Innlent

Fréttamynd

Vinstri - grænir styðja ekki hvalveiðar

Þingflokkur Vinstri - grænna styður ekki að teknar verði upp hvalveiðar nú meðal annars vegna þess að hugsanlega sé að verið sé að fórna meiri hagsmunum fyrir minni. Þetta kom fram í máli Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri - grænna, á þingi í dag þegar tilkynnt var að veiðar hæfust á ný.

Innlent
Fréttamynd

Slapp út úr bíl eftir að hafa ekið út í sjó

Einn maður komst af sjálfsdáðum út úr bíl sínum eftir að honum var ekið út í sjó við Geirsnef við Elliðaárnar um kl. 15 í dag. Tildrög slyssins eru ókunn en mikill viðbúnaður var hjá slökkviliði og lögreglu og voru bæði kafarar og bátur sendir á vettvang. Ökumaður ók ekki á miklum hraða og var ekki ölvaður. Vegfarandi kastaði sér út í árnar til að bjarga manninum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem samskonar slys verður á þessum stað.

Innlent
Fréttamynd

Hvalur 9 heldur til veiða í kvöld

Hvalur 9 heldur til hvalveiða í kvöld að sögn Kristjáns Loftssonar, forstjóra Hvals hf, í kjölfar ákvörðuna íslenskra stjórnvalda að hefja hvalveiðar í atvinnuskyni á ný. Einar K. Guðfinnsson tilkynnti í utandagskrárumræðu á Alþingi í dag að hann hefði tekið þá ákvörðun að leyfa veiðar á níu langreyðum og 30 hrefnum á fiskveiðiárinu 2006/2007 til viðbótar þeim tæpu 40 hrefnum sem veiða á í vísindaskyni.

Innlent
Fréttamynd

Sendiráð Íslands taka þátt í kynningu á ákvörðun um hvalveiðar

Kynningarefni á ensku hefur verið útbúið vegna þeirrar ákvörðunar íslenskra stjórnvalda að hefja hvalveiðar í atvinnuskyni á ný. Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra tilkynnti um hana á þingi í dag. Fram kemur í tilkynningu frá sjávarútvegsráðuneytinu að sendiráð Íslands erlendis muni taka fullan þátt í að kynna sjónarmið Íslands erlendis og svara fyrirspurnum sem kunna að koma í kjölfar ákvörðunar sjávarútvegsráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Notkun nagladekkja dregst saman um 20% á fjórum árum

Notkun nagladekkja á höfuðborgarsvæðinu hefur dregist saman um 20 prósent á síðustu fjórum árum samkvæmt könnun sem gerð var fyrir framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar í lok síðasta vetrar. Þetta kemur fram á vef framkvæmdasviðs. Þar segir að hlutfallið hafi verið um 65 prósent í febrúar árið 2002 en það er nú komið niður í 52 prósent.

Innlent
Fréttamynd

Hvalveiðar í atvinnuskyni hefjast á ný

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra tilkynnti á Alþingi í dag að atvinnuveiðar á hval yrðu hafnar á ný og að leyfðar yrðu veiðar á 9 langreyðum og 30 hrefnum til viðbótar við þær 39 hrefnur sem veiddar verða í vísindaskyni á yfirstandandi fiskveiðiári. Veiðarnar hefjast á miðnætti. Kom þetta fram í utandagskárumræðu sem efnt var til að frumkvæði Magnúsar Þórs Hafsteinssonar um framtíð hvalveiða við Ísland.

Innlent
Fréttamynd

Vilja skóla og æfingaaðstöðu á varnarliðssvæði

Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna telur að byggja eigi upp skóla og þjálfunaraðstöðu fyrir slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn og æfingasvæði fyrir þessar stéttir og lögreglu, björgunarsveitir og Landhelgisgæslu á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli nú þegar herinn er farinn.

Innlent
Fréttamynd

Aðgerðaáætlun um Einfaldara Ísland samþykkt

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun aðgerðaáætlun um Einfaldara Ísland fyrir árin 2006-2009. Fram kemur í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu að markmiðið með áætluninni sé að einfalda og bæta opinbert regluverk í þágu atvinnulífs og almennings.

Innlent
Fréttamynd

Sökuðu ríkisstjórnina um hernað fólkinu í landinu

Þingmenn Samfylkingarinnar saka ríkisstjórnina um hernað gegn fólkinu í landinu með sérhagsmunagæslu í þágu mjólkuriðnaðar. Landbúnaðarráðherra segir hins vegar að stjórnvöld væru að koma aftan að bændum og mjólkuriðnaði ef samkeppnisumhverfi hans yrði breytt.

Innlent
Fréttamynd

Lést í umferðarslysi á Kjósarskarðsvegi

Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Kjósarskarðsvegi í gærmorgun hét Gunnlaugur Jón Ólafur Axelsson. Hann var fæddur þann 31. maí árið 1940 og var til heimilis að Kirkjuvegi 62 í Vestmannaeyjum. Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjú uppkomin börn.

Innlent
Fréttamynd

Vilja leyfa innflutning mjólkurvara án tolla

Neytendasamtökin krefjast þess að leyft verði að flytja inn mjólkurvörur með mjög lágum tollum eða án tolla. Þessa kröfu gera samtökin eftir fréttir síðustu daga þar sem fram hefur komið að ákvæði í búvörulögum, sem veita mjólkuriðnaðinum heimild til samráðs, gangi gegn samkeppnislögum og að til standi að sameina flestöll mjólkursamlög í eitt.

Innlent
Fréttamynd

Umræður um RÚV og fundarstjórn til miðnættis í gær

Umræður um hlutafélagavæðingu Ríkisútvarpsins stóðu nánast til miðnættis í gærkvöld og einkenndust af athugasemdum um fundarstjórn forseta. Umræðurnar hófust klukkan fjögur í gær og eftir að deilt hafði verið um fundarstjórn í um klukkustund gat menntamálaráðherra mælt fyrir frumvarpinu.

Innlent
Fréttamynd

Ófært yfir Tröllatunguheiði

Ófært er yfir Tröllatunguheiði á Vestfjörðum og þungfært á Þorskafjarðarheiði og Steinadalsheiði samkvæmt Vegagerðinni. Á Klettshálsi er hálka, á Steingrímsfjarðarheiði og Eyrarfjalli eru hálkublettir.

Innlent
Fréttamynd

Grundartangi ákjósanlegur fyrir hátækniiðnað

Fulltrúar frá stórfyrirtækinu Dow Corning og dótturfélagi þess, heimsóttu Ísland í síðustu viku til að kanna kosti þess að reisa stóra verksmiðju í hátækniiðnaði hér á landi. Þykir Grundartangi ákjósanlegasti staðurinn, en um tíma var einnig rætt um Eyjafjörð og Þorlákshöfn.

Innlent
Fréttamynd

Eldur kviknaði í klefa á Litla Hrauni

Eldur kviknaði inni í klefa í fangelsinu á Litla Hrauni undir kvöld í gær þegar vistmaður var fjarverandi. Hann var slökktur áður en hætta stafaði af. Grunur leikur á að einhver fangi hafi kveikt í klefa samfanga síns og verða allir fangar á sama gangi yfirheyrðir í dag.

Innlent
Fréttamynd

Fíkniefni fundust við húsleit í Keflavík

Lögreglan í Keflavík handtók fimm ungmenni á heimili í Keflavík laust fyrir miðnætti. Við húsleit í íbúðinni fundust 70 grömm af hassi og tíu grömm af amfetamíni, sem lagt var hald á.

Innlent
Fréttamynd

Sjúkraskrár í opnum hillum

Læknastöðin ehf. uppfyllir ekki kröfur um öryggiskerfi persónuupplýsinga. Þetta kemur fram í nýlegri úttekt Persónuverndar á öryggi persónuupplýsinga hjá Læknastöðinni ehf.

Innlent
Fréttamynd

Rafmagnsöryggi ábótavant

Raflögnum og rafbúnaði á íslenskum verkstæðum er í mörgum tilfellum ábótavant samkvæmt úttekt Neytendastofu.

Innlent
Fréttamynd

Skagamenn rannsaka málið

Ríkissaksóknari hefur óskað eftir því að embætti lögreglustjórans á Akranesi annist rannsókn á meintum hlerunum á síma Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi utanríkisráðherra, og Árna Páls Árnasonar, fyrrverandi starfsmanns utanríkisráðuneytisins.

Innlent
Fréttamynd

Allt verði rannsakað

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra vill að allt sem lýtur að hlerunum og njósnum verði rannsakað. Hún heimilaði í gær Kjartani Ólafssyni, fyrrverandi ritstjóra, að skoða öll gögn Þjóðskjalasafnsins um sjálfan sig.

Innlent
Fréttamynd

170 kannabisplöntur gerðar upptækar

Lögreglan í Hafnarfirði, með aðstoð lögreglunnar í Kópavogi og sérsveit Ríkislögreglustjóra, lagði hald á 170 kannabisplöntur við húsleit í suðurhluta Hafnarfjarðar á sunnudag. Tveir menn voru handteknir en þeim hefur verið sleppt.

Innlent
Fréttamynd

Minna veiðist nú af þorski og ýsu

Heildarafli íslenskra skipa það sem af er árinu 2006 nemur rúmum 1.054.000 tonnum og er það 356.000 tonna minni afli en á sama tímabili árið 2005 að því er fram kemur á heimasíðu Hagstofunnar.

Innlent
Fréttamynd

Afnema þyrfti bankaleynd

Hið mikla álag sem er á Tryggingastofnun ríkisins þessa dagana og greint var frá í Fréttablaðinu í síðustu viku, má rekja til leiðréttingar sem skjólstæðingar stofnunarinnar þurfa að gera á árlegum framreikningi tekjuáætlunar.

Innlent
Fréttamynd

Fréttablaðið með yfirburði

Fréttablaðið er meira lesið en hin blöðin alla daga vikunnar, af báðum kynjum, öllum aldurshópum og í öllum landshlutum. Forysta Fréttablaðsins á önnur dagblöð hefur aldrei mælst meiri.

Innlent
Fréttamynd

Biðtími eftir lækni þrír til fjórir dagar

Óviðunandi ástand hefur verið í læknamálum og er biðtími eftir lækni allt að þrír til fjórir dagar, segja fulltrúar bæjarstjórnar Grindavíkur sem fundað hafa með fulltrúum heilbrigðisráðuneytisins vegna heilsugæslu í bænum og um málefni aldraðra.

Innlent