Snjóflóð á Flateyri og Suðureyri
Tryggingar gegn náttúruhamförum
Náttúruöflin hafa svo sannarlega minnt á sig að undanförnum misserum. Nýliðið ár hófst með snjóflóðum á Flateyri og lauk með aurskriðum á Seyðisfirði. Undanfarnar vikur hafa einkennst af stöðugum jarðskjálftum á Reykjanesskaga sem búa okkur undir frekari jarðhræringar og jafnvel eldgos.
Ógnin í fjallinu
Ofanflóð á Flateyri og Seyðisfirði í fyrra hafa minnt Íslendinga rækilega á að baráttunni við að verja byggðir landsins er hvergi nærri lokið. Þrátt fyrir aukið eftirlit og uppbyggingu varnarvirkja mátti litlu muna að manntjón yrði.
Gjafmildi landsmanna bjargaði starfi björgunarsveitarinnar á Flateyri
Einu ári eftir að snjóflóð féllu á Flateyri er björgunarsveitin þar á bæ komin í nýtt húsnæði sem sveitin gat keypt með fé sem almenningur og fyrirtæki í landinu gáfu eftir hamfararnir. Í nýja húsnæðinu verður starfrækt heilsugæsla sem var ekki í boði fyrir ári.
„Íslenskir stjórnmálamenn ákváðu að láta faraldurinn ekki snúast um sig“
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra óskaði landsmönnum öllum ljóss og friðar á nýju ári sem nú fer í hönd í áramótaávarpi sínu í kvöld. Hún stiklaði á stóru yfir fordæmalaust ár, litað af heimsfaraldri, og kvað það „heilbrigðismerki“ að stjórnmálamenn á Íslandi hefðu ekki látið faraldurinn snúast um sig.
Árið 2020 í myndum
Ársins 2020 verður vafalítið minnst sem árs Covid-19 en þó gerðist margt annað markvert. Veður var oft vont, kjaradeilur harðar og mikið rætt um nýja stjórnarskrá. Jörð skalf á Reykjanesskaga og þá létu náttúruöflinn finna fyrir sér á Flateyri, Suðureyri og Seyðisfirði.Þegar eitthvað var að frétta voru ljósmyndarar og tökumenn Vísis og Stöðvar 2 á staðnum og fönguðu meðal annars þá stemningu sem myndaðist í samfélaginu þegar götur voru mannlausar, raðir langar og þjóðin á varðbergi gegn nýrri vá.Hér má sjá sýnishorn af myndunum sem prýddu umfjöllun okkar á árinu. Fréttaannáll Stöðvar 2 verður svo á dagskrá að loknum kvöldfréttum 30. desember, bæði á Stöð 2 og Vísi.
Þetta snýst um okkur, ekki ykkur
Bannsett fréttin á forsíðu Fréttablaðsins. Hún var sláandi. Sérstaklega fyrir þá sem tengjast þorpum undir bröttum fjallshlíðum. Fréttin fór nefnilega með okkur aftur til Flateyrar. Aftur kominn janúar, blindhríð, snjóflóð, eignatjón, mannbjörg og kraftaverk.
Tugir húsa á Flateyri á nýju hættusvæði vegna snjóflóða
Veðurstofa Íslands hefur gert nýtt hættumat vegna snjóflóða fyrir Flateyri. Með nýja hættumatinu hefur hættusvæðið verið útfært og eru nú á þriðja tug húsa komin inn á hættusvæði C, efsta hættustig, og um sjötíu hús eru komin á ítrasta rýmingarstig.
Vilja varðskipið Ægi undir snjóflóðasafn á Flateyri
Starfshópur um uppbyggingu snjóflóðasafns á Flateyri vill fá varpskipið Ægi undir safnið og nýta það einnig undir gisti-og veitingaþjónustu. Forsvarsmaður hópsins furðar sig á því að ekkert snjóflóðasafn sé starfrækt hér á landi þrátt fyrir að snjóflóð séu mannskæðustu náttúruhamfarir Íslandssögunni.
500 þúsund króna sekt fyrir að óhlýðnast lögreglu um rýmingu vegna snjóflóðahættu
Þeir sem óhlýðnast lögreglu um rýmingu húseigna vegna hættu af snjóflóðum eða skriðuföllum munu eiga yfir höfði sér allt að fimm hundruð þúsund króna sekt verði nýtt frumvarp umhverfis- og auðlindaaráðherra að lögum.
Kostnaður Ísafjarðarbæjar vegna snjóflóðanna um 39 milljónir
Af þessum 39 milljónum krónum hafa þegar 13 milljónir þegar verið greiddar.
Týr á leið til Vestfjarða vegna snjóflóðahættu í aftakaveðri
Hættustig vegna snjóflóða er nú í gildi á Flateyri og Patreksfirði. Varðskipið Týr er nú á leið vestur á firði til að auka viðbúnað á svæðinu. Skipið var á níunda tímanum í kvöld statt á Breiðafirði en er þar aftakaveður, norðaustan stormur og 6-8 metra ölduhæð.
Þetta eru aðgerðirnar sem ráðast á í vegna fárviðris og snjóflóða
Flýta á jarðstrengjavæðingu dreifikerfis raforku um allt land svo henni verði að mestu lokið árið 2025 í stað ársins 2035.
Segist ekki hafa mátt taka ákvarðanir án leyfis og lýsir „skrýtnu“ símtali frá Noregi
Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, lýsir meirihlutanum í bæjarstjórn sem "plöntunni í Litlu hryllingsbúðinni“; aldrei ánægð og fær aldrei nóg.
Segir að framganga sín í tengslum við snjóflóðin hafi valdið ágreiningi
Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, segir að eftir á að hyggja hefði verið betra að leggja öll spilin og segja frá því hvað nákvæmlega gerðist í aðdraganda þess að hann hætti sem bæjarstjóri.
Áframhaldandi starfsemi Lýðskólans á Flateyri verði tryggð
Þetta segir Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, en hún var spurð í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi hvort það stæði til að semja um áframhaldandi rekstur Lýðskólans á Flateyri.
Forseti bæjarstjórnar segir tímasetningu starfsloka óheppilega
Kristján Þór Kristjánsson, forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar, segir starfslok Guðmundar Gunnarssonar bæjarstjóra ekkert hafa með snjólóðin á Flateyri og Suðureyri að gera.
Uppnám í Ísafjarðarbæ tveimur vikum eftir snjóflóðin
Guðmundur Gunnarsson, sem lætur í dag af störfum sem bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, segir aðdragandann að starfslokunum hafa verið stuttan.
Skilur ekki af hverju stofnuð var nefnd vegna snjóflóðanna
Stjórnarmaður í ofanflóðasjóði gagnrýnir að ríkisstjórnin skuli stofna nefnd vegna snjóflóðanna. Aðeins þurfi að prenta út áætlanir ofanflóðasjóðs.
Landsbjörg fær hálfa milljón til að standsetja björgunarskip sem verður á Flateyri
Skipinu verði svo siglt til Flateyrar þar sem það verður í höfn í vetur.
Skipa starfshóp til að styrkja atvinnulíf og búsetu á Flateyri
Verkefni starfshópsins er að kanna leiðir til að byggja upp traust íbúa Flateyrar á samfélagslegum innviðum.
Báðu um að flóðin yrðu hreinsuð í burtu til að auka öryggi
Þetta kom frá á íbúafundi þeirra í gær þar sem kvartað var undan vanbúnaði þorpsins eftir að heilsugæslunni var lokað.
Töluð hrein vestfirska á íbúafundum á Flateyri og Suðureyri
búafundur var haldinn á Gunnukaffi á Flateyri í Önundarfirði í dag og stendur nú yfir annar slíkur í félagsheimilinu á Suðureyri við Súgandafjörð en á dögunum féllu snjóflóð í fjörðunum tveimur eins og mikið hefur verið fjallað um.
Rannsaka hvers vegna björgunarbátar blésu ekki út á Flateyri
Rannsóknarnefnd samgönguslysa athugar málið.
Gámarnir „krumpuðust“ utan um húsið
Ró er tekin að færast yfir Flateyri eftir mikinn eril og viðbúnað síðustu daga í kjölfar snjóflóðanna sem féllu á bæinn í byrjun síðustu viku.
Enginn uppgjafartónn í Vestfirðingum
"Ég held að þessar byggðir hafi skilað svo miklu inn í samfélagið að þær eigi það skuldlaust að staðið verði vörð um öryggi þessara íbúa,“ segir Lilja Rafney Magnúsdóttir,
„Skulum ekki flýta okkur en vinnum hratt og örugglega“
Sigurður Ingi Jóhannsson var á meðal gesta í Víglínunni á Stöð 2 í dag. Ræddi hann þar á meðal ofanflóðasjóð og snjóflóðin á Flateyri og Suðureyri.
Héldu að það væri komið steypiregn þegar flóðbylgjan skall á þakinu
Flóðbylgjan sem skall á land á Suðureyri á þriðjudagskvöld er ekki eins há og talið var í fyrstu. Útbúið verður tölvulíkan af flóðbylgjunni.
Vestfirðingar og samgöngu- og sveitastjórnarráðherra í Víglínunni
Náttúruhamfarir, óveður og alvarleg slys settu svip sinn á vikuna sem leið. Snjóflóðin sem féllu á Vestfjörðum höfðu töluverðar afleiðingar í för með sér og hafa vakið ýmsar spurningar.
Segir að strangt til tekið séu 15 milljarðar í ríkissjóði sem tilheyri Ofanflóðasjóði
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra segir að strangt til tekið séu 15 milljónir í ríkissjóði sem tilheyri verkefnum Ofanflóðasjóðs. Hann segir mikilvægt að fjármunirnir verði nýttir til framkvæmda á næstu árum.
Óvissustig vegna hitabreytinga og vegalokanir á Vestfjörðum
Óvissustigi vegna snjóflóðahættu hefur verið lýst yfir á norðanverðum Vestfjörðum.