri á fundi sínum á fimmtudaginn. Var skipulagssviði falið að gera tillögur að staðsetningu lóðarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Prófkjör verður haldið í janúar

Prófkjör framsóknarmanna í Suðurkjördæmi fer fram 20. janúar 2007. Þetta var ákveðið á kjördæmaþingi framsóknarmanna í Suðurkjördæmi sem haldið var nú um helgina.

Innlent
Fréttamynd

Um 30 til 40 prósent af afla spillist

Nú er nýlokið fjögurra daga námskeiði í gæða- og öryggismálum í fiskhöfnum fyrir 35 hafnarstjóra á Sri Lanka. Hafrannsóknastofnun Sri Lanka og fiskimálaráðuneyti landsins stóðu að námskeiðinu en Þróunarsamvinnustofnun Íslands og Sjávarútvegsskóli Sameinuðu þjóðanna veittu tæknilega og fjárhagslega aðstoð.

Innlent
Fréttamynd

Gjaldskrá mun lækka í vor

Vinna er hafin hjá borginni í að samræma heimahjúkrun og heimaþjónustu sem mun koma til lækkunar á gjaldskrá í heimaþjónustu að sögn Jórunnar Frímannsdóttur, formanns velferðarráðs Reykjavíkurborgar. Heimahjúkrun er á hendi ríkisins og heimaþjónusta hjá sveitarfélögum.

Innlent
Fréttamynd

Paul F. Nikolov í framboð

Paul F. Nikolov gefur kost á sér í 1. til 3. sæti í forvali Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík norður, Reykjavík suður og Suðvesturkjördæmi, fyrir alþingiskosningarnar 2007.

Innlent
Fréttamynd

Sundlaug inni í skáp

„Það er allt að frétta," segir Jón Hallur Stefánsson rithöfundur. „Ég á von á barni hvað úr hverju. Konan er komin á tíma og ætlar að fæða hérna í stofunni. Sundlaugin bíður bara inni í skáp. Þetta verður mitt fimmta barn. En þetta er ekki allt því ég á von á barnabarni líka.

Innlent
Fréttamynd

Hringhlaup í miðbænum

Vangaveltur eru meðal íslenskra langhlaupara um að halda hundrað kílómetra hlaup á Íslandi og yrði það í fyrsta sinn sem svo langt hlaup er haldið hér. Gunnlaugur A. Júlíusson langhlaupari segir að mikill spenningur séu fyrir því að halda hlaupið á næsta ári eða þarnæsta ári og allar líkur að af því verði. Líklegast sé að hlaupið verði hringhlaup í miðbænum.

Innlent
Fréttamynd

Gunnar leiðir lista Samfylkingarinnar

Gunnar Svavarsson leiðir lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi en hann fékk 46 atkvæðum meira en Þórunn Sveinbjarnardóttir í 1. sætið. Afburða hæft fólk á listanum sem getur náð góðum árangri segir Gunnar.

Innlent