Innlent

Fréttamynd

Mun fleiri karlar en konur teknir fyrir ölvunarakstur

Fjórtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Þetta voru þrettán karlar og ein kona á fertugsaldri sem alloft hefur komið við sögu lögreglunnar áður. Hún var einnig tekin fyrir ölvunarakstur í síðustu viku.

Innlent
Fréttamynd

Kajakræðararnir eru fundnir heilir á húfi

Erlendu kajakræðararnir, sem leitað hefur verið frá því síðdegis í gær, bæði á Faxaflóa og Breiðafirði, fundust heilir á húfi við Sjöundá á Rauðasandi við norðanverðan Breiðafjörð fyrir stundu. Fólkið hafði slegið upp tjöldum og amaði ekkert að því. Það voru björgunarsveitarmenn frá Tálknafirði sem fundu fólkið en ekki ferðamaður eins og fyrst var greint frá.

Innlent
Fréttamynd

Bréf Actavis í 90 krónum á hlut

Gengi hlutabréfa í Actavis hækkaði um 6,26 prósent í fyrstu viðskiptunum í Kauphöll Íslands í dag þegar kauptilboð í bréfin upp á 90 krónur á hlut. Þetta er um sex krónum hærra en yfirtökutilboð Novators, félags Björgólfs Thors Björgólfssonar, hljóðar upp á. Gengið lækkaði skömmu síðar og stendur nú í 86,5 krónum á hlut.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vilja endurbyggja Kútter Sigurfara

Skipasmiðastöðin Skipavík í Stykkishólmi hefur gert tilboð í að endurbyggja Kútter Sigurfara, sem er að grotna niður á byggðasafninu á Akranesi.

Innlent
Fréttamynd

17 ára sviptur eftir annað hraðabrot

Lögregla frá Eskifirði stöðvaði um heglina 17 ára pilt, eftir að hann hafði mælst á tæplega 150 kílómetra hraða í Fagradal á milli Reyðarfjarðar og Egilsstaða. Hann var umsvifalaust sviptur ökuréttindum enda var þetta annað hraðabrot hans á skömmum ökuferli.

Innlent
Fréttamynd

Bifhjólamaður stórslasaður eftir árekstur

Bifhjólamaður liggur stórslasaður á gjörgæsludeild Landsspítalans eftir að hafa fallið til jarðar á ofsahraða á Breiðholtsbraut upp úr miðnætti. Tildrög slyssins voru að hann ók aftan á bíl og missti stjórn á hjólinu. Félagi hans á öðru bifhjóli missti einnig stjórn á sínu hjóli við slysið og skall í götuna, en hann er ekki eins alvarlega slasaður. Ökumann bílsins sakaði ekki.

Innlent
Fréttamynd

Enn leitað að kajakræðurunum

Hátt á annað hundrað björgunarsveitarmenn úr 20 björgunarsveitum, skip og bátar frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu og þyrla Landhelgisgæslunnar hafa frá því snemma í gærkvöldi leitað tveggja erlendra kajakræðara, sem héldu frá Garðskaga á laugardagsmorgun og ætluðu til Snæfellsness.

Innlent
Fréttamynd

Fékk aðsvif og lenti í árekstri

Kona um áttrætt missti stjórn á bíl sínum á Mýragötu á móts við Þingvallastræti á Akureyri í gærkvöldi. Bíll hennar rakst þá á annan bíl og hafnaði loks inni í húsagarði. Talið er að hún hafi fengið aðsvif og var hún flutt á sjúkrahúsið. Engan annan sakaði en nokkurt eignatjón varð.

Innlent
Fréttamynd

Á 170 kílómetra hraða á leið í flug

Lögregla stöðvaði erlendan ferðamann á Suðurlandsvegi undir morgun, eftir að hann hafði mælst á 170 kílómetra hraða. Hann gaf þá skýringu að hann væri að flýta sér í flug, en ekkert varð af þeirri flugferð þar sem maðurinn var færður á lögrelgustöðina til að ganga frá málum sínum og greiða tugi þúsunda í sekt.

Innlent
Fréttamynd

Bílvelta í Hvalfjarðargöngum

Umferðaröngþveiti skapaðist norðan við Hvalfjarðargöng í gærkvöldi þegar göngunum var lokað eftir að fólksbíll valt í þeim. Kona sem var ein í bílnum slapp ómeidd en bíllinn mun vera ónýtur. Hún ók utan í gangavegginn með þeim afleiðingum að bíllinn valt.

Innlent
Fréttamynd

Heiður að hitta Pútín

Dr. Þorsteinn Ingi Sigfússon, prófessor við Háskóla Íslands, tók í gær við Alheimsorkuverðlaununum úr höndum Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Sánkti Pétursborg í Rússlandi. Fjölmenn mótmæli voru á sama tíma í borginni - en þau fóru friðsamlega fram.

Innlent
Fréttamynd

Sérsveit lögreglu situr um vopnaðan mann á Hnífsdal

Sérsveit lögreglunnar situr nú um hús á Hnífsdal, á Vestfjörðum, þar sem inni er vopnaður maður sem talið er að hafi hleypt af skoti fyrr í kvöld. Sérsveitarmenn voru sendir með þyrlu frá Reykjavík. Þeir lentu í Hnífsdal upp úr miðnætti og umkringja nú húsið.

Innlent
Fréttamynd

Orkuveitan segir samning við Norðurál mjög hagstæðan

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur (OR) sendi í dag frá sér tilkynningu vegna umræðu um raforkuverð til Norðuráls Helguvíkur sf. Í tilkynningunni er fullyrt að mesta framlegðin í starfsemi fyrirtækisins komi frá orkusölu til stóriðju. Einnig er sagt að samningurinn á milli OR og Norðuráls Helguvíkur sf. gefi hærra orkuverð en vanalega og sé mjög hagstæður fyrirtækinu.

Innlent
Fréttamynd

Aukning á sölu nikótínvara í apótekum

Greinileg aukning hefur orðið á sölu á nikótíntyggjói hjá apótekum eftir að reykingarbannið tók gildi á veitingastöðum síðustu helgi. Páll Guðmundsson lyfjafræðingur hjá Lyf og heilsu segir talsverða aukningu hafa orðið í sölu á nikótíntyggjóum og munnstykkjum.

Innlent
Fréttamynd

Kostnaður LSH vegna starfsmannaleiga tvöfaldaðist

Sú upphæð sem Landsspítali Háskólasjúkrahús greiddi starfsmannaleigum vegna hjúkrunarfræðinga tvöfaldaðist á milli áranna 2005 og 2006. Formaður félags íslenskra hjúkrunarfræðinga telur starfsmannaleigurnar komnar til að vera, en forráðamenn Landsspítalans stefna í þveröfuga átt.

Innlent
Fréttamynd

76,6% vilja verðupplýsingar á vefsíðum olíufélaganna

Rúmlega 76% landsmanna telja mikilvægt að olíufélög birti verðupplýsingar á vefsíðum sínum. Þetta kemur fram í könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir FÍB í lok maí og byrjun júní. 11,6% töldu verðbirtingarnar lítilvægar og 11,6% svöruðu hvorki né.

Innlent
Fréttamynd

Jón Ásgeir hættur sem forstjóri Baugs

Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, tilkynnti á aðalfundi Baugs Group í dag að hann hafi látið af störfum sem forstjóri fyrirtækisins. Við starfi hans tekur Gunnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri fjárfestinga Baugs í Bretlandi. Jón mun í kjölfarið taka við sem starfandi stjórnarformaður Baugs Group. Umtalsverðar skipulagsbreytingar á stjórn Baugs voru kynntar á aðalfundi félagsins í dag.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Exorka fær 3 ný virkjanaleyfi í Þýskalandi

Exorka, dótturfélag Geysis Green Energy, hefur gengið frá kaupum á þremur leyfum fyrir jarðvarmavirkjanir í Bæjaralandi í Þýskalandi. Fyrir átti Exorka þar eitt virkjanaleyfi. Í kjölfarið getur Exorka byggt orkuver í Bæjaralandi sem framleitt getur 15-25 megawatta raforku á ári. Heildarvirði fjárfestingarinnar nemur 20 milljörðum króna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hjartavernd fyrir konur

Þann 16. júní næstkomandi fer hið árlega Kvennahlaup ÍSÍ fram. Hjartavernd er aðalsamstarfsaðili hlaupsins í ár. Að því tilefni hefur stofnunin ásamt ÍSÍ og Lýðheilsustöð gefið út bæklinginn Hreyfing er hjartans mál - hjartaprófið sem er sérstaklega sniðinn að konum.

Innlent
Fréttamynd

Úrvalsvísitalan undir 8.000 stigum

Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,07 prósent í Kauphöllinni í dag og stendur hún nú í 7.953 stigum. Vísitalan hefur ekki verið lægri síðan 15. maí síðastliðinn en þá rauf hún 8.000 stiga múrinn í fyrsta sinn.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Þroskahamlaðir hlaupa hringinn

Evrópskir hlauparar með þroskahömlun eru væntanlegir á Suðurland í dag. Ætlun þeirra er að hlaupa hringinn í kringum landið. Hópurinn er hluti af verkefninu "Integrative Meetings of Friends" og hefur hlaupið rúmlega 8000 km. um Evrópu þvera og endilanga frá árinu 1999.

Innlent
Fréttamynd

Velta í dagvöruverslun eykst um 8,8 prósent

Velta í dagvöruverslun jókst um 8,8 prósent í maí á föstu verðlagi samanborið við sama tíma í fyrra. Á breytilegu verðlagi nam hækkunin hins vegar 13,2 prósentum, samkvæmt smásöluvísitölu Rannsóknaseturs verslunarinnar á Bifröst, sem bætir við að fátt bendi til að einkaneysla sé að dragast saman. Megi búast við að sölutölur eigi eftir að hækka á næstunni.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Enn er lýst eftir Þorvaldi Erni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir enn eftir Þorvaldi Erni Thoroddsen. En ekkert hefur spurst til hans síðan miðvikudaginn 5. júní. Þorvaldur er 17 ára, 180 cm á hæð, dökkhærður og grannvaxinn.

Innlent
Fréttamynd

KF Nörd ætlar að verja heiður Íslendinga

KF Nörd, hið stórskemmtilega knattspyrnulið sem varð til í samnefndum sjónvarpsþætti, hefur skorað á sænska KF Nörd liðið í landsleik til þess að hefna ófara íslenska landsliðsins í knattspyrnu. Þetta kom fram í Ísland í Dag í kvöld.

Innlent